Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Janúar

29.01.2008 10:32

Ótitlað

Hæhæ

Það er komin ný stundatafla fyrir febrúar mánuð (inn í Bakka og Bóli). Ég sendi líka stundatöflurnar á e maili til ykkar.
Í febrúar verður margt skemmtilegt að gerast. Í byrjun febrúar er bolludagur, sprengidagur og öskudagur, en á öskudaginn mega börnin koma í búningum í leikskólann.Við sláum poppið/snakkið úr pokanum hehe í staðin fyrir köttinn úr tunnunni  og höfum öskudagsball þar sem við förum í skemmtilega leiki og dönsum. Munið bara að láta börnin koma með aukaföt með sér ef við förum út að leika þann daginn.

Við ætlum síðan að hafa vasaljósadag þar sem börnin mega koma með vasaljós að heiman. við ætlum að hafa slökkt í leikskólanum allan þann daginn og vera bara með vasaljós til að lýsa okkur.

VIð ætlum líka að hafa bökunardag þar sem við ætlum að baka eitthvað gott namm namm

Í lok mánaðarins verður síðan hljóðfæradagur en þá mega börnin koma með eitthvað hljóðfæri að heiman og sýna hinum börnunum það. Það eru kannski ekki allir sem eiga hljóðfæri og þá er það bara allt í lagi þá fá þau bara að prófa hjá hinum.

Á föstudaginn héldum við þorrablót hér  á  leikskólanum . Það var gaman að sjá hvað mörg börn mættu í lopapeysu í leikskólann. Börnin fengu að smakka ýmsan mat sem þau höfðu ekki smakkað áður eins og til dæmis, hákarl, súran hval, sviðsultu og síðan var líka slátur, harðfiskur, rúgbrauð og svo auðvitað grjónagrautuinn hennar Mombiar fyrir þau sem ekki vildu smakka á þorramatnum. Börnin voru auðvitað misdugleg að smakka, þar sem sumir smökkuðu á öllu á meðan aðrir vildu ekki smakka neitt, þrátt fyrir miklar yfirlýsingar um að ætla að smakka á öllu  þegar við vorum að ræða um þorramatinn
Börnin voru búin að búa sér til þorrahatta sem þau höfðu á sér og gerði það mikla stemmingu. Þegar við voru búin  að borða hittust allir inn á Bóli í sameiginlegri samverustund þar sem við sungum þorralög og Helga og Þórhildur komu í peysufötum og sýndu börnunum hvernig fötin voru í gamla daga. En það voru einhverjir krakkar sem sögðu eftir á að Helga og Þórhildur hefðu verið í einhverjum grímubúningum hehe  En þetta var mjög skemmilegt. 
     

Í sambandi við hópastarfið þá eru kisuhópur, tígrisdýrahópur og hópurinn hennar Helgu á bóli búin að vera að skoða og rannsaka vatnið. Þau settu vatn í vatnskar og settu ýmsa hluti ofan í og skoðuð hvort þessir hlutir myndu sökkva eða fljóta.

Eðlurnar og Deplahópur eru að skoða og hlusta á ýmis hljóð. Deplahópur vildi mála eða lita hljóð í umhverfinu. Það voru ýmsir hlutir sem komu úr þeim teikningum t.d. eldflaugar, eldfjall, vélmenni, sprengjur og fleira. síðan klipptu þau út hluti sem gefa frá sér hljóð úr vikublöðum og límdu á eitt stórt blað.
Eðlurnar fóru og hlustu á ýmis hljóð í umhverfinu okkar. Þau fóru t.d niður í eldhús, út og í kjallarann þar sem Deplahóður var að vinna.

Það er sem sagt nóg að gera í hópastarfi á Bakka og Bóli. Yngri börnin á Bóli eru svo að fara að læra um litina og skoða þá betur.

Það eru líka nýjar myndir komnar inn á heimsíðuna.

kv frá Skerjagarði

22.01.2008 11:26

Körfur í fataklefanum, þemastarf og spilaog púsldagur á fimmtudaginn

Hæhæ

Við viljum byrja á minna á körfurnar sem eru komnar í fataklefann hjá Bakka. Þær eru til að geyma í aukafötin sem voru vanalega í töskunum þ.e. nærföt, sokka, sokkabuxur, peysu og buxur. Þær eru ekki til að geyma vettlinga, ullarsokka og húfur í.  
Við höfum sett lítinn miða á hverja körfu og þegar það vantar eitthvað í körfuna þá merkjum við x við það sem vantar (nærbuxur, nærbol, sokka, sokkabuxur, peysu eða buxur). Þá komið þið með það sem vantar næsta dag og setjið í körfuna og strokið út x-ið. Þá vitum við að það vantar ekki neitt.


Föstudaginn 25. janúar verður haldið þorrablót hér á Skerjagarði en þá fáum við að smakka á þorramat namm namm og eru börnin mjög spennt að fá að smakka hákarl hehe. Börnin hafa verðið að gera þorrahatta sem þau skreyta og hafa á þorrablótinu. Það væri einnig mjög gaman ef þau ættu lopapeysu sem þau gætu mætt í þennan dag . Við höfum einnig verið að læra lagið Þorraþræll (Það er fost á Fróni...).

Annars er allt komið á fullt skrið með þemað. Kisuhópur, Tígrisdýrahópur og hópurinn hennar Helgu á Bóli þ.e. börn fædd 2004 á Bakka og Bóli eru búin að vera að skoða vatnið og gera ýmsar tilraunir með það. Þau gerðu einnig hugmyndavef þar sem þau sögðu frá því sem þau vissu um vatnið. Við höfum líka verið að syngja lög um vatnið t.d. Droparnir við pollinn og Rigning hér og rigning þar og fleiri skemmtileg lög.
      

Eldri hóparnir á Bakka þ.e. Eðlurnar og Deplahópur eru að skoða og hlusta á ýmis hljóð í umhverfinu okkar. Við höfum verið að syngja ýmis lög þar sem einhverskonar hljóð koma fram í.  Þau gerðu einnig hugmyndavef þar sem þau sögðu frá þeim hljóðum sem þau mundu eftir og þegar þau voru komin á skrið ætluðum þau aldrei að geta hætt þau vissu um svo mörg og mismunandi hljóð, t.d. ýmis dýrahljóð, hljóð í hljóðfærum, hljóð sem þau heyrðu inni í  leikskólanum og úti og mörg mörg fleiri.  
    

Skólahópurinn fór í heimsókn í Melaskóla í síðustu viku þar sem þau fengu að fara á bókasafnið og í Selið.Þau hittu þar alla krakkana sem voru hér á Skerjagarði í fyrra og eru nú í 1. bekk og var það mjög skemmtlegt. Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og síðan fengu þau að fara heima með skólabílnum.
      

Berglind tónlistarkennari hefur verið að kenna börnunum nýtt lag um hana Ingu Dóru og er textinn af því lagi kominn inn á heimasíðuna (tónlist).

VIð viljum svo minna á spila og púsldaginn á fimmtudaginn 24. janúar en þá mega börnin koma með spil eða púsl að heiman. Yngstu börnin á Bóli mega koma með bangsa í staðin fyrir spil eða púsl.

Og svo eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu.


kv frá Bakka og Bóli


15.01.2008 12:35

Margt að gerast á Skerjó

Hæhæ

Það er allt gott að frétta af okkur á Skerjó. Það er mikið búið að vera að gera hjá okkur í síðustu viku og í gær. Tveir elstu árgangarnir á Bakka fóru í Gerðuberg að sjá sýningu eftir Sigrúnu Eldjárn um Málfríði, Kugg og vini þeirra. Þetta var mjög skemmtileg sýning og höfðu krakkarnir mikið gaman af. Þau fengu að keyra bílinn hennar Málfríðar og fara upp í Geimfarið hennar og margt fleira skemmtilegt.  Í leiðinni var kíkt á bókasafnið í Gerðubergi og skoðaðar nokkrar bækur. 
    

Skólahópurinn fór svo á Árbæjarsafnið í gær að skoða gömlu húsin, leikföngin og allt gamla dótið sem notað var í gamla daga. Sjá myndir í myndaalbúminu. 
    
 
Börnin á Bóli höfðu bökunardag í síðustu viku þar sem þau bökuðu kanelsnúða handa öllum. Þetta var mjög skemmtilegt og fengu þau að taka þátt í öllu ferlinu. Þau fengu að brjóta eggin, setja hráefnið í skál, fletja út og rúlla upp og allt það sem tilheyrir í kanelsnúða bakstri. Og ekki skemmdi góði ilmurinn í húsinu og snúðarnir voru rosalega góðir namm namm. 
    

Nú erum við að byrja í þemastarfi á Bakka og á Bóli og hefur verið ákveðið að taka fyrir vatnið með börnunum sem eru fædd 2004 og hljóð og hljóðfæri með elstu tveimur árgöngunum (2003-2002). Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og fróðlegt að sjá hvernig þetta þema á eftir að þróðast hjá hverjum hóp fyrir sig. Þetta er mjög vítt svið og geta hóparnir farið í margar áttir með viðfangsefnið þegar líður á.  Við erum að byrja að leggja inn bækur og lög sem tengjast þessum viðfangsefnum.
Börn fædd 2005 á Bóli fara í litina núna í þemastarfi.

Bókadagurinn
sem var á fimmtudaginn í síðustu viku heppnaðist mjög vel og var mikið lesið þann daginn. Börnin voru mjög spennt að láta lesa úr sinni bók og sátum við lengi í einu og lásum og allir sátu mjög áhugasamir að hlusta á hverja bókina á eftir annarri
Börnin mega koma með bækur að heiman hvenær sem er. Okkur finnst mjög gaman að fá nýjar bækur til að lesa, en það þarf bara að muna að merkja bækurnar vel þannig að þær komist til skila.

Það gleymdist að setja inn á matseðil og stundaskrá að 25. janúar verður þorrablót hér á leikskólanum þar sem við munum fá að smakka á þorramat namm namm.  Það væri mjög gaman ef börnin gætu komið í lopapeysum í leikskólann þann dag  (ef þau eiga) og verða svolítið þjóðleg í lopapeysum að borða íslenskan þorramat.

kv Bakki og Ból



08.01.2008 11:24

þemastarf og körfur í fataklefa

Hæhæ

Jæja þá er starfið allt að komast á rétt skrið eftir gott jólafrí. Við byrjuðum í þemastarfi aftur í þessari viku.  Við settum inn á janúarstundaskránna að við ætluðum að taka fyrir álfa og tröll, en okkur hefur snúist hugur um það þar sem við tókum þetta sama þema fyrir ári síðan með þessum sömu börnum.  Nú leggjum við höfuðið í bleyti og hlustum á börnin og sjáum hvað þau hafa áhuga á að skoða 

Nokkur börn af Bakka fóru með Berglindi tónlistarkennara að syngja fyrir aldraða á Vesturgötunni síðastliðinn föstudag. Þau sungu nokkur jólalög og fleiri skemmtileg lög sem þau hafa lært hjá Berglindi. Þeim var tekið rosalega vel og skemmtu sér og öðrum vel  . Við vonumst til að fá að fara aftur með Berglindi og syngja og þá munu önnur börn fá að vera með. (sjá fleiri myndir í myndaalbúminu).

    
Nú hafa verið settar körfur í hólfin hjá börnunum ykkar og eru þær hugsaðar til þess að setja aukaföt í þ.e. nærföt (nærbuxur og bol), sokka/sokkabuxur, peysu, buxur. Þessar körfur eru ekki til þess að geyma vettlinga, húfur og þess háttar í. Þetta er gert til þess að þið foreldrar geti fylgst betur með hvað vantar hjá börnunum ykkar. Við munum setja miða á körfurnar þar sem við merkjum við þegar það vantar eitthvað í körfuna og þá getið þið komið með hrein aukaföt daginn eftir. Við vonumst til að þetta getið hjálpað til við að hafa alltaf nóg af aukafötum fyrir börnin ykkar því að það er alltaf leiðinlegt að blotna og hafa ekki nein aukaföt til að fara í og við eigum ekki til aukaföt á börnin 

Við viljum svo minna á bókadaginn sem verður á fimmtudaginn 10. janúar en þá mega börnin koma með bækur að heiman og munum við reyna að lesa sem flestar bækur fyrir þau.  Það er alltaf gaman að fá nýjar bækur til að lesa.

Vorum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið og loksins eru komin nokkur gullkorn líka

kv Bakki og Ból

02.01.2008 14:07

Stundaskrá fyrir janúar 2008

Hæhæ

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamla árið.

Það eru komnar stundaskrár fyrir janúar inn á heimasíðuna inn í Ból og Bakki.

Í janúar ætlum við að hafa bókadag og mega þá börnin koma með bækur að heiman og við reynum að lesa sem flestar bækurnar.
Einnig ætlum við að hafa spila og púsldag og mega börnin þá koma með spil eða púsl að heiman. Fyrir börnin sem eru fædd 2005 og 2006 höfum við í staðin bangsadag þar sem þau eru kannski ekki mikið farin að spila.

kv Bakki og Ból
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar