Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Mars

28.03.2008 12:01

Foreldrafundur miðvikudaginn 2. apríl

Foreldrafundur

Aðalfundur foreldrafélags Skerjagarðs verður haldinn í Skerjagarði miðvikudaginn 2. apríl kl. 17:30

Dagskrá

17:30 Venjuleg aðalfundarstörf
18:00 Eftir fundinn verður Helga Þórunn Arnardóttir, félagsráðgjafi hjá Vesturgarði með kynningu á námskeiðinu: ''Uppeldi sem virkar-færni til framtíðar'' sem Vesturgarður, þjónustumiðstöð Vesturbæjar heldur.

Vonumst til að sjá sem flesta foreldra

18.03.2008 10:26

Gleðilega páska

Hæhæ

Stelpudagurinn sem var 13. mars heppnaðistí alla staði vel. Stelpurnar mættu allar mjög fínar í leikskólann og létu strákana dekra við sig  Strákarnir bökuðu muffins fyrir stelpurnar og útbjuggu strákarnir á Bakka perluarmbönd handa stelpunum. Stelpurnar á Bakka fóru allar niður í kjallara og bjuggu sér til prinsessukórónur í tilefni dagsins. Eftir hádegi fengu stelpurnar að vera inni að dúlla sér á meðan strákarnir fóru út að leika. Í kaffitímanum buðu svo strákarnir stelpunum muffins og gáfu þeim armböndin.
VIð viljum svo minna á strákadaginn sem verður 27. mars eða fimmtudaginn efir páska.
     

Þann 14. mars fóru Eðlurnar og Deplahópur í ferð í Gerðuberg að sjá sýningu sem heitir ,,Spor regnbogans,,. Þetta var leikbrúðusýnig með flautuleik um litina, tilfinningar og tónlist. Börnin áttu að búa til grímur og koma með á sýninguna og bjuggu allir til sína grímu og höfðu hana eins og þau vildu og voru þær mjög skrautlegar og skemmtilegar. Fengu þau mikla athygli fyrir þessar flottu grímur á sýningunni. Börnunum fannst sýningin mjög skemmtileg en skrýtið að það var ekkert talað allan tímann, bara spilað á flautu og leikið. Þegar sýningin var búin fengu börnin að hitta leikarana og spjalla við þær um sýninguna. Við skoðuðum einnig aðra sýningu sem var í Gerðubergi þar sem við sáum ýmis gömul hljóðfæri og ýmislegt tengt þeim.  Þegar við vorum búin að skoða hljóðfærin fórum við á kaffihúsið í Gerðubergi og fengum safa og smáköku áður en við lögðum af stað aftur á leikskólann en strætóferð upp í Gerðuberg tekur 40 mín þannig að það var mjög gott að fá pínu í magann áður en við fórum í strætó til baka. 

    

Við viljum svo þakka ykkur fyrir frábæran stuðning með því að kaupa af okkur servíettur og kerti. Þið eruð frábær.

Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið. Það eru myndir úr ferðinni í Gerðuberg, frá stelpudeginum, páskaföndri og fleira.

Við óskum ykkur gleðilegra páska og hafið það sem allra best í páskafríinu. 
    

11.03.2008 10:58

Nóg að gera :-)

Hæhæ

Það er smávegis breyting á stundatöflunni á Bakka. Við áttum að fara á Sinfoníuna miðvikudaginn 26. mars en því var breytt og förum við í staðinn föstudaginn 28. mars. Þetta er ferð fyrir börn fædd 2002 og 2003. Þið getið farið inn á
www.sinfonia.is og skoðað um hvað þetta verk er sem við erum að fara að sjá. Það heitir Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina. Við ætlum að undirbúa börnin vel fyrir þessa ferð þannig að þau fái sem mest út úr ferðinni.

Næstkomandi föstudag þ.e. 14. mars ætla Deplahópur og Eðlurnar að fara á sýningu í Gerðubergi í tengslum við hópastarfið þ.e. hljóðið. Það eru tvær sýningar í gangi þar núna sem tengjast okkar þema. Fyrri sýningin er -Hljómfagurt stefnumót tónlistarfólks og hljóðfærasafnara. Það getum við fengið að sjá ýmis hljóðfæri gömul og ný. Hin sýningin er- Strengjaleikhúsið flytur flautu- og leikbrúðuverkið Spor regnbogans fyrir leikskólabörn. Verkið fjallar um tónlist, tilfinningar og liti regnbogans. Börnin taka virkan þátt í sýningunni með þvi að koma með grímur sem þau munu gera hér í leikskólanum, sveifla og hreyfa litbönd og syngja saman lokalag sýningarinnar. Sjá meira  um báðar þessar sýningar á 
www.gerduberg.is.

Annars er búið að vera nóg að gera hjá okkur á Skerjó.
Skólahópurinn er búinn að vera á miklu flakki síðustu daga. Föstudaginn 7. mars fóru þau í heimsókn í Melaskóla og fengu að fara í leikfimistíma þar með 1. bekk. Þetta er í tengslum við samstarf Melaskóla og leikskólanna. Börnin mættu með leikfimisföt og tóku virkan þátt í tímanum.
 
          
Í gær 10. mars bauð Sara Elísabet og mamma hennar skólahópnum í heimsókn heim til Söru og fengu börnin smá fræðlu um Kína og um ýmsa hluti í tengslum við KínaÞau fengu að skoða allskonar dót frá Kína og sýndi Sara þeim hvernig ætti að nota það. Þau prófuðu að borða með prjónum, þau hlustuðu á kínverka músík og horfðu á mynd um ferðalag Söru til Kína sem hún fór í á síðasta ári. Allir fengu að lita myndir úr dýrahringnum þ.e. fengu það dýr sem tengist því ári sem þau eru fædd. Þau eru t.d. fædd 2002 og það er hestur. Við eigum örugglega eftir að vinna meira með þetta í leikskólanum.
Þetta var rosalega skemmtileg heimsókn og þökkum við kærlega fyrir okkur. 
        

Bókasafnsferð á Bóli. Nokkur af elstu börnunum á Bóli fóru á bókasafnið í síðustu viku. Þetta var mjög skemmtilegt og skoðuðu þau bækur og léku sér í barnahorninu þar. Þetta var í fyrsta skiptið sem sum af þessum börnum fara á bókasafnið með leikskólanum og jafnvel í strætó.
    
Hópastarf.

Hljóðið:
Eðlurnar bjuggu til stórt hljóðfæri í síðasta hópastarfstíma. Þau skírðu það páskagítar  (sjá myndir)
Deplahópur hlustaði á músik og síðan fengu allir blokkflautu sem þau fengu að spila á. Einn spilaði í einu hratt eða  hægt og börnin dönsuðu í takt við flautuspilið.

Vatnið:
-Kisuhópur á Bakka kláraði bátana og prófaði að láta þá sigla á vatni.
-Tígrisdýrahópur málaði blómapotta sem þau ætla að setja fræ í eftir páska.
-Kisu og hundahópur á Bóli (hópurinn hennar Helgu) byrjaði að gera einn stóran bát  úr pappa. 
-Yngstu börnin á Bóli eru að vinna með gula litinn.

TMT
Í þessari viku lærum við táknin
duglegur, útigalli, húfa og kalt.

Við viljum svo minna á fimmudaginn er stelpudagur og mega stelpurnar þá koma fínar í leikskólann og ætla strákarnir að dekra aðeins við stelpurnar og baka fyrir þær.

Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið.

kv Bakki og Ból

04.03.2008 11:00

Stundaskrá og matseðill fyrir mars og fleira

Hæhæ

Jæja þá er loksins komin stundaskrá fyrir mars mánuð. Ég var að setja hana hér inn á síðuna og einnig sendi ég hana á e maili til ykkar og getið þið þá prentað hana út. Einnig verða nokkur eintök af henni niðri við fataklefa í rekkanum við hurðina.
Í þessum mánuði ætlum við að hafa hattaball (næstkomandi fimmtudag þ.e. 6 mars) og mega börnin þá koma með hatta í leikskólann.
Fimmtudaginn 13. mars verður svo stelpudagur. Þá mega stelpurnar koma fínar í leikskólann og ætla strákarnir að baka fyrir þær og dekra við þær
Fimmtudaginn 27. mars verður svo strákadagur og mega þá strákarnir koma fínir í leikskólann og stelpurnar ætla þá að baka fyrir strákana og dekra við þá
Einnig er komin matseðill fyrir mars mánuð hér inn á síðuna.

Berglind tónlistarkennari setti í hólfin hjá börnunum blöð með textum af þeim lögum sem hún hefur verið að syngja með börnunum. Ég setti eitthvað af þessum lögun hér inn á síðuna undir tónlist.

Skólahópurinn er að æfa Þúsaldarljóðið (jörð, vatn, loft og eldur) og langar mig til minna á að það eru textar af þessum lögun hér inn á síðunni undir söngtextar. Það væri gaman og gott ef þið gætuð farið yfir textann með börnunum því að hann er langur og dálítið erfiður fyrir marga. Ef þið getið ekki prentað hann út þá getið þið beðið okkur um að prenta út eintak af honum fyrir ykkur.

Börnunum ykkar þykir alveg örugglega gaman að fá að skoða myndirnar sem eru hér inn á síðunni með ykkur foreldrum og geta þau þá sagt ykkur hvað er að gerast á myndunum. Við höfum verið að spyrja krakkana hvort þau skoði myndirnar á heimsíðunni í tölvunni og mörg segjast ekki hafa skoðað myndir þar. Það væri nú gaman að leyfa þeim að skoða með ykkur og rifja upp hvað þau hafa verið að gera á leikskólanum.

Hópastarf:

Hljóð.
Deplahópur bjó til tvo regnstafi í hópavinnu í hópastarfi síðast. Þau komu sér saman um hvernig þau vildu gera þá og unnu vel saman.
Eðlurnar bjuggu til sitt hljóðfæri hvert fyrir sig.Þau völdu sjálf allt efni í hljóðfærið sitt og skreyttu svo.
      
Vatnið.
Kisuhópur og Tigrisdýrahópur og hópurinn hennar Helgu á Bóli eru enn að vinna með bátana og myndvarpann.

Litirnir:
Yngstu börnin á Bóli hafa verið að skoða bláa litinn og eru þau búin með hann.
Næst taka þau fyrir gula litinn.

TMT (tákn með tali).

Í þessari viku höfum við lært táknin kubba, lita/teikna, vinur og bolti.

Bestu kveðjur
Bakki og Ból




  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar