Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 Maí

29.05.2007 11:48

Nýjar myndir og fleira

Hæhæ

Viljum byrja að minna á sveitaferðin á föstudaginn 1. júní. Það er komið skráningarblað upp á töflu hjá Bakka og Bóli. Viljum við biðja ykkur um að skrá ykkur á listann þannig að hægt verði að panta rútu fyrir þann fjölda sem ætlar að fara  

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. Endilega kíkið á með börnunum ykkar, þau hafa mjög gaman af því að skoða myndir frá leikskólastarfinu og geta sagt ykkur frá því sem er að gerast á myndunum (allavega eldri börnin ).
Það er einnig komin ný stundaskrá fyrir júnímánuð.

Umferðaskólinn kom í leikskólann í síðustu viku. Þá var farið yfir umferðareglurnar með börnunum (börnum fædd 2001 og 2002). Farið var yfir almennar umferðarreglur, notkun reiðhjólahjálma, bílstóla í bílum og fleira. Í lokin fengu börnin að sjá umferðamynd með Felix Bergsyni, mjög skemmtilega. Börnin fengu svo poka með blaði í sem þau áttu að teikna umferðamynd á , límmiða með lögreglumerki og bækling sem foreldrar eiga að lesa. Það komu 3 lögreglumenn í heimsóknina og fóru tveir þeirra út í garð hjá okkur og heilsuðu upp á yngri börnin sem voru mjög spennt yfir því .

Yngri börnin á Bakka og börnin á Bóli eru að læra nýja rímvísu um líkamann.
Hún er svona:

Rímvísa um líkamann

Er þetta penni- nei þetta er enni
Er þetta kaka- nei þetta er haka
Er þetta Stebbi- nei þetta er nebbi
Er þetta Unnur- nei þetta er munnur
Er þetta tár- nei þetta er hár
Er þetta lunga- nei þetta er tunga
Er þetta skinn- nei þetta er kinn
Er þetta lönd- nei þetta er hönd
Er þetta slingur- nei þetta er fingur
Er þetta hagi- nei þetta er magi
Er þetta skæri- nei þetta er læri
Er þetta hálfur- nei þetta er kálfur
Er þetta tré- nei þetta er hné
Er þetta gil- nei þetta er il
Er þetta ká- nei þetta er tá
Er þetta skass- nei þetta er rass

(þessi vísa er líka inn í söngtextar-þulur hér á heimasíðunni).

Sumarkveðjur frá Bakka og Bóli



22.05.2007 11:38

Munið útidótadag, sveitaferð og fleiri fréttir

Hæhæ

Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir komuna á opna húsið síðastliðinn laugardag. Það var rosalega gaman að sjá hvað margir komu að skoða hvað börnin hafa verið að gera í leikskólanum. Þetta var alveg yndislegur dagur, gott veður, frábærar veitingar í boði, börnin sungu svo frábærlega og allir í svo góðu skapi   
           

Nú eru allir komnir í sumarskap (eða er það ekki þrátt fyrir smá snjókomu í enda maí), og erum við farin að skipuleggja júní mánuð. Þá ætlum við að gera margt skemmtilegt. Á Bakka ætlum við halda áfram að vinna með fjöruna eitthvað fram í júni eða á meðan áhugi barnanna er fyrir hendi.
Einnig ætlum við á Bakka og Bóli að hafa pizzuveislu og ís, fara í menningarferð með tvo elstu árgangana (á bakka), hjóladagur verður fyrir skólahópinn, hið geysivinsæla snúðaskokk, nestisdagur (vonandi fáum við gott veður þannig að hægt verði að fara í skógarferð og borða nestið þar), hin árlega sumarhátið Skerjagarðs og fleira skemmtilegt.
Einnig fara elstu börnin í útskriftarferð. Síðast dagur fyrir sumarfrí er svo 29. júní

Á föstudaginn 25. maí fara elstu börnin (skólahópur) að sjá Sinfoníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói. Þemað þetta árið er verk úr Ávaxtakörfunni sem Þorvaldur Bjarni búinn er að færa í nýjan búning.

Einnig viljum við minna á útidótadaginn sem verður næstkomandi föstudag 25. maí. Þá mega börnin koma með útdót að heiman. Eins og áður sagði höfum við ekki pláss í garðinum fyrir hjól, línuskauta eða hlaupahjól.

Munið svo sveitaferðina 1 júní kl. 13.00.  Við hvetjum alla foreldra til að koma með börnunum sínum í sveitina og eiga góða stund saman.

kv frá Bakka og Bóli

15.05.2007 11:18

Opið Hús Laugardaginn 19. maí.

Hæhæ

Munið Opið hús á Skerjagarði laugardaginn 19. maí, milli klukkan 11 og 13. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og skoða hvað börnin hafa verið að gera í leikskólanum síðasta vetur. Börnin munu syngja nokkur lög, útskrift elstu barnanna, hoppukastali í garðinum og ljúffengar veitingar í boði foreldra .


Við viljum líka þakka frábæra mætingu á hreinsunardaginn síðastliðinn laugardag
 
kveðja frá okkur öllum á Skerjó

04.05.2007 11:34

Allir í sund

Hæhæ

Á sunnudaginn 6 maí á milli kl. 10 og 12 ætlum viðað fjölmenna með börnunum okkar í sund í Seltjarnarneslauginni. Vonumst eftir að sjá sem flesta, því það er svo gaman fyrir börnin okkar að hittast fyrir utan leikskóla og busla saman í lauginni.

Kv Foreldrafélagið

03.05.2007 10:30

Það verður ýmislegt brallað í maí

Hæhæ

Jæja þá er stundaskráin fyrir maí mánuð komin. Það verður ýmislegt skemmtilegt gert í maí. Við ætlum að halda hópastarfinu alveg út maí og tónlistin verður einnig út maí.

Fimmtudaginn 10 maí verður hatta- og gleraugnadagur og mega börnin þá koma með hatta og/eða gleraugu í leikskólann. Mynd NR:0

Föstudaginn 25. maí verður svo útidótadagur. Þá mega börnin koma með eitthvað skemmtilegt útidót að heiman til að leika með úti t.d. bolta, skóflu, fötu, bíla, sippuband, krítar og fleira. (Því miður þá höfum við ekki pláss í garðinum til að koma á hjóli, línuskautum eða hlaupahjóli).

Fimmtudaginn 24. maí kemur lögreglan og umferðaskólinn á skerjagarð og eru það börn sem fædd eru 2001 og 2002 sem fara í hann.

Laugardaginn12. maí verður hinn árlegi hreinsunardagur hér á Skerjagarði frá kl. 10-14. Þá hafa foreldrar ásamt börnum komið og tekið til hendinni á leikskólanum t.d. málað grindverkið, leiktækin, koma niður sumarblómum, reita arfa og margt fleira. Foreldrafélagið hefur svo grillað pylsur í hádeginu.  Foreldrum hefur þótt þetta skemmtileg hefð sem og börnunum, þar sem þeir hitta og kynnast öðrum foreldrum og eiga skemmtilegan dag saman. Þetta er ekki skylda en gaman væri ef sem flestir foreldrar sæju sér fært að mæta þó ekki væri nema í smá tíma. (Góð upphitum fyrir kosningar og eurovision ).

Laugardaginn 19. maí verður opið hús á Skerjagarði frá kl. 11-13. Þá verður sýning á verkum og daglegu starfi barnanna frá vetrinum. Einnig verður útskrift elstu barnanna á leikskólanum. Þá hafa foreldrar komið með veitingar á sameiginlegt hlaðborð. Foreldrar á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar á Bakka hafa komið með veitingar fyrir fullorðna. Leikskólinn sér um drykkjarföng. Foreldrafélagið hefur séð um að fá hoppukastala í garðinn. Allir eru velkomnir bæði foreldrar, systkini sem og ömmur og afar og aðrir aðstandendur.  Kl. 11:45 verður samsöngur barnanna í garðinum sem og útskrift elstu barnanna.

Föstudaginn 1. júní verður sveitaferð á vegum foreldrafélagsins. Farið verður á Hraðastaði                      (í mosfellsdal)  eins og undanfarin tvö ár. Lagt verður af stað með rútu eða einkabíl frá Skerjagarði um kl. 13:00. Foreldrafélagið sér um að grilla og vonandi verðum við svo heppin að fá að sjá kind bera eins og við sáum í fyrra. Áætluð heimkoma er kl. 16:30. Eins og undanfarin ár væri gott ef foreldrar kæmust með. 
Mynd NR:2
Bakkafréttir

Á Bakka erum við byrjuð að vinna með fjöruna í hópastarfi. Í fjörunni er svo margt skemmtilegt sem hægt er að skoða og finna og vinna með. Börnin týna það sem þeim finnst áhugaverðast, síðan flokkum við það og greinum. Við ætlum síðan að mála mynd af fjörunni okkar og nota efniviðinn sem börnin týndu með.

Við erum einnig að læra allskyns þulur og lög. Elstu börnin eru að læra þuluna ,,Bokki sat á brunni,, og ,,Fuglinn í fjörunni,,. Yngri hóparnir tveir eru að læra ,,fingraþuluna,, (regnbogahópur) og ,,Græn eru laufin,, (Skerjagarðshópur) sem þau svo myndskreyta. 

Fréttir frá Bóli.

Á Bóli er verið að klára að vinna með litina og fjölskylduna.

Börnin á Bóli eru einnig að læra þulur og skemmtileg lög og eru þau svo dugleg. Þau eru að læra ,,Fingraþuluna,, og ,, Stígur hún við stokkinn,,. Þau eru einnig að syngja Maístjörnuna, Kvæðið um fuglana (snert hörpu mína), Sértu glaður og fleiri skemmtileg lög.

Við ætlum svo að reyna að vera rosa duglegar að setja inn þau lög (inn í söngtextar) sem við erum að syngja hverju sinni

Bestu kveðjur frá Bakka og Bóli
  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar