Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Febrúar

26.02.2008 11:47

Hljóðfæradagur á fimmtudaginn, hópastarf og TMT.

Hæhæ

Viljum byrja á að minna á hljóðfæradaginn sem verður fimmtudaginn 28. febrúar en þá mega börnin koma með eitthvað hljóðfæri að heiman (ef þau eiga). Þau sem ekki eiga hljóðfæri fá örugglega að prófa hjá þeim sem koma með og svo eigum við líka einhver hljóðfæri hér á leikskólanum.

Í síðustu viku var bökunardagur á Bakka og bökuðu yngri börnin okkar kanelsnúða með hjálp Söru, Kristínar, Hildar og Ingu Birnu. Þetta voru alveg ljúfengir snúðar sem þau bökuðu. 
      

Það er allt á fullu í hópastarfí hjá öllum hópum.
Vatnið:
Kisuhópur og tígrisdýrahópur ásamt hópnum hennar Helgu á Bóli hafa verið að búa til báta úr ýmsum efnivið sem þau fundu sér sjálf. Þau ætla að prófa að láta þá í
vatn og athuga hvort þeir fljóti eða sökkvi.

Hljóð:
Eðlurnar hafa verið að búa til eina stóra trommu sem þau máluðu og skreyttu. Deplahópur var að skoða myndir af ýmsum hljóðfærum og völdu þau sér síðan eitthvað hljóðfæri sem þeim langar til að búa til. Þau teiknuðu sitt hljóðfæri á blað og síðan ætlum við að reyna að búa þau til á næstu vikum. (ef þið lumið á gömlum skókössum þá væri frábært að fá nokkra kassa til að búa til gítar ).

TMT:
Táknin sem við erum að læra þessa vikuna eru: mamma, pabbi, dúkka og bíll.
Það hangir blað á töflunni í fataklefanum á Bakka með myndum af táknunum sem við erum að læra.

Það eru líka komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið

kv Bakki og Ból

19.02.2008 11:40

Starfsdagur og námskeiðsdagur, hreinsunardagur, opið hús.

Hæhæ

Við viljum byrja á að minna á starfsdag og námskeiðsdag sem við munum hafa 13 og 14 maí (þ.e. þriðjudagur og miðvikudagur eftir hvítasunnnu) og verður þá lokað hér á leikskólanum.

Það verður svo hreinsunardagur hér á Skerjagarði laugardaginn 17. maí en þá mæta foreldrar og börn og taka til hendinni hér í leikskólanum og eiga góðan dag saman.

Þann 24. maí verður svo Opið hús og útskrift elstu barnanna hér á Skerjagarði. Þá verða til sýnis verk barnanna frá vetrinum sem og ljósmyndir úr starfinu.

Í síðustu viku var vasaljósadagur og heppnaðist hann mjög vel. Það komu allir með vasaljós og höfðum við slökkt hér á leikskólanum þannig að skemmtilegra var að leika með vasaljósin. 
  
Í sambandi við hópastarf og þema þá eru yngstu börnin á Bóli að skoða bláa litinn. Þau hafa verið að lita mikið með bláum lit þ.á.m á álpappír. Í lokin þegar þau eru búin að skoða bláa litlinn endum við þemað með bláu balli þar sem allir mæta í einhverju bláu. Það verður auglýst síðar.
  

Næsti árgangur þ.e. börn fædd 2004 á Bakka og Bóli eru enn að rannsaka vatnið. Þau hafa verið að setja allskonar liti út í vatnið og séð hvernig það breytist. Þau hafa einnig skoðað vatn með allskonar skrauti í á myndvarpa og séð það á veggnum. Það þótti þeim mjög skemmtilegt. Þar sem þau hafa verið að setja allskonar liti út í vatnið hafa þau í leiðinni verið að litablanda þ.e.séð hvernig litirnir breytast þegar þeir eru settir saman. T.d. ef blár og gulur eru settir saman þá kemur út grænn. Þetta finnst þeim mjög áhugavert. 
  

Elstu tveir árgangarnir eru að hlusta á ýmis hljóð  í umhverfinu sem og allskonar tónlist og reyna að túlka hana. Þau hafa verið að hlusta á ýmsa músik frá framandi löndum og ýmis tónverk eins og Pétur og úlfurinn, tónverk um Þrumur og eldingar ásamt fleiru. Þau hafa teiknað myndir um leið og þau hlusta t.d. Eðlurnar hlustuðu á Pétur og úlfinn og teiknuðu myndir um leið og Deplahópur hlustaði  á tónverkið  ,,Þrumur og eldingar,, og teiknuðu mynd um leið. 
  

Við höfum verið að leggja inn tákn með tali (TMT) bæði á Bakka og Bóli. Börnin hafa mikinn áhuga á þessu og eru alltaf að æfa sig þar sem við erum með myndir af táknunum ásamt mynd af hlutinum upp á vegg hjá okkur þar sem þau geta alltaf skoðað táknin. Þau hafa flest fengið sín eigin tákn sem við notum ásamt því að kalla nafnið þeirra. Við leggjum inn 4 tákn á viku og eru þau mjög fljót að læra þau hvort sem þau eru 3. eða 6 ára. Í þessari viku lærðum við táknin: Vindur, snjór, sleði og róla.
Við höfum einnig sett upp á töfluna niðri í fataklefa þau tákn sem við erum að læra hverju sinni fyrir ykkur foreldra (þannig að þið getið æft ykkur líka). Við ætlum að reyna að setja hér inn á heimasíðuna þau tákn sem við erum að læra en eigum bara eftir að finna út hvernig við getum það. En vonandi tekst það sem fyrst.

Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið.

kv frá Bakka og Bóli

11.02.2008 13:19

Vísindasmiðja í Ráðhúsinu,Öskudagurinn og Hlynur Bangsi

Hæhæ

Síðastliðinn föstudag fór skólahópurinn okkar í vísindasmiðju í anda Rggio Emilia í Ráðhúsinu. Þarna var verið að skoða ljós og skugga og til þess notaðir myndvarpar og ljósaborð. Þarna var allskyns efniviður sem börnin gátu prófað sig áfram með og rannsakað í sambandi við ljósið.
Það eru myndir í albúminu frá ferðinni og einnig getið þið séð fleiri myndir á www.roggur.blog.is
Þetta var mjög skemmtileg ferð og voru krakkarnir mjög áhugasamir að prófa sig áfram með hlutina og voru öll til fyrirmyndar  (enda ekki að búast við öðru).
    
Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur hér á Skerjagarði með öskudagsballi þar sem börnin mættu í hinum ýmsu búningum. Gaman var að sjá hvað börnin voru í mismunandi búningum. ,,Snakkið var slegið úr pokanum,, og sungin skemmtileg lög og svo var auðvitað slegið upp dansleik þar sem allir dönsuðu og skemmtu sér vel. Þegar yngstu börnin á Bóli fóru að borða þá færðu eldri börnin sig upp á Bakka og fórum við í ýmsa leiki þar eins og ásadans, stoppdans og hókí pókí. Síðan var pylsupartý í hádeginu og allir borðuðu á sig gat.

Við viljum líka þakka öllum fyrir stuðninginn sem keyptu kleinur af okkur á föstudaginn. Þetta heppnaðist mjög vel og ætlum við að gera þetta aftur fljótlega.

VIð á Bakka viljum síðan aðeins minna á hann Hlyn, bangsann okkar á Bakka Hann Hlynur er mikill vinur barnanna á Bakka og fá þau að taka hann með sér heim öðru hverju og þá í eina nótt í einu nema um helgi sé að ræða þá fer hann heim á föstudegi og kemur á mánudegi. Með Hlyni fylgir bók sem gaman er að þið foreldrar  gætuð skrifað í hvað gert var á meðan Hlynur var í heimsókn hjá ykkar barni. Sumir hafa tekið myndir og límt í bókina og er það mjög gaman en alls ekki nauðsynlegt. Hann Hlynur á gulan poka sem hann er í og setjum við pokann í hólfið hjá því barni sem á að fara með hann heim hverju sinni. Einnig höfum við sett miða á körfuna þar sem stendur með hverjum Hlynur er að fara heim. Við viljum síðan bara minna á að koma með Hlyn aftur daginn eftir í leikskólann því að það er mikill spenningur að fá hann með sér heim. 

05.02.2008 11:44

Öskudagur og Tákn með tali (TMT)

Hæhæ

Á morgunn miðvikudag er öskudagur og mega börnin þá koma í búningum eða náttfötum í leikskólann. Við viljum bara minna á að takmarka aukahluti þar sem þeir geta týnst í leikskólanum.

Nú eru börnin á Bakka byrjuð að læra Tákn með tali (TMT). Við leggjum inn 3-4 ný tákn í hverri viku og erum við búin að læra táknin gulur, rauður, grænn og blár. Í gær lærðum við svo táknin að leika sér, syngja og púsla. Börnin eru mjög spennt fyrir þessu og mjög dugleg að læra ný tákn. Við munum setja upp blað í fataklefanum með þeim táknum sem við erum að læra hverju sinni þannig að þið foreldrar geti fylgst með og einnig æft ykkur . Einnig hafa eldri börnin á Bakka valið sér sitt tákn. Yngri börnin munu svo velja sér sín tákn fljótlega. Ef einhverjar spurningar vakna í sambandi við þetta þá endilega spyrjið okkur

Það eru komnar nýjar myndir í m yndaalbúmið.

kv Bakki og Ból
  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar