|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2009 Mars16.03.2009 10:13ÓtitlaðHæhæ Þá enn ein vikan búin og nóg að gera hjá okkur á Bakka og Bóli. Á fimmtudaginn var foreldrakaffi á Bakka þar sem börnin sýndu foreldrum afrakstur þemavinnunnar þ.e. ,,umferðin,, og ,,ég sjálfur,,. Frábær mæting var og viljum við þakka ykkur fyrir komuna. Þemavinna Umferðin: Hópaverkefni- Börnin máluðu umferðagöturnar, bjuggu til umferðamerki, bíla (löggubíla, slökkviliðsbíla og venjulega bíla) og hús (slökkvistöð, löggustöð, hús sem var að kvikna í), sem voru síðan sett á göturnar. Ég sjálfur: Börnin máluðu kallana sína, skoðuðu eyrun. Nokkur börn bjuggu til umferðamerki og umferðaljós :-) Börnin á Bóli skoðuðu nefið og notuðu skynfærin til að finna lykt og bragð. Ég sjálfurLitirnir: Börnin eru byrjuð að skoða gula litinn. Vil viljum minna á Kósídag sem verður næsta fimmtudag (19.mars). En þá mega börnin koma í náttfötum, með kodda, teppi, bangsa eða eitthvað sem þeim finnst kósí að vera með. Skólahópurinn er byrjaður að æfa Þúsaldaljóð, þ.e. um jörðina, vatnið, loftið og eldinn. Þeir vinna einnig ýmis verkefni tengd þessu. Textana við þessi lög er að finna hér inn á heimasíðunni undir-söngtextar-Þúsaldarljóð eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. ATH! Við viljum enn og aftur biðja ykkur um að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og sjá til þess að þar sé allur sá útifatnaður sem börnin þurfa á að halda til að geta verið úti að leika (kuldagalli, húfur, kuldaskór,stígvél, pollagalli, hlý peysa og að minnsta kosti tvö pör af vettlingum). Það eru allt of mörg börn sem eru ekki með vettlinga og þá er mjög kalt að vera úti að leika í frostinu bbrrrrrrrr...... Nýjar myndir í myndaalbúminu kv Bakki og Ból 09.03.2009 11:05ÓtitlaðHæhæ Það er allt gott að frétta af okkur á Skerjó. Þemastarf: Umferðin- Hóparnir ákváðu að gera umferðagötur með umferðamerkjum á. Rassálfarnir máluðu umferðagötur á stórt blað og Leðurblökurnar bjuggu til lítil umferðamerki til að setja á umferðagöturnar. Ath! Það er mjög skemmtileg umferðasíða með allskyns umferðaleikjum fyrir krakka inn á slóðinni www.us.is (Umferðastofa). Þar er t.d. leikur sem heitir ,,Innípúkinn í umferðinni,, sem er mjög skemmtilegur leikur þar sem börnin hjálpa Innipúkanum að finna Matthildi og Dodda og þarf hann að fara yfir götur og lærir umferðareglurnar í leiðinni. Einnig eru þar samstæðuleikir með umferðamerkjunum og fleira. Ég sjálfur- Börnin notuðu skynfæri til að finna lykt og bragð. Settur var allskyns matur í skál og álpappír yfir. Þau fengu svo að lykta af skálinni og áttu að giska á hvað var í skálinni. Þau voru mjög klár að finna út hvað var í skálinni. Síðan fengu þau að smakka á því sem var í skálinni. Þau máluðu einnig kallana sína. Þeir eru orðnir svo flottir ![]() Litirnir- Börnin eru búin að vinna með bláa litinn og var blátt ball á síðasta föstudag. Næsti litur sem börnin vinna með er gulur (páskaliturinn) Á fimmtudaginn 12. mars verður foreldrakaffi á Bakka kl. 14-16. Þá ætla börnin að sýna afrakstur þemavinnunnar þ.e. ,,umferðin,,og ,,ég sjálfur,,. ATH! Við viljum benda ykkur á að föstudaginn 24. APRÍL verður leikskólinn lokaður vegna námskeiðsdags starfsmanna. (Ath! það er einnig lokað fimmtudaginn 23. apríl en þá er sumardagurinn fyrsti). Það eru komnar myndir í myndaalbúmið. Einnig nýr matseðill. Ég var einnig að senda til ykkar stundatöfluna fyrir mars mánuð, þannig að þið getið fylgst með því sem er á döfinni hjá okkur. Einnig viljum við benda ykkur á að skoða heimasíðuna með börnunum ykkar og fá þau til að segja ykkur frá því sem er að gerast hjá okkur. Þeim finnst það mjög gaman. Við fórum með nokkur börn í tölvuna hjá okkur og skoðuðum myndir af heimasíðunni og þeim fannst það mjög spennandi kv. Bakki og Ból 02.03.2009 10:35ÓtitlaðHæhæ Það var mikið um að vera í síðustu viku en þá var bollu-, sprengi-, og öskudagur. Á bolludeginum fengum við auðvitað bollu í kaffitímanum og fannst börnunum þær rosalega góðar. Á spengidegi borðuðu allir yfir sig af saltkjöti og baunum. Síðan var það hinn lagþráði öskudagur sem allir voru búnir að bíða eftir með spenningi Bolludagur ÖskudagurÞemastarf: Umferðin- Þar sem öskudagur kom upp á miðvikudegi þá féll þemastarfið niður. Börnin hafa mikið verið að spila umferðaspilið í vikunni sem þau bjuggu til og einnig höfum við verið að spjalla mikið um umferðina og sungið umferðalög. ![]() Ég sjálfur- börnin hafa verið að skoða nefið og lyktarskynið. Börnin á Bóli voru að búa til líkamann sinn og skoða andlitið sitt í spegli, sem þau svo vinna áfram með. ![]() Litirnir- Börnin hafa verið að vinna með bláa litinn. Blár dagur verður svo á Bóli næsta föstudag 6. mars en þá mæta allir í einhverju bláu. ![]() Á fimmtudaginn næstkomandi þ.e. 5. mars þá fara tveir elstu árgangarnir í heimsókn á bókasafnið. Bókasafnið bauð okkur að koma í heimsókn og fá fræðslu um meðferð bóka og fleira. Á föstudaginn 6. mars fer svo skólahópurinn í leikfimi út í Melaskóla. Foreldrakaffi verður svo á Bakka 12. mars. kl. 14-16. Þá langar okkur til að sýna foreldrum afrakstur þemavinnunnar sem stendur yfir núna. Einnig er komin stundatafla fyrir mars mánuð inn á heimasíðuna. Í mars ætlum við að hafa kósídag ( 19. mars) en þá geta börnin mætt í náttfötum, með bangsa sinn, kodda eða teppi eða hvað sem ykkur dettur í hug sem er kósí Á Bakka verður svo spila- og púsldagur en á Bóli verður bóka- og geisladiskadagur (26. mars). Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 135 Gestir í dag: 36 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367726 Samtals gestir: 83302 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |