Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2009 Ágúst

26.08.2009 09:33

Ótitlað

Hæhæ

Heilsuskokkið var í gær og tóku börnin á Bakka bara þátt að þessu sinni. Krakkarnir voru mjög dugleg að hlaupa og síðan fengu allir ávexti á eftir.
  

Bakki - Yngri börnin á Bakka eru enn að vinna með vináttuna.
            Eldri börnin eru enn að skoða skordýr og vinna með þau.
Tvisvar í viku höfum við tjáningu á Bakka með yngri börnunum. Þá standa þau upp fyrir framan hin börnin og segja frá einhverju skemmtilegu.
 
 

Ból - Hópastarf á Bóli byrjar í næstu viku. Litlu krílin eru að æfa sig að vera á leikskóla og gengur það mjög vel. Annars hafa þau verið dugleg að vera úti að leika og elstu börnin farið í gönguferðir um hverfið.
 

Hreyfing
Eins og fram kom í fréttabréfinu þá verður engin tónlist í vetur. Í staðin fyrir hana ætlum við að hafa skipulagða hreyfingu. Jurate sér um hreyfinguna með yngri börnunum á Bakka og Tinna sér um hreyfinguna fyrir eldri börnin á Bóli og fer hvert barn einu sinni í viku í hreyfingu.


Vinafundir - Einu sinni í mánuði ætlum við að hafa svokallaða Vinafundi. Þá hittast börnin á Bóli og Bakka og syngja saman. Önnur deildin sér um þessa stund hverju sinni og ákveður hvaða lög verða sungin og svo sýna börnin á þeirri deild eitt atriði fyrir hin börnin. Við hittumst á þeirri deild sem sér um vinastundina hverju sinni. Bakki ætlar að byrja að sjá um þessa stund og koma þá börnin á Bóli upp á Bakka. Við ætlum að hafa þessa stund alltaf fyrsta föstudag í mánuði kl. 9:00. Þar sem leikskólinn verður lokaður föstudaginn 4. september ætlum við að byrja fimmtudaginn 3. september. 

Munið skipulagsdaginn föstudaginn 4. sept. Þá er leikskólinn lokaður.

kv Bakki og Ból

19.08.2009 09:57

Skipulagsdagur 4. sept og fleira

Hæhæ

Við viljum byrja á að minna ykkur á að föstudaginn 4. september verður skipulagsdagur hjá starfsfólki og er þá leikskólinn lokaður.

Bakki: 

Skólahópurinn á bakka er á fullu að skoða skordýrin. Þau fengu til að mynda geitungabú til að skoða og var það mjög spennandi. Þau hafa verið að setja upp skordýargildrur og veitt allskyns skordýr í þær.
 
Yngri börnin eru að spjalla um vináttuna. Við byrjum á að stimpla hendurnar okkar á blað og ætlum við að búa til vinakeðju úr öllum höndunum.
Í gær fóru yngstu börnin á Bakka í hópastarf og fundu nafn á hópinn sinn og heitir hann KISUHÓPUR (Tómas Magni, Salka Dögg , Anna María og Áslaug).
  
Ból:

Aðlaganir á Bóli eru að taka enda og hafa þær gengið mjög vel. Skipulagt starf á Bóli byrjar svo í september. Elstu börnin á Bóli hafa verið að fara í gönguferðir um nánasta umhverfi að tína lauf og fleira.
   
Á morgunn fimmtudag er útidótadagur og mega börnin þá koma með eitt útidót með sér í leikskólann. Munið að merkja dótið vel !!!

Við erum búin að setja á heimasíðuna skóladgatal fyrir skólaárið 2009-2010. Þar getið þið fylgst með því sem er að gerast hjá okkur á þessu skólaári. Þar eru til að mynda allir skipulags- og námskeiðsdagar komnir inn. 

Einnig er fréttabréf ágústmánaðar komið inn á heimasíðuna. Þið farið inn í Skrár og þar ýtið þið á fréttabréf. Við erum einnig búin að setja eitt eintak í hólfin hjá börnunum og senda tölvupóst með fréttabréfinu.

Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið

kv Bakki og Ból

10.08.2009 13:52

Ótitlað

Hæhæ

Vonandi hafa allir haft það gott í sumarfríinu í þessu frábæra veðri sem við fengum

Nú er allt komið á fullt skrið hjá okkur.  Aðlaganir nýrra barna á Bóli ganga mjög vel og viljum við bjóða ný börn og foreldra þeirra velkomin í hópinn.

Nestisdagurinn
sem var á þriðjudaginn gekk mjög vel. Við fórum út fyrir leikskólalóðina og drukkum nesti en fengum ekki alveg að njóta okkar þar sem geitungar voru á sveimi allt í kringum okkur og gerði okkur lífið leitt

Skólahópurinn okkar er búinn að fara í skólahóp og fundu þau nafn á hópinn og heita þau SNILLINGARNIR emoticon

Annað starf byrjar hægt og rólega hjá okkur, en elstu börnin fengu mikinn áhuga á öllum skordýrunum í kringum okkur og eru farin að skoða þau nánar. Þau eru til að mynda búin að búa til skordýragildru og fleira skemmtilegt. Yngri hóparnir ætla að byrja á vináttunni en hún skiptir miklu máli hjá þeim. Þau allra yngstu ætla að byrja að aðlagast leikskólanum og er það heilmikið nám hjá þeim emoticon

Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna og einnig matseðill fyrir ágúst mánuð.

Bestu kveðjur Bakki og Ból
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar