Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 Júní

29.06.2007 10:20

SUMARFRÍ

Hæhæ

Vorum að setja inn stundaskrá  og matseðil fyrir ágúst mánuð þar sem við erum öll að fara í sumarfrí

Við viljum svo bara senda ykkur okkar bestu sumarkveðjur og við vonum að allir eigi eftir að hafa það rosa gott í sumarfríinu og svo hittumst við bara hress og kát í ágúst.

Bestu kveðjur frá öllum á Skerjó

27.06.2007 11:41

Nýjar myndir frá útskriftarferð skólahóps og frá nestisdeginum.

Hæhæ

Vorum að setja inn nýjar myndir frá nestisdeginum sem var í gær. Þá komu börnin með nesti að heiman og borðuðm við nestið úti. Yngstu börnin á Bóli fóru út að skógarróló, eldri börnin á Bóli og börnin á Bakka fóru út á aparóló. Veðrið lék við okkur og allir skemmtu sér vel.

Einnig settum við inn myndir frá útskriftarferðinni hjá skólahópnum okkar en þau fóru út í Viðey. Það var rosa gaman hjá þeim og þá sérstaklega að fá að fara í ,,hraðbátinn,,  Þau fóru á veitingastaðinn úti í Viðey og fengu þar að borða og síðan skoðuðu þau sig um léku sér úti í náttúrunni.Þetta var mjög vel heppnuð ferð.

kv frá Bakka og Bóli

20.06.2007 13:33

Sumarhátið, snúðaskokk og fjöruferð-nýjar myndir

Hæhæ

Það eru komnar nýjar myndir frá sumarhátíðinni sem var 15. júní og snúðaskokkinu sem var 19. júní.

Sumarhátíðin gekk í alla staði vel og voru allir ánæðir eftir daginn. Börnin komu í furðufötum og er það alltaf mikið stuð hjá þeim. Við fórum í skrúðgöngu um hverfið og sungum á leiðinni. Börnin höfðu búið sér til kórónur sem þau voru með og nokkur börn bjuggu til hljóðfæri sem þau spiluðu á í skrúðgöngunni. Þegar við komum aftur í leikskólann var settur upp hoppukastali sem allir fengu að prófa og spiluð var músik útí garði og dönsuðu börnin úti og léku sér. Síðan var pylsupartý í hádeginu hjá henni Mombi okkar.   

Í gær var svo hið feykivinsæla snúðaskokk haldið. Þá hlaupa börnin smá hring í hverfinu mis langan eftir aldri. Þegar þau koma svo í mark þá fá allir gómsæta súkkulaðisnúða namm namm.
   
Eldri börnin á Bóli fóru líka í fjöruferð í gær. Það var rosa gaman og ekki síst vegna þess að þau fundu krabba í fjörunni. Hann var rosa stór og flottur og tóku þau hann með  í leikskólann.
  

kv Bakki og Ból

14.06.2007 16:58

Myndir frá hjólaferð skólahóps

Hæhæ

Vorum að setja inn nýjar myndir frá hjólaferðinni sem skólahópurinn fór í 12 júní. Ferðin heppnaðist mjög vel og skemmtu allir sér vel

kv frá Bakka

11.06.2007 11:25

Nýjar myndir í dag frá menningarferðinni hjá Bakka og útiveru á föstudaginn hjá Bóli

Hæhæ

Var að setja inn nýjar myndir í dag frá menningarferðinni sem börnin á Bakka fóru í í síðustu viku og útivera hjá börnunum á Bóli á föstudaginn.
Setti líka inn nýjar myndir á föstudaginn 8. júní.

        

kv frá Bakka og Bóli

08.06.2007 11:03

Nýjar myndir frá sveitaferðinni og fleira skemmtilegt

Hæhæ

Jæja þá erum við loksins búin að setja inn myndir frá sveitaferðinni síðastliðinn föstudag. Hún tókst í alla staði vel og skemmtu allir sér vel börn sem og fullorðnir. Það er alltaf jafn gaman að sjá hvað margir foreldrar sjá sér fært að mæta með börnunum sínum í sveitaferðina á miðjum föstudegi .

Elstu tveir árgangarnir á Bakka fóru í menningarferð í bæinn. Þau fóru upp í Hallgrímskirkjuturn og skoðuðu yfir Reykjavík, í Alþingisgarðinn og borðuðu þar nesti og fleira skemmtilegt.  Við setjum inn nýjar myndir frá þessum ferðum seinna í dag eða strax eftir helgi.

Við minnum svo bara á að í næstu viku verður Hjóladagur hjá skólahópnum á þriðjudaginn. Látum ykkur betur vita með tíma á mánudaginn.
Einnig verður sumarhátið hjá okkur á föstudaginn 15. júní. Þá mega börnin koma í furðufötum í leikskólann. 

Annars er bara sumarfílingur í okkur hér á Skerjó og allir dagar nýttir vel til útiveru.

P.s. Það væri rosa gaman að fá að heyra meira frá ykkur hér á síðunni þ.e. að kvitta í gestabókina eða skrifa álit á bloggið  

Sumarkveðjur Bakki og Ból.
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar