Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2009 Júní

30.06.2009 09:45

Sumarfrí :-)

Hafið það sem allra best í sumarfríinu. Sjáumst hress í ágúst emoticon
 
Bestu kveðjur frá öllum á Skerjagarðiemoticon

24.06.2009 12:03

Ótitlað

Hæhæ

Vorum að bæta við myndum í myndaalbúmið frá Heilsuskokki hjá Bóli og Sumarhátíð Ból emoticon


22.06.2009 10:25

Ótitlað

Hæhæ

Í síðustu viku var sumarhátíðin hjá okkur og gekk hún rosa vel,  þó að veðrið hafi ekki alveg verið eins og við vorum búin að panta emoticon Börnin mættu í búningum og fóru í skrúðgöngu um hverfið með hristur og hatta sem þau höfðu búið til í leikskólanum og fána. Síðan var pizza í hádegismat og borðuð allir vel af henni.

   

Á fimmtudaginn fóru eldri börnin á Bóli í nestisferð út á Aparóló. Farið var í allskonar hlaupaleiki þar sem börnin hlupu um leikvöllinn og upp á hól og hinir klöppuðu á meðan emoticon . Síðan var borðað nesti og leikið sér.
  

Á fimmtudaginn næsta verður íþróttadagur hjá okkur á Skerjó.  Þá væri gaman ef börnin mættu í íþróttafötum og ætlum við að fara í allskonar íþróttaleiki emoticon

Við minnum á að síðasti dagur fyrir sumarfrí er þriðjudagurinn 30. júní. Við opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst.

Það eru komnar myndir í albúmið frá sumarhátíðinni og nestisferðinni á Aparóló.

kv Bakki og Ból

12.06.2009 12:51

Ótitlað

Hæhæ

Börnin hafa verið mikið úti í góða veðrinu síðustu daga og einnig höfum við farið í skemmtilegar ferðir út fyrir hverfið með eldri börnunum.

Hljómskálagarðurinn-yngri börnin á Bakka og nokkur frá Bóli

   

Kjarvalsstaðir- fórum að skoða sýningu sem heitir Kjarval og dýrin. Fengum okkur síðan nesti úti og lékum okkur í leiktækjunum- börn fædd 2004

  

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið :-)

kv Bakki og Ból

09.06.2009 13:50

Ótitlað

Hæhæ

Það er kominn matseðill fyrir júní inn á heimasíðuna :-)


kv Bakki og Ból

05.06.2009 09:35

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum bara minna á nestisferðina sem verður á morgunn laugardaginn 6. júní kl 15:00 í Hljómskálagarðinum. Allir sem geta/vilja mæti með börnin og nesti við leiktækin í Hljómskálagarðinum. Vonumst til að sjá sem flesta.

Foreldrafélagið
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar