|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2007 Ágúst31.08.2007 19:00Hópaskipting, stundaskrár og dagskipulag komið inn á heimasíðuna.Hæhæ Vorum að setja inn á heimasíðuna hér til hægri, inn í ,,Bakki,, og ,,Ból,, hópaskiptingu í vetur, dagskipulag, stundaskrá vetrarins og stundaskrá mánaðarins. Stundaskrá september mánaðar er ekki komin inn en kemur í byrjun næstu viku. Það er kominn nýr matseðill fyrir september mánuð. kv Bakki og Ból 30.08.2007 13:14Foreldrar ath. - SkordýraþemaHæhæ
28.08.2007 10:28Loksins fréttir frá okkur :-)Hæhæ Loksins heyrist frá okkur hér á Skerjó eftir gott sumarfrí. Við vonum að allir hafi haft það rosa gott í sumarfríinu og bjóðum við nýja foreldra sérstaklega velkomna í hópinn . Nú er vetrarstarfið að hefjast að nýjan leik hjá okkur eftir skemmtilegt sumarstarf þar sem útivera hefur verið í aðalatriði. Það hafa orðið smávægilegar breytingar á starfsmönnum í hjá okkur, en ekki miklar sem betur fer .Hún Ásrún sem var á Bóli er að hætta og sest nú á skólabekk og óskum við henni velfarnaðar í skólanum (það er samt aldrei að vita nema hún verði eitthvað hjá okkur í vetur). Ragnhildur verður ekki hjá okkur á föstudögum eins og hún var síðastliðinn vetur þar sem hún ætlar að einbeita sér algerlega að náminu. Í staðin fyrir þessar frábæru konur koma aðrar frábærar í staðinn. Hún Helga leikskólakennari er byrjuð hjá okkur á Bóli og sér um deildarstjórn þar eftir hádegi. Annars er allt að komast á rétt skrið hjá okkur og erum við á Bakka byrjuð að vinna með skordýrin í þemastarfi. Börnin hafa skoðað bækur um skordýr og fóru þau svo í vettvangsferð út á skógarróló í leit að skordýrum. Þau bjuggu til skordýragildru sem þau grófu niður í jörðina og settu ýmislegt góðgæti í til að lokka skordýrin ofan í. Þetta þema er rétt að byrja hjá okkur og verður gaman að sjá hvað gerist næst . Það er svo gaman að sjá hvað börnin eru áhugasöm og spennt fyrir þessu.Skólahópurinn verður 3x í viku mánudögum, fimmtudögum og föstudögum. Sóldís og Inga munu vera með skólahópinn í vetur. Á Bóli eru aðlaganir nýrra barna í fullum gangi og ganga þær mjög vel. Eldri börnin á Bóli (börn fædd 2004) munu svo fylgja yngri börnunum á Bakka (börn fædd 2004) í þemastarfi og fleiru. Þau eru byrjuð að vinna með skordýrin í þemastarfi eins og yngri börnin á Bakka. Á haustin höfum við alltaf byrjað á því að taka vináttuna fyrir og verður engin breyting þar á þennan veturinn. Við munum flétta vináttunni inn í allt starfið hjá okkur til að allir kynnist vel og læri að umgangast hvert annað á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Við hlökkum til að fá að starfa með börnunum ykkar og ykkur foreldrunum í vetur og vonum að allir verði duglegir að kíkja á okkur hér á heimasíðunni og endilega að láta heyra í ykkur hér á síðunni, það er svo gaman að sjá og heyra að þið séuð að fylgjast með ![]() Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið hjá okkur. Bestu kveðjur frá okkur Skerjó.
Flettingar í dag: 132 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367723 Samtals gestir: 83301 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |