Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 September

26.09.2007 11:24

Leikskólinn lokaður föstudaginn 28. september

Foreldrar ath !

Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 28. september vegna námskeiðsdags starfsfólks.

kv frá Skerjagarði

18.09.2007 11:42

Vinátta, skordýr og tónlist

Hæhæ

Það er alltaf nóg að gera hjá okkur hér á Skerjó. Við erum enn að vinna með skordýraþemað.  Það er ýmislegt búið að vera að bralla í sambandi við það. Einn hópurinn á Bakka bjó t.d. til risastórann kóngulóarvef og risastórar kóngulær. Það er búið að fara í margar gönguferðir með stækkunargler og háfa að skoða skordýrin. 


Við erum líka að vinna með vináttuna og okkur sjálf. Börnin hafa verið að finna nöfn á hópana sína og heita þeir ýmsum skemmtilegum nöfnun, t.d. tígrisdýrahópur, kisuhópur, Deplahópur og svo eru nokkrir hópar eftir að finna nafn á sinn hóp. Þau hafa verið að teikna sjálfsmynd þar sem þau spá í hvernig þau líta út þ.e. að skoða sig í spegli áður en þau teikna sig. Við höfum tekið hópmyndir af þeim og ætlum svo að búa til vinakeðju með sjálfsmyndunum þeirra :-) Börnin búa svo til litla vinagjöf sem þau gefa hvert öðru á vinaballi sem haldið verður 24. september. 
     

Tónlistin er byrjuð með henni Berglindi og er alltaf jafn gaman að fara til hennar. Þar dönsum við saman t.d. kóngulóardans, við syngjum ný og gömul lög og gerum ýmislegt skemmtilegt saman. Berglind mun tengja tónlistina við það sem við erum að gera hverju sinni eins og t.d. núna erum við með skordýraþema og vinaþema og kennir hún þeima þá ný lög sem tengjast því og dansa. 

    

Við viljum svo bara minna á að það er lokað föstudaginn 28. september v/námskeiðsdags starfsfólks.

Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið
kv frá Bakka og Bóli

11.09.2007 11:58

Ýmislegt nýtt komið á heimasíðuna

Hæhæ

Vorum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið
        

Við vorum líka aðeins að breyta uppsetningunni á síðunni.
Það eru komnir sér tenglar fyrir Bakka og Ból og þar inn í eru ýmsar upplýsingar um starfið á deildinni t.d. hópaskipting, stundatöflur og söngtextar sem við erum að syngja (þ.e. sér söngtextar sem Ból er að syngja og sér sem Bakki er að syngja).
Einnig er komin nýr tengill um tónlistina með Berglindi tónlistarkennara. Innan hans er t.d. mynd af Berglindi og vonandi fljótlega smá upplýsingar um hana, skipting hópanna í tónlist á Bakka og Bóli og textar af lögum sem hún er að kenna börnunum.
Við erum líka búin að setja inn myndir af starfsfólkinu á Bakka og Bóli.

ATH!
Nú er tónlistin byrjuð með henni Berglindi tónlistarkennara og verðum við í Gleðigarði (kjallara) í tónlistinni í vetur.  Ból er á fimmtudögum og Bakki á föstudögum. Við erum búin að skipta börnunum niður í hópa í tónlistinni (sjá tengil -tónlist hér til hliðar) og er nauðsynlegt að börnin séu komin á réttum tíma ef þau eiga að ná tónlistinni. Það er ekki hægt að koma inn í  tónlistartíma þegar hann er byrjaður og ekki hægt að fara með næsta hóp á eftir. Ef börnin koma eftir að þeirra tími er byrjaður eða eftir að hann er búinn þá missa þau af tónlistinni þann daginn. Þess vegna er nauðsynlegt að skoða í hvaða hóp og á hvaða tíma barnið ykkar er.

Ef það er eitthvað sem ykkur dettur í hug að hægt sé að setja hér inn á heimasíðuna, einhverjar nánari upplýsingar sem þið viljið eða annað skemmtilegt, endilega látið okkur vita annað hvort  hér á síðunni eða ná tali af okkur beint.

Bestu kveðjur frá Bakka og
Bóli


09.09.2007 12:35

Námskeiðsdagur starfsfólks og foreldrafundur

Hæhæ

Þann 28. september (föstudagur) verður leikskólinn lokaður vegna námskeiðsdags starfsfólks.
  Stefnt er að því að 
fara á ráðstefnu á Akureyri undir yfirskriftinni  ?Ímyndunaraflið sviflétt og vegvíst - Leikur og listsköpun í skólastarfi."

Foreldrafundur verður svo haldinn á Skerjagarði þann                         17. október  kl. 20:30.
Farið verður yfir starfið og starfsfólk kynnt. 
Foreldrafélagið mun svo vera með kynningu á starfsemi félagsins.

Bestu kveðjur frá Skerjagarði



05.09.2007 21:51

Skólavottorð


Foreldrar athugið!

Þeir foreldrar sem eru með skólavottorð þurfa að skila því sem allra fyrst til hennar Ellu.


Bestu kveðjur frá Skerjó

04.09.2007 11:57

Stundaskrá fyrir september mánuð og nýjar myndir

Hæhæ

Þá er komin stundaskrá fyrir septemer mánuð.Þið finnið hana með því að fara inn í Bakka eða Ból eftir því á hvaða deild barnið ykkar er og þar stendur stundaskrá september.

Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.

kv Bakki og Ból
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar