Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2009 Febrúar

23.02.2009 11:00

Ótitlað

Hæhæ
 
Í síðustu viku vorum við með dótadag og fannst krökkunum mjög gaman að koma með dót að heiman og sýna öðrum og skiptast á.

Við bjuggum einnig til bolluvendi í síðustu viku sem börnin tóku með sér heim. Þau ætluðu svo öll að bolla mömmu og pabba í morgunn (vonandi hafið þið vaknað vel í morgunn kæru foreldrar).emoticon
 
Meistararnir fóru í heimsókn í Melaskóla á miðvikudaginn. Þeir voru mjög spenntir og stóðu sig mjög vel í heimsókninni. Síðan var farið heim með skólabílnum.


Hópastarf

Umferðin
Börnin bjuggu umferðarminnisspil í síðustu viku. Þeim finnst mjög gaman að spila þetta spil og sjá merkin sem þau bjuggu til :-)

Ég sjálfur
Við notuðum hópastarfstímann til að búa til bolluvendi emoticon

Litirnir
Börnin eru enn að vinna með bláa litinn. Blár dagur verður svo á Bóli 6. mars en þá mæta allir í einhverju bláu :-)

Á miðvikudaginn er Öskudagur og mega börnin þá koma í furðufötum í leikskólann. Við minnum á að ekki er æskilegt að koma með vopn sem fylgja ýmsum búningum í leikskólann. Mjög gott er líka að merkja aukahluti sem börnin koma með :-)

kv Bakki og Ból




16.02.2009 10:14

Ótitlað

Hæhæ

Þá er enn og aftur komin ný vika og nóg að gera hjá okkur á Skerjagarði.

Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu flestir með nesti með sér. Við settumst niður inni á deild og borðuðum nestið okkar, kíktum á hvað hinir voru með og skiptumst á nesti :-)
 

Þemastarf:

Umferðin-Börnin kláruðu umferðamerkin sín og voru mjög ánægð með þau. Við bjuggum einnig til umferðaljós með því að stimpla hendurnar okkar á blað ,rautt, gult og grænt.
 
Ég sjálfur- Börnin teiknuðu inn á líkamann sinn augu og tóku mynd af nefinu sínu og límdu á emoticon  Nokkur börn bjuggu líka til umferðamerki eins og eldri börnin.
   
Litirnir- Nú eru börnin farin að skoða bláa litinn. Þau skoða ýmislegt sem er blátt og föndra með bláa litinn.

Á fimmtudaginn næsta verður dótadagur hjá okkur. Þá mega börnin koma með eitt dót í leikskólann. Það væri mjög gott ef þið merktuð dótið sem börnin koma með.

Við viljum einnig minna á að það er ekki í boði að koma með kökur þegar börnin eiga afmæli. Það er í boði að koma með ís, snakk og grænmeti. Þegar líður að afmæli barnanna þá setjum við miða í hólfin þar sem við minnum á hvað er í boði að koma með og viljum við biðja ykkur um að virða þaðemoticon

Það eru nýjar myndir í albúminu

kv Bakki og Ból


09.02.2009 10:24

Ótitlað

Hæhæ

Meistararnir áttu að fara í heimsókn í Melaskóla í síðustu viku en því  miður urðum við að fresta því þar sem mikil veikindi voru hjá börnunum. Við fáum að fara fljótlega í heimsókn og munum við auglýsa það þá.

Í síðustu viku var Rauður dagur á Bóli þar sem börnin eru búin að vera að vinna með rauða litinn. Margir mættu í rauðum fötum og deildin var skreytt rauðum hlutum sem börnin höfðu búið til.
 
            
Þemastarfið er í fullu gangi.
Umferðin- Börnin eru búin að klára umferðamerkin sín. Við fórum einnig í strætóferð þar sem við skoðuðum umferðina og umferðamerkin og börnin leytuðu að sínu umferðamerki. Þeim finnst mjög gaman þegar þau sjá sitt merki
 
 
Ég sjálfur
- Börnin hafa verið að skoða bækur um líkamann. Þau hafa teiknað sinn líkama í réttri stærð og teikna síðan inn á hann líkamshluta s.s augun og fleira. Þau hafa verið að skoða sérstaklega augun sín.
  
Litirnir- Börnin hafa verið að skoða rauða litinn og enduðu þau það með því að hafa rauðan dag. Næst ætla þau að skoða bláa litinn.
 

Meistararnir eru byrjaðir að æfa Þúsaldaljóðið þ.e. lagið um jörðina, vatnið, loftið og eldinn.  Við byrjum að vinna með jörðina. Við veltum fyrir okkur ýmsu í tengslum við jörðina, myndskreytum, förum í ýmsa leiki og fleira.

Næsta fimmtudag 12. febrúar verður nestisdagur og mega börnin þá koma með nesti að heiman.Þetta hefur alltaf verið mjög vinsælt hjá börnunum.

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.

ps. okkur finnst líka alveg rosalega gaman að heyra frá ykkur í gestabókinni emoticon


kv Bakki og Ból

02.02.2009 10:27

Ótitlað

Hæhæ

Í síðustu viku var strákadagur og heppnaðist hann mjög vel. Strákarnir mættu fínir og flottir í leikskólann og var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Elstu strákarnir á Bakka (2003 og 2004) fóru í strákaferð á bókasafnið og hlustuðu þar á sögu sem heitir Rauða eplið. Þeir vöktu auðvitað athygli því þeir voru allir svo fínir í skyrtu með bindi og sumir í jakkafötum. Fengu þeir síðan að leika á bókasafninu. Síðan var farið og keyptar kleinur og kókómjólk. Eftir hádegið fengu þeir svo að velja hvort þeir vildu vera inni að leika eða úti. 
Yngri strákarnir og Bakka og strákarnir á Bóli fengu kaffihúsastemmingu í eldhúsinu og fengu allir snúða og mjólk. 
   

Á föstudaginn var grímuball á Bakka. Börnin höfðu öll búið til grímur í leikskólanum og var ákveðið að slá upp balli þar sem allir voru með sínar grímur.
   

Miðvikudaginn næsta þ.e. 4.febrúar fara Meistararnir í heimsókn í Melaskóla. Þeir fara þar á bókasafnið, fá að kíkja inn í skólastofu og enda á því að fara í heimsókn í Selið. Farið verður kl. 13:30.

Í febrúar ætlum við að hafa Nestisdag (12.feb) þar sem börnin mega koma með nesti að heiman sem þau borða hér í leikskólanum. Einnig hafa börnin mikið verið að spyrja um dótadag og ætlum við að hafa dótadag 19.febrúar. Þá mega börnin koma með eitt dót að heiman (muna að merkja dótið).
25. janúar er svo öskudagur og mega þá allir koma í furðufötum. Þá sláum við ,,köttinn úr tunnunni,, og dönsum saman.

Þemastarf:
Umferðin- börnin hafa fengið eitt umferðamerki sem þau æfðu sig að teikna og síðan máluðu þau sitt umferðamerki og ætlum við að setja spítu á það þannig að þetta verður ,,alvöru,, umferðamerki. Þau hafa farið í gönguferð og skoðað umferðamerkin og leitað að sínu umferðamerki.

Ég sjálfur- Börnin hafa verið að skoða augun sín. Einnig hafa þau verið að teikna líkamann sinn þ.e. strikað eftir útlínum á stórt blað og eiga svo eftir að vinna meira með það.

Litirnir- börnin hafa verið að skoða rauða litinn. Þau hafa verið að mála með rauðum lit, skoðað ýmisa hluti í umhverfinu sem eru rauðir og fleira. Á föstudaginn næsta verður svo rautt ball á Bóli og væri gaman ef allir mættu í einhverju rauðu.

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið og stundataflan fyrir febrúar er líka komin inn.

kv Bakki og Ból




  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar