Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 Nóvember

29.11.2007 13:18

Stundatafla fyrir desember og jólakort.

Hæhæ

Jæja þá er stundatafla fyrir desember mánuð komin inn á heimasíðuna. Við ákváðum einnig að prenta út eintök og setja í hólfin hjá börnunum þennan mánuðinn þar sem mikið er um að vera hjá okkur.
Við förum t.d. á kaffihús, höldum jólaball, kirkjuferð, bakstursdagur og fleira skemmtilegt. Annars ætlum við að vera í rólegheitum í desember fyrir utan þær ferðir sem við förum í. Við eru byrjuð að syngja jólalögin og vonandi náum við að setja þau inn á síðuna fljótlega. Við ætlum einnig að fara með tvo elstu árgangana á þjóðmynjasafnið og sjá jólasveinana en við höfum ekki sett ákveðna daga í það.

Það eru eitthvað af jólakortunum tilbúin sem þið hafið pantað, (en ekki öll). Annars ætlum við að reyna að vera búin að prenta út öll kortin í næstu viku. Endilega athugið hvort ykkar kort séu tilbúin og munið að greiða um leið  (2000kr pakkinn).
Viljum við svo þakka ykkur fyrir frábærar viðtökur á jólakortunum, þið eruð frábær

kv Bakki og Ból

26.11.2007 10:45

Jólakort-síðasti dagur til að panta

Foreldrar ath!

Það fer að verða síðast séns að panta jólakort eftir börnin ykkar. Við þurfum að vera búin að fá pöntunina í síðasta lagi í fyrramálið (þ.e. þriðjudagsmorgunn 27. nóvember).

Kv. Bakki og Ból

20.11.2007 10:49

Jólaball 7. desember og jólakort

Föstudaginn 7. desember verður haldið jólaball leikskólans í Frostaskjóli á milli kl. 14-16. Allir eru velkomnir þ.e. foreldrar, systkini, amma og afi. Jólasveinninn mætir og dansar í kringum jólatréið með börnunum og færir þeim nammipoka. Foreldrafélagið hefur svo afhent jólapakka fyrir hvert leikskólabarn þegar það fer heim.
Sá siður hefur verið að börnin hafa verið sótt í leikskólann kl. 13:30 og svo hittast allir hressir í Frostaskjóli og eiga góðan dag saman.
Foreldrar á Bakka hafa séð um veitingar fyrir fullorðna og foreldrar frá Bóli fyrir börnin.

Við stefnum á námsferð í vor að kynna okkur Reggio Emilia. Einn liður í fjáröflun okkar eru jólakort eftir börnin ykkar. Við skönnum inn myndir eftir barnið/börn ykkar og prentum þau á góðan pappír. Munum við selja jólakortin 12 í pakka á 2000 kr. Þetta hefur vakið lukku og verið vel tekið hjá þeim leikskólum sem hafa gert þetta J Gott væri að fá pantanir frá ykkur sem fyrst. Það er kominn listi á töflurnar hjá Bakka og Bóli þar sem þið getið skráð niður fjölda af pökkum sem þið viljið fá, ef þið hafið áhuga

Kv Bakki og Ból

13.11.2007 11:45

Nýjar myndir og fleira

Hæhæ

Jæja loksins heyrist frá okkur hér á Skerjó   Við erum aðeins byrjuð í undirbúningi fyrir jólin en það er jú bara rétt rúmur mánuður til jóla hohohó..   Eins og fyrri jól hafa börnin útbúið jólakort úr endurunnum pappír og erum við byrjuð að vinna í honum. Það er mjög skemmtilegt ferli sem allir fá að taka þátt í og útbúa sinn eigin pappír.

Annars erum við að vinna með tjáningu og framkomu og eru börnin að læra ýmsar skemmtilegar vísur og lög. Nú erum við að læra lagið um hana ,,Siggu gömlu,, (bæði börnin á Bóli og Bakka). Við erum búin að setja hana hér inn á síðuna undir Bakki -söngtextar og Ból-söngtextar þannig að nú getið þið sungið heima með börnunum ykkar

Fuðrufataballið sem var í byrjun mánaðarins var vel heppnað og mættu börnin í skemmtilegum búningum og skemmtu sér vel.
Við villjum svo bara minna á nestisdaginn sem verður næsta fimmtudag en þá mega börnin koma með nesti að heiman og borða í leikskólanum. Við viljum bara minna á að koma með hollt og gott nesti.

Hann Sigurvin frá Neskirkju kemur alltaf til okkar 1x í mánuði (hann kom í dag þriðjudag). Hann segir börnunum sögu, syngur með þeim og spjallar við þau. Einnig koma Engilráð, Rebbi refur og fleiri skemmtilegir vinir með honum og taka þátt í stundinni.

Við viljum svo bara minna ykkur á að vera alltaf með nóg af aukafötum í töskunni-hafa alltaf með pollagalla, stígvél, kuldagalla og kuldaskó, hlýja peysu, vettlinga, húfu og sokka  ALLA DAGA.
Það getur verið pollagallaveður fyrripartinn en svo kuldagallaveður seinnipartinn eða öfugt

Við vorum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið. Endilega kíkið á þær

Bestu kveðjur frá okkur á Skerjó

  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar