Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Apríl

16.04.2008 17:34

Latabæjarskokk á morgunn fimmtudag

Hæhæ

Á morgunn fimmtudag 17. apríl verður Latabæjarskokk í leikskólanum. Þá ætla krakkarnir að hlaupa smá hring, mislangan eftir aldri og þegar allir hafa lokið hlaupinu verður boðið upp á allskyns grænmeti og ávexti. Gaman væri ef börnin kæmu í íþróttafötum í leikskólann þannig að þægilegt verði að hlaupa.
Einnig langar okkur til að athuga hvort einhver eigi fyrsta Latabæjardiskinn þ.e. Áfram latibær en á honum eru æfingar sem gaman væri að gera í upphafi hlaupsins þ.e. sem upphitun. Þessi diskur er uppseldur og langar okkur mikið til að fá hann lánaðan og fá að skrifa hann hjá einhverjum

Það eru síðan komnar nýjar myndir í myndaalbúmið .

kv Skerjó

08.04.2008 10:33

Loksins hægt að blogga og setja inn myndir

Hæhæ

Jæja loksins er hægt að setja inn nýjar myndir og blogga á síðuna okkar. Það var ekki hægt að setja neitt inn vegna uppfærslu á síðunni. Það eru líka komnar stundaskrár fyrir apríl inn fyrir bæði Bakka og Ból.

Enn allavega þá er allt gott að frétta af okkur á Skerjagarði. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur t.d. var strákadagur í endan mars og heppnaðist hann vel. Það komu margir strákar uppábúnir í leikskólann. Stelpurnar bökuðu fyrir þá og útbjuggu einnig armbönd handa þeim sem þeir voru mjög ánægðir með.

Í síðustu viku vorum við svo með náttfataball og máttu börnin einnig koma með bangsa með sér. Það var slegið upp balli og á Bakka var farið í ýmsa skemmtilega leiki eins og ásadans, stoppdans og lest. 

VIð viljum svo minna á að næstkomandi fimmtudag (10. apríl) verður dótadagur hjá okkur og mega börnin þá koma með eitthvað eitt dót að heiman.

Nú er verið að leggja lokahönd á þemað þ.e. vatnið hjá yngri börnunum á Bakka og börnunum á Bóli og hljóðið og hljóðfæri hjá eldri börnunum á Bakka. Eldri börnin eru að klára að gera sitt hljóðfæri og yngri börnin að klára stóra bátinn og umhverfið í kringum hann þ.e. sjóinn. 
Við tökum okkur síðan smá pásu en höldum auðvitað áfram að fara í hópastarf en munum nú reyna að vera meira úti í náttúrunni og fara í vettvangsferðir um nánasta umhverfi og fara í útileiki.

Foreldraviðtöl verða svo núna í lok apríl og byrjun maí.
-Foreldraviðtöl fyrir yngri börnin á Bakka (þ.e. börn fædd 2004) verða haldin miðvikudaginn 30. apríl.
-Foreldraviðtöl fyrir eldri börn á Bakka (þ.e. börn fædd 2003 og 2002) verða haldin miðvikudaginn 7.maí og fimmtudaginn 8. maí.
-Foreldraviðtöl á Bóli verða mánudaginn 28. apríl og þriðudaginn 29. apríl.
Skráningablað kemur fljótlega upp og verður uppi á töflu hjá Bakka og Bóli.            ATH! að skrá ykkur á réttan dag 

Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu.

bestu kveðjur frá Skerjó
  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar