|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2009 September30.09.2009 13:52ÓtitlaðHæhæ Munið foreldrafundinn sem verður í kvöld hér á Skerjagarði kl. 20:30. Við munum kynna starfið í vetur og einnig mun starfsfólkið kynna sig. Vonumst við til að sjá sem flesta í kvöld Ból: Á Bóli er fiskahópur enn að vinna með vinaþemað. Börnin máluðu vinasteinana sína sem þau týndu í fjörunni í síðustu viku. Bakki: Börnin á Bakka hafa farið mikið í ferðir í síðustu viku. Elstu börnin fóru í heimsókn í Þjóðleikhúsið og hlustuðu þar á ævintýrið um Búkollu og fengu síðan að skoða leikhúsið. Yngri börnin á Bakka (fædd 2005) fóru í Norræna húsið á kvikmyndasýningu þar sem þau horfðu á stuttmyndir-teiknimyndir. Í Norræna húsinu Í Þjóðleikhúsinu Einnig fóru elsu börnin í KR heimilið í dag miðvikudag og fóru þar í hreyfingu. Við höfum fengið salinn þar að láni og munum fara þangað annahvern miðvikudag með elstu börnin í hreyfingu og leiki. Hreyfing í KR heimilinu kv Bakki og Ból 25.09.2009 09:40ÓtitlaðViðbragðsáætlun Skerjagarðs vegna inflúensunar er komin inn á heimasíðuna. Þið farið í ,,skrár,, og þar er hægt að nálgast hana :) 23.09.2009 10:59ÓtitlaðHæhæ Við viljum byrja á að minna á foreldrafundinn sem verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 20:30 :) Starfsfólk kynnir sig og kynning verður á starfinu í vetur. Veitingar í boði :) Gunnar Leifur ljósmyndari kom í dag og tók myndir af börnunum. Gekk myndatakan mjög vel. Hann tók mynd af öllum börnunum og fá foreldrar síðan sýnishorn af myndunum (vonandi í næstu viku) og geta þá ákveðið hvort þeir vilja kaupa myndina eða ekki :) Börnin á Bóli í myndatöku Bakki: Nú er vinaþemað á enda hjá okkur á Bakka og förum við fljótlega að finna okkur nýtt þema til að skoða :) Við enduðum vinaþema með vinaballi og var mjög mikið fjör á ballinu. Vinaball á Bakka :) Ból: Eldri börnin á Bóli eru enn að vinna með vinaþemað. Í gær fór fiskahópur í fjöruna að tína steina til að mála :) Yngri börnin fóru í gönguferð út á skógarróló að leika og hafa síðan verið í könnunarleik og leik inni og úti. Á Bóli var líka vinaball í síðustu viku og skemmtu allir sér mjög vel :) Vinaball á Bóli Í fjörunni Úti á skógarróló ATH! Nýjar myndir í myndaalbúminu :) kv Bakki og Ból 16.09.2009 11:47ÓtitlaðHæhæ Nú er mjög blautt í veðri og gaman að leika úti í pollunum. Börnin koma mjög blaut inn úr útiverunni og vantar allt of oft aukaföt í hólfin hjá þeim -Við viljum minna á ljósmyndarann sem kemur miðvikudaginn 23. september og tekur mynd af börnunum ykkar. 09.09.2009 12:36Hæhæ 02.09.2009 12:59ÓtitlaðHæhæ Ath! Leikskólinn verður lokaður á föstudaginn 4. september. Það varð smá villa í stundaskránni hjá Bóli en þar kom ekki fram að leikskólinn sé lokaður, en það eru báðar deildar lokaðar!!!!! Ból Hópastarfið er komið á fullt skrið hjá eldri börnunum á Bóli. Þau fundu nafn á hópinn og heitir hann Fiskahópur. Yngri börnin hafa verið að vinna í myndsköpun og farið í könnunarleikinn. Þau fóru einnig gönguferð um hverfið og var það voða gaman. Hreyfingin er komin á fullt og fara eldri börnin á Bóli á fimmtudögum í hreyfingu. Bakki Elstu börnin á Bakka eru enn að skoða skordýrin. Við fengum í síðustu viku rosalega fallegt og stórt fiðrildi sem eitt foreldri kom með handa okkur. Haft var samband við Náttúrugripasafnið og vildu þau endilega fá fiðrildið þangað og fóru börnin í heimsókn á safnið. Yngri börnin hafa verið að klára að skreyta vinakeðjuna (stimpla hendur og skreyta) og er keðjan byrjuð að myndast í stiganum á leið upp á Bakka. Við fórum einnig í fjöruferð að finna vinasteina sem við ætlum að mála og skreyta. Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 132 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367723 Samtals gestir: 83301 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |