|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2008 Maí30.05.2008 09:57júní mánuðurHæhæ Jæja þá er komin stundaskrá fyrir júní mánuð inn á heimasíðuna. Í júní ætlum við að fara mikið í vettvangsferðir með börnin á Bakka og þá sérstaklega elstu krakkana. Yngri krakkarnir fara auðvitað líka í ferðir en styttri og þá helst hér í næsta nágrenni. Í júní ætlum við að hafa aftur Latabæjarhlaup þar sem það er mikill áhugi hjá börnunum fyrir því. Þá hlaupum við smá hring og þegar við komum í mark fá börnin ávexti og grænmeti. Einnig verður dótadagur og þá mega börnin velja hvort þau koma með inni- eða úti dót. Þann 16. júní verður svo sumarhátíð á Skerjagarði. Þá mega börnin koma í furðufötum og förum við í skrúðgögnu hér um hverfið. Í hádeginu verður svo pizzaveisla og ís namm namm. Skólahópurinn hefur alltaf farið í hjólreiðaferð og útskriftaferð. Við ákváðum að setja ekki niður ákveðinn dag fyrir þessar ferðir en við settum niður vikuna. Þetta gerum við til að reyna að fá sem besta veðrið til að fara í þessar ferðir. Maímánuður er búinn að vera skemmtilegur og margt gert. Starfsfólkið fór í námsferð til Danmerkur og Svíþjóðar og skoðaði þar nokkra leikskóla og einngi fórum við í leikjagarð og fengum kennslu í nýjum skemmtilegum útileikjum sem við munum nýta í starfinu okkar. Hreinsunardagurinn var haldinn 17. maí og tekið var til hendinni í garðinum . Opna húsið var svo 24. maí og tókst að venju mjög vel. Útskriftahópurinn ásamt nokkrum börnum sem eru fædd 2003 sungu fyrir okkur Þúsaldaljóð (jöðin, vatnið, loftið og eldinn), lagið um hann Maxamús og svo sungu öll börn sem vildu nammilagið. Allir stóðu sig mjög vel í söngnum. Í dag verður svo sveitaferðin og vonum við að sem flestir komist með okkur og eigi skemmtilegan dag saman. Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið frá Bakka og Bóli. Það eru nýjar myndir á bls. 1-3. þannig að þið þurfið að fletta til að sjá allar nýju myndirnar (settar inn 30.maí). Kveðjur frá Bakka og Bóli 05.05.2008 11:37Starfsdagar, hreinsunardagur, opið hús og sveitaferð..Hæhæ Við viljum byrja á að minna á starfsdaga sem verða þriðjudaginn 13. og miðvikudaginn 14. maí og verður þá leikskólinn lokaður. Einnig viljum við minna á Hreinsunardag á Skerjagarði en hann verður laugardaginn 17. maí kl. 10-14. en þá mæta foreldrar ásamt börnum og taka til hendinni í leikskólagarðinum og eiga skemmtilegan dag saman. Opið hús og útskrift elstu barnanna verður svo laugardaginn 24. maí kl. 11-13. Sveitaferðin verður svo föstudaginn 30. maí. Það verður farið á Hraðastaði og verður lagt af stað frá Skerjagarði kl. 12:45. Stundaskrárnar fyrir maí mánuð verða settar í öll hólf barnanna en hún er einnig hér á heimasíðunni. Næsta fimmtudag eða 8. maí verður útidótadagur en þá mega börnin koma með eitthvað útidót í leikskólann. Það getur t.d. verið bolti, skófla og fata, sippuband, krítar eða eitthvað annað skemmtilegt. Því miður getum við ekki leyft hjól eða hlaupahjól og ekki línuskauta þar sem garðurinn er það lítill. Matseðill fyrir maímánuð er kominn inn á síðuna. Bestu kveðjur frá Bakka og´Bóli
Flettingar í dag: 135 Gestir í dag: 36 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367726 Samtals gestir: 83302 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |