|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2010 Maí26.05.2010 11:34ÓtitlaðHæhæ Á morgunn fimmtudag verður nestisdagur á leikskólanum og mega börnin koma með nesti að heiman. Við ætlum að fara í nestisferð í næsta nágrenni og borða nestið okkar þar :) Börn sem fædd eru 2006 fara á morgunn í óvissuferð og taka nestið sitt með :) Við viljum líka minna ykkur á að skrá ykkur í sveitaferðina sem farið verður á föstudaginn. Skráningarblað hangir uppi á töflunum í fataklefanum hjá Bakka og fyrir framan Ból. Í síðustu viku fóru börn sem fædd eru 2005 í menningarferð í Norræna húsið. Þau fóru að skoða tilraunalandið þar. Tilraunalandið Skólahópurinn endaði veturinn í KR heimilinu með því að fara í heita pottinn þar og skemmtu þau sér mjög vel þar. Í heita pottinum í KR heimilinu Einnig höfum við verið mikið úti að leika í ýmsum leikjum Útileikir kv Bakki og Ból 19.05.2010 10:59ÓtitlaðHæhæ 12.05.2010 10:21ÓtitlaðHæhæ 05.05.2010 11:09Opið húsHæhæ Við viljum þakka ykkur fyrir frábæra mætingu og flottar veitingar á opna húsinu og útskriftinni síðastliðinn laugardag. Að vanda fengum við frábært veður og var dagurinn yndislegur í alla staði. Útskriftarhópurinn 2010 Opna húsið Nú eru foreldraviðtölin að hefjast. Bakki er með foreldraviðtöl á morgunn fimmtudag 6 maí og föstudaginn 7.maí. Ból er með foreldraviðtöl á þriðjudaginn 11.maí og miðvikudaginn 12. maí Það hangir uppi skráningarblað á töflunum þar sem þið getið skráð ykkur í viðtal. Sumarstarfið er nú byrjað á Bakka og á Bóli og erum við farin að vera meira úti að leika. Aðlaganir eru einnig byrjaðar á Bóli fyrir næsta vetur. ps. Matseðillinn fyrir maí mánuð og myndir frá opna húsinu eru komnar inn. kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 135 Gestir í dag: 36 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367726 Samtals gestir: 83302 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |