|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2007 Október26.10.2007 17:38Stundaskrá fyrir nóvember komin á heimasíðuna.Hæhæ Þá er komin stundaskrá fyrir nóvember mánuð. Það verður nóg að gera í nóvember hjá okkur. Fimmtudaginn 1. nóvember ætlum við að hafa furðufata- og grímudag. Þá mega börnin mæta í furðufötum og/eða með grímur í leikskólann. Fimmtudaginn 15. nóvember verður svo hinn vinsæli nestisdagur. Þá mega börnin koma með nesti að heiman og borða í leikskólanum. Í lok mánaðarins eða 29. nóvember verður svo Dóta-og bangsadagur. Það er oft meira kósí fyrir minnstu krílin okkar að koma með bangsa frekar en dót á dótadegi. VIð höfum einnig sent ykkur stundaskránna á maili en ef þi hafið ekki fengið mail frá okkur látið okkur þá endilega vita. Það eru kannski einhverjar adressur sem eru ekki réttar hjá okkur og einnig ef þið hafið breytt um netfang eða þvíumlíkt og kannski gleymt að láta okkur vita. Ef þið hafið einhverjar skemmtilegar hugmyndir af uppákomudögum sem brjóta starfið okkar upp þá endilega látið okkur vita hér á síðunni ![]() kv Bakki og Ból 19.10.2007 12:04Takk fyrir góða mætingu á foreldrakaffið og fundinn :-)Hæhæ Við viljum bara þakka ykkur fyrir frábæra mætingu á foreldrakaffið og á foreldrafundinn. Það var nánast 100 % mæting á foreldrakaffið og finnst okkur frábært að sjá áhugann hjá ykkur foreldrum á starfi barna ykkar ![]() Það voru nokkur börn og foreldrar sem spurðu um uppskriftina af kókoskúlunum sem börnin útbjuggu fyrir foreldrakaffið og látum við hana fylgja með. Kókoskúlur 100gr smjör (smjörvi) 1 msk kakó 4 msk sykur 3 dl haframjöl 1 msk vatn Kókosmjöl til að velta kúlunum upp úr -Þetta er allt sett saman í skál (nema kókosmjölið) og hnoðað með höndunum. Búnar til kúlur úr og velt upp úr kókosmjölinu. Gott að setja aðeins í kæli áður en borið fram ![]() Góða helgi kv frá Skerjó 16.10.2007 14:20Munið foreldrakaffið og foreldrafundinn á morgunn miðvikudag.Foreldrar ath! Munið foreldarkaffið á morgunn miðvikudag á milli kl. 8-9 og 15-16. Boðið verður upp á veitingar sem börnin útbjuggu ![]() Einnig viljumvið minna á foreldrafundinn annað kvöld þ.e. miðvikudagskvöldið 17. okt. kl. 20:30. Vonumst til að sjá sem flesta bæði í kaffinu og fundinum kv frá okkur á Skerjó 09.10.2007 11:12Nýjar myndir í myndaalbúmið, foreldrakaffi og foreldrafundurHæhæ Jæja loksins eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið (öll myndaalbúmin sem birtast þegar þið opnið myndaalbúmið eru ný).Annars er bara allt gott að frétta af okkur hér á Skerjó. Við erum að leggja lokahönd á skordýraþemað þar sem okkur finnst áhuginn hjá börnunum hafa minnkað mikið. Það verður foreldrakaffi á miðvikudaginn 17. október á milli k. 8-9 eða 15-16, þar sem þig getið komið og skoðað verk barnanna sem tengjast skodýra- vina- og haustþemanu. Við munum svo athuga hvar áhugi barnanna liggur í framhaldi af því og það verður spennandi að sjá hvað við tökum fyrir næst. Við viljum svo bara minna á FORELDRAFUNDINN sem verður haldinn hér á Skerjagarði miðvikudagskvöldið 17. október kl.20:30 þar sem starfið verður kynnt, starfsfólk kynnt og svo mun foreldrafélagið kynna starfsemi þess. Við vonumst til þess að sjá sem flesta foreldra. Vorum að setja inn ný lög hjá Bakka og einnig er kominn matseðill fyrir október. kv Bakki og Ból 02.10.2007 14:16Dagskrá október mánaðarHæhæ Það er komin stundaskrá fyrir október mánuð inn á heimasíðuna. Í október æltum við á Bakka að fara á Nátturugripasafnið með Deplahóp og Eðlurnar í tengslum við skordýraþemað. Einnig verður bökunardagur hjá börnunum á Bóli og Leyniveisla skólahóps á Bakka. Þá munu börnin í skólahóp bjóða börnunum í veislu sem þau munu útbúa sjálf. Einnig ætlum við að hafa náttfataball og bangsadag í tengslum við alþjóðlegan bangsadag sem er í október. Þá koma allir í náttfötum í leikskólann og með bangsa líka. Þann 17. október ætlum við svo að hafa foreldrakaffi á deildunum á milli kl. 8-9 um morguninn og svo á milli kl. 15 og 16 seinnipartinn þannig að ællir ættu að finna tíma sem hentar til að komá og skoða það sem börnin hafa verið að gera og fá sér kaffisopa í leiðinni. Um kvöldið þann 17. verður svo foreldrafundur hér á Skerjagarði þar sem starfið verður kynnt sem og starfsfólk. Einnig mun foreldrafélagið vera með smá kynningu. Því miður eru ekki komnar neinar nýjar myndir inn á síðuna en vonandi gefst okkur tími í þessari viku til að setja inn myndir. kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 132 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367723 Samtals gestir: 83301 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |