Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 Mars

29.03.2007 09:41

Loksins loksins koma nokkrar fréttir

Hæhæ

Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir frábæra mætingu í foreldrakaffið sem var haldið í mars.  Það var rosalega gaman að sjá ykkur öll og gaman hvað foreldrar frá Bóli voru dugleg að kíkja upp á Bakka og foreldrar af Bakka niður á Ból.
Einnig var gaman að sjá hvað það var góð mæting á fyrirlesturinn hjá Hugo.


ÞAÐ ERU KOMNAR FULLT AF NÝJUM MYNDUM Í MYNDAALBÚMIР 
Bakkafréttir


Nú erum við búin að ljúka við slökkviliðsþemað og var það mjög skemmtilegt. Nú fer að styttast í páskana og erum við farin að undirbúa þá með skemmtilegu páskaföndri. 

Þegar við vorum með slökkviliðsþema þá æfðu börnin lag um eldinn ( sem er eitt lag í þúsaldarljóði eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson) og hreyfingar með. Það eru fleiri lög í Þúsaldarljóðinu eftir Sveinbjörn og er mikill áhugi hjá börnunum að æfa þau. Það eru lög um jörðina, loftið og vatnið. Það eru textar hér til hliðar í ,,söngtextar,,.

Okkur var boðið í heimsókn á Blindravinnustofuna í gær (miðvikudag).  Börnin fengu að prófa hvernig það er að sjá ekkert og ganga um með bindrastaf. Það fannst þeim mjög ,,gaman,, að fá að prófa. Einnig fengu þau að skoða hvað verið er að vinna við á blindravinnustofunni og þau fengu sjálf að setja merkingu á uppþvottabursta og vildu sum fá að prófa að gera með með leppa fyrir augunum (´sjá hvernig er að vera blindur og vinna við þetta). Einnig fengu þau að sjá og prófa að þreifa á blindraletri. Í lokin var okkur boðið upp á snúð og safa   . Þetta var mjög skemmtileg og áhugaverð ferð og ætlum við að að vinna aðeins með hana áfram þ.e. að skoða skynfærin okkar og umhverfið. (Það eru tveir elstu hóparnir sem fara í heimsókn, helmingurinn fór í gær og seinni hópurinn fer eftir páskana).  


Nokkrar fréttir af skólahópnum á Bakka

Elstu börnin (fædd 2001) á Bakka eru í skólahóp 4-5 sinnum í viku.  Í skólahóp er verið að vinna með stafabókina. Nú er verið að vinna með stafinn Vv.
Þau hafa einnig verið að skoða og læra um ísland þ.e. helstu staðina á landinu okkar t.d. um höfuðborgina, helstu jökla og fleira. Þau skoðuðu einnig fánann okkar þ.e. hvað litirnir tákna. Einnig tóku þau skjaldarmerkið fyrir. 
Nú er þau að vinna með fæðingardag sinn og ár og þá í hvaða stjörnumerki þau eru. Þetta finnst þeim mjög skemmtilegt.
Einnig ætla börnin að útbúa flöskuskeyti. Þetta var hugmynd sem kom upp hjá einu barninu og eru þau mjög spennt að prófa þetta.
Nú erum við að byrja að bjóða börnum sem eru fædd 2002 að koma í heimsókn í skólahópinn. Það fær hvert barn að vera í ca. viku í heimsókn og taka  þátt í því sem verið er að gera hverju sinni.

Fréttir af Bóli

VIð á Bóli viljum byrja á að minna foreldra á að koma með ferilsmöppubækurnar (grænu bækurnar) sem fyrst því að við ætlum að fara að setja myndir og fleira inn í þær.

Annars er allt gott að frétta af Bóli. Nú erum við að vinna með gula litinn. Börnin hafa verið að gera skemmtilegt páskaskraut og tengja það við gula litinn.
Eldri börnin þ.e. börn sem fædd eru 2004 eru að vinna með fjölskylduna. Langar okkur að biðja ykkur um að senda okkur eða koma með myndir af nánustu fjölskyldumeðlimum þ.e. pabba og mömmu, systkinum og afa og ömmu.

Kveðja frá Bakka og Bóli






13.03.2007 12:02

Foreldrakaffi fimmtudaginn 15.mars. Aðalfundur foreldrafélagsins og Hugo á mánudaginn 19. mars

Hæhæ

Fimmtudaginn 15. mars verður foreldrakaffi á Bakka og Bóli á milli kl. 14-16 (foreldrar geta mætt einhverntímann á þessu bili).  Á Bakka verður sýning á verkum barnanna frá Tröllaþemanu og Slökkviliðsþemanu. Á Bóli verður líka sýning á því sem börnin þar hafa verið að gera í þemastarfi.
Við vonumst eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta og skoða hvað börnin hafa verið að gera skemmtilega hluti og fá sér kaffi í leiðinni.

Mánudaginn 19.mars kl. 20:00 verður aðalfundur foreldrafélagsins. Strax á eftir eða kl.20:30  mun Hugo Þórisson vera með fyrirlestur á Skerjagarði í boði foreldrafélagsins um samskipti foreldra og barna.  Vonum að sem flestir mæti. Heitt á könnunni og eitthvað gott með  (eða er það ekki Ella ).

Svo væri rosa gaman ef þið gætuð skrifað smá línu í gestabókina okkar þegar þið kíkið á okkur svo að við sjáum hverjir eru að fylgjast með okkur  

ps. það eru engar nýjar myndir núna en vonandi náum við að skella inn myndum fljótlega

Kveðja frá Bakka og Bóli
  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar