Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 Desember

21.12.2007 09:54

Gleðileg jól

Kæru foreldrar og börn

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þökkum fyrir frábæra samvinnu á árinu sem er að líða. Hafið það sem allra best um jólin og svo sjáumst við hress og kát á nýju ári.

Jólakveðja frá okkur öllum á Skerjagarði.

12.12.2007 11:09

Það er búið að vera gaman í desember

Hæhæ

Jæja þá er desember langt liðinn og erum við hér á Skerjó búin að eiga rólega og góða daga. Jólaballið heppnaðist í alla staði vel og var mæting rosalega góð og skemmtu allir sér vel. Við vorum með bökkunardag á mánudaginn þar sem börnin bökuðu piparkökur  Við höfum einnig breytt eldhúsinu okkar í kaffihús þar sem yngstu þrír árgangarnir (2006, 2005 og 2004) fengu kakó, kleinur og piparkökur.  Tveir elstu árgangarnir fara í Húsdýragarðinn á kaffihús þar.  Á morgunn verður svo kirkjuferðin þar sem presturinn í Neskirkju tekur á móti okkur.

Næsta vika verður svo í rólegheitum hjá okkur, en við ætlum að fara með tvo elstu árgangana á Þjóðminjasafnið að sjá jólasveinana einhvern daginn. 

Við erum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið frá jólaballinu, kaffihúsinu, bökunardeginum og fleira.

kv frá Skerjó
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar