Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Júní

26.06.2008 13:50

Nú fer að styttast í sumarfrí

Hæhæ

Jæja þá fer að styttast í sumarfrí hjá okkur hér á Skerjagarði. Síðasti dagurinn fyrir sumarfrí er mánudagurinn 31. júní.

Annars er veðrið búið að leika við okkur í júní og við búin að vera mikið úti að leika og allir orðnir brúnir og sællegir.
Elstu börnin okkar eru búin að vera mikið á ferðinni og eru t.d. búin að fara í heimsókn til hennar Berglindar tónlistarkennara upp í Álafosskvos. Þar eyddu þau góðum degi. Það voru grillaðar pylsur, leikið sér í náttúrunni og farið í latabæjarhlaup. 
      

SKólahópurinn er svo búinn að fara í hjólreiðaferð í Nauthólsvíkina. Allir mættu með hjólin sín og hjóluðu saman á ströndina og borðuðu hádegismat þar og nutu veðurblíðunnar. 
  
   

Skólahópurinn fór einnig í útskriftarferð en að þessu sinni var farið í bæjarferð þ.e. í hjómskálagarðinn og rölt í bænum. Síðan var farið heim til Ellu í kópavoginn og þar voru grillaðir hamborgarar, leikið sér á trampólíninu og farið í heita pottinn. Allir voru mjög ánægðir eftir daginn.

 

Yngri börnin eru líka búin að fara í vettvangsferðir en þá bara hér í hverfinu. Það er búið að fara í fjöruna, út á aparóló og á skógarróló. 
  

Sumarhátíðin gekk mjög vel og komu börnin í furðufötum í leikskólann og farið var í skrúðgöngu um hverfið með fána. Í garðinum var svo hoppukastali sem börnin skiptust á að fara í. Í hádeginu var svo pizzapartý.
     

Latabæjarhlaupið var svo haldið í júní. Börnin eru orðnir miklir hlaupagarpar og stóðu sig auðvitað mjög vel í hlaupinu. Í lokin fengu svo öll börnin latabæjarmedalíu :-)
    

ATH! Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið

kv Bakki og Ból
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar