Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2009 Apríl

27.04.2009 11:13

Ótitlað

Hæhæ

Loksins heyrist frá okkur hér á Skerjó emoticon

Við viljum byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs sumars og takk kærlega fyrir skemmtilegan vetur.


Hreinsunardagurinn verður á Skerjagarði næstkomandi laugardag 2.maí kl. 11-14. Þá hittast foreldrar og börn hér á leikskólanum og taka til hendinni á leikskólalóðinni. Vonandi sjáum við sem flesta.  Það er alltaf gaman að hitta aðra foreldra og spjalla saman um leið og við gerum leikskólalóðina snyrtilega.

Laugardaginn 9. maí kl. 11-13 er svo opið hús og útskrift elstu barnanna.

Nú fer starfið aðeins að breytast hjá okkur þar sem sumarið er komið. Þá erum við meira út að leika og í förum í vettvangsferðir um hverfið okkar. 
Einnig er tónlistin með Berglindi tónlistakennara hætt þennan veturinn.

Á Bakka ætlum við að nota mánudagana til þess að fara í gönguferðir og útileiki. Miðvikudagar verða vettvangsdagar en þá förum við í styttri og lengri vettvangsferðir. Á föstudögum ætlum við svo að hafa hreyfingu, þá förum við í ýmsa boltaleiki, hlaupum, klifrum og gerum margt skemmtilegt.  Fimmtudagar verða áfram uppákomudagar en núna í maí verður útidótadagur og nestisdagur.
Við ætlum einnig að hafa þemavikur á Bakka og tengist starfið áfram inn í þær en meira verður um vettvangsferðir og útiveru í kringum þær.

Á Bóli verður farið í vettvagsferðir um hverfið á mánudögum. Á miðvikudögum verður leikjadagur en þá verður farið í skemmtilega úti- og innileiki.  Fimmtudagar verða áfram uppákomudagar. Núna í  maí verður útidótadagur og nestisdagur.

Sveitaferðin verður á sínum stað föstudaginn 29. maí. kl. 13:00 Farið verður á Hraðastaði sem er í Mosfellsdalnum. Dýrin verða skoðuð og svo verður grillað.

-Við viljum minna foreldra barna á Bakka á foreldraviðtölin sem verða á morgunn þriðjudag og á miðvikudaginn.

ps. Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. Það eru nýjar myndir á 6 fyrstu síðunum emoticon

Einnig er komin stundaskrá fyrir maímánuð inn á heimasíðuna (farið inn í Bakki eða Ból og þar stendur stundaskrá maí). Einnig er ég búin að senda hana til ykkar í tölvupósti.  Endilega látið mig vita ef þið fáið ekki tölvupóstinn þá gæti verið að við séum ekki með rétt tölvupóstfang.

kv Bakki og Ból.


01.04.2009 10:09

Ótitlað

Hæhæ

Skerjagarður á afmæli í dag- 6ára
 
Viljum síðan minna á námskeiðsdag starfsfólks sem verður föstudaginn 24. apríl og verður þá leikskólinn lokaður.

kv Bakki og Ból

  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar