|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2010 Janúar27.01.2010 10:13ÓtitlaðHæhæ Það er búið að vera nóg að gerast hjá okkur í síðustu daga. Á fimmtudaginn var bæði vasaljósadagur og einnig fengum við að sjá leikritið um hann Einar Áskel. Börnunum þótti rosalega gaman að horfa á leikritið, bæði þau yngstu og elstu. Börnin sátu allan tímann og horfðu á með áhuga. Vasaljósadagurinn var líka skemmtilegur og mættu öll börnin með vasaljós :) Vasaljósadagur Leikritið um hann Einar Áskel Þorrahátíðin heppnaðist líka vel. Börnin voru búin að búa til þorrahatta og mörg mættu þau í lopapeysu sem gerði stemninguna skemmtilega. Í boði var allskonar þorramatur s.s. hákarl, hrútspungar, lundabaggi, lifrapylsa, harðfiskur, sviðasulta og svo auðvitað grjónagrautur. Harðfiskurinn og lifrapylsan voru vinsælust en mörg börn smökkuðu hákarlinn, hrútspungana og lundabagga við mis-miklar vinsældir :) Þorrahátíðin Nú eru allir hópar bæði á Bakka og á Bóli farin að skoða tröllin í hópastarfinu. Tveir elstu árgangarnir (2004 og 2005) fóru á bókasafnið og fengu sögustund þar. Lesin var sagan um Skessuna sem leiddist. Síðan fengu þau að láni nokkrar tröllabækur á bókasafninu sem við getum lesið. Við höfum líka farið í allskonar tröllaleiki bæði úti og inni og teiknað tröllamyndir. Freyja Dís og Lára Ósk teikna Leikritið um kiðlingana þrjá tröllamyndir . og tröllið undir brúnni. Í næstu viku fimmtudaginn 4. febrúar verður síðan spiladagur og mega börnin þá koma með eitt spil (eða púsl) að heiman. Munið að merkja spilin vel :) Föstudaginn 26. febrúar verður námskeiðsdagur hjá starfsfólki Skerjagarðs og verður þá leikskólinn lokaður. ps. það eru nýjar myndir í albúminu. kv Bakki og Ból 20.01.2010 09:54ÓtitlaðHæhæ Við viljum byrja á að minna á vasaljósadaginn sem verður á morgunn fimmtudag (21. jan). Þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum að hafa öll ljós slökkt um morguninn og verður gaman að leika sér með vasaljósið í myrkrinu. Á morgunn fimmtudag fáum við einnig að sjá leikritið um hann Einar Áskel og byrjar það klukkan 9:30. Þessi leiksýning er í boði foreldrafélagsins. Á föstudaginn 22. jan. verður þorrahátíð hér á Skerjagarði. Þá fáum við að smakka þorramat og gaman væri ef börnin eiga lopapeysur, að mæta í þeim þennan dag. Við erum aðeins byrjuð að vinna með tröllaþemað. Við höfum verið að spjalla um tröllin og heyra hvað börnin vita um tröllin. Við höfum verið að lesa tröllasögur, syngja tröllalög og fara í ýmiskonar tröllaleiki. Í næstu viku ætlum við svo að fara á bókasafnið og sækja fleiri tröllabækur og fáum þá einnig sögustund á bókasafninu. Börn sem eru fædd 2004 og 2005 fara á bókasafnið. Mikael að skoða tröllabók Börnin breyta sér í tröll kv Bakki og Ból 13.01.2010 10:13ÓtitlaðHæhæ Í næstu viku, föstudaginn 22. jan byrjar þorrinn og erum við byrjuð að búa til þorrahatta sem börnin verða með á þorrahátíðinni. Eins og undanfarin ár verðum við með þorramat í boði og eru börnin mjög spennt að smakka og þá sérstaklega hákarlinn :) Gaman væri ef börnin mættu í lopapeysum í leikskólann þennan dag til að hafa daginn sem þjóðlegastann. 06.01.2010 13:35ÓtitlaðHæhæ GLEÐILEGT NÝTT ÁR !! Nú fer starfið að hefjast hjá okkur aftur eftir langt og gott jólafrí Við byrjum á fullum krafti í næstu viku og finnum okkur þá eitthvað skemmtilegt þema til að vinna með. Búið er að setja inn stundaskrá fyrir janúar inn á heimasíðuna og einnig er búið að senda þær til ykkar í tölvupósti. Skólahópurinn hefur farið í KR heimilið annan hvern miðvikudag fyrir jólin, en nú verður breyting á því, við ætlum að fara alla miðvikudaga. Það hafa allir svo gaman og gott af þessari hreyfingu og var því ákveðið að fara vikulega í KR heimilið. Viljum við biðja foreldra um að láta börnin hafa með sér íþróttaföt alla miðvikudaga. Einnig er hægt að geyma íþróttafötin í leikskólanum og taka öðru hverju heim og þvo ef þið viljið það. Það er búið að setja inn fullt af nýjum myndum inn síðan í desember, frá heimsókn í þjóðmynjasafnið, kirkjuferðinni og fleira skemmtilegt. Á morgunn fimmtudag verður bókadagur á leikskólanum og mega börnin koma með eina bók í leikskólann og við reynum að lesa sem flestar bækurnar. MUNIÐ AÐ MERKJA BÆKURNAR . kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 132 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367723 Samtals gestir: 83301 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |