Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2010 Júní

30.06.2010 13:28

Ótitlað

Hæhæ

Í dag var nestisdagur og komu börnin með nesti að heiman. Yngri börnin á Bakka og börnin á Bóli fóru í gönguferð um hverfið og borðuðum nestið úti í góða veðrinu.
Elstu börnin okkar fóru niður í bæ, kíktu á bókasafnið og fengu smá kynningu þar, fóru niður á tjörn og borðuðu síðan nestið úti.

Í dag er síðasti dagurinn fyrir sumarfrí og vonum við að þið hafið það sem allra best í sumarfríinu. Við sjáumst svo hress og kát í ágúst (við opnum aftur þriðjudaginn 3. ágúst).

Við óskum skólabörnunum okkar velfarnaðar í skólanum emoticon


Ps. það eru nýjar myndir í albúminu. Einnig er komin stundaskrá fyrir ágúst inn á síðuna og matseðill fyrir fyrstu vikuna í ágúst.

Bestu kveðjur frá öllum á Skerjagarði

25.06.2010 11:06

Ótitlað

Hæhæ

Sumarhátíðin var haldin þann 16.júní. Þá mættu börnin í furðufötum í leikskólann. Við fórum í skrúðgöngu um hverfið og lékum okkur og dönsuðum úti við tónlist. Í hádeginu var svo pizza og ís í eftirrétt.

Sumarhátíðin

Skólahópurinn fór í útskriftarferð í vikunni. Þau fóru inn í Kópavog á Rútstúnið og léku sér þar. Síðan fóru þau heim til Ellu í heitapottin og fengu pizzu í hádegismat. Þetta var mjög skemmtileg ferð og skemmtu allir sér vel.
 
Útskriftarferðin

Snúðaskokkið var haldið í gær og voru krakkarnir mjög dugleg að hlaupa. Þegar börnin komu svo í mark eftir mislang hlaup fengu allir metalíur og snúð.
 
Snúðaskokkið

Við minnum svo á að leikskólinn fer í sumarfrí fimmtudaginn 1. júlí (síðasti dagur fyrir sumarfrí er miðvikudagurinn 30.júní)  :) Við opnum síðan aftur þriðjudaginn 3. ágúst.

Á miðvikudaginn 30. júní (Síðasta dag fyrir sumarfrí) verður svo nestisdagur. Þá mega börnin koma með nesti að heiman.

Nýjar myndir í myndaalbúminu :)
Matseðill fyrir næstu viku er kominn inn á heimasíðuna

kv Bakki og Ból

14.06.2010 12:46

Ótitlað

Hæhæ

Það er kominn matseðill fyrir vikuna 21-25 júní inn á heimasíðuna :)

kv Bakki og Ból

11.06.2010 06:50

Ótitlað

Hæhæ

Nú erum við mikið að fara í ferðir með eldri börnin á leikskólanum. Þau yngri fara mikið í gönguferðir um hverfið og oft er tekið nesti með og borðað úti þegar gott er veður.

Skólahópurinn okkar fór í  hjólaferð út í Nauthólsvík en það er gert á hverju ári. Nú í ár ákváðum við að fara á hlaupahjólum og gekk það rosa vel. Í Nauthólsvíkinni léku börnin sér, fengu að vaða og svo voru grillaðar pylsur.
 
Í Nauthólsvík

Strákarnir í skólahópnum fóru í heimsókn heim til Sóldísar í síðustu viku. Þar léku þeir sér úti og bjuggu svo til pizzu :) Stelpurnar fara svo í næstu viku.
 
Í heimsókn hjá Sóldísi

Það var einnig óvissudagur hjá skólahópnum í síðustu viku. Farið var á túnið hjá fjörunni og þar fóru þau í leiki. Síðan var borðað nesti úti-jógúrt og ávexti.
 
Óvissuferð hjá skólahópnum

Börn sem fædd eru 2005 fóru í menningarferð í bæinn í síðustu viku. Þau fóru niður á tjörn og gáfu öndunum brauð, kíktu síðan inn í Ráðhúsið og enduðu svo í Hljómskálagarðinum og léku sér þar og fengu smá nesti :)
 
Bæjarferð

Þau börn sem byrja á Bakka eftir sumarfrí komu í heimsókn upp á Bakka á miðvikudaginn. Þar fóru allir í val og farið var yfir helstu reglur sem gilda :) Þetta gekk rosa vel og voru allir mjög duglegir. Hlakkar okkur mikið til að fá þessa flottu krakka upp á Bakka til okkar í ágúst:)
 
Gaman í vali á Bakka

Börnin á Bóli hafa farið mikið í gönguferðir um hverfið. Oft er tekið með nesti og borðað úti og er það voða gaman :)
  
Í fjörunni að borða nesti

Sumarhátíðin verður haldin miðvikudaginn 16.júní en þá mega börnin koma í furðufötum (búningum). Börnin hafa verið að búa til kórónur til að hafa þennan dag. Við förum í skrúðgöngu um hverfið, í hádeginu er svo heimabökuð pizza og ís á eftir.
 
 Börnin búa til kórónur fyrir sumarhátíðina

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið :)

kv Bakki og Ból

02.06.2010 12:30

Ótitlað

Hæhæ

Það er búið að vera ýmislegt að gerast hjá okkur síðustu daga í góða veðrinu emoticon

Á fimmtudaginn var nestisdagur og borðuðu allir nestið úti.  Það er alltaf jafn mikil stemning að borða úti emoticon
 
                                   Nestisdagur á Bóli

Börn sem fædd eru 2006 fóru í ferð í Hljómskálagarðinn á fimmtudaginn og borðuðu nesti sitt þar.
Síðan löbbuðum við niður í bæ og enduðum á Austurvelli og fengum okkur ís og fórum í leiki þar.

 
                           Bæjarferð börn fædd 2006

Á föstudaginn var síðan sveitaferðin. Farið var á Grjóteyri og skoðuðum við dýrin þar, lékum okkur, borðuðum nesti og áttum skemmtilegan dag saman emoticon
 
                                    Sveitaferðin

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið

kv Bakki og Ból
  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar