Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2010 September

30.09.2010 10:23

Mér finnst rigningin góð...

Hæ hæ..

Alltaf jafn gaman hjá okkur á Skerjagarði emoticon. Hópastarfið er á fullu á Bakka er verið að vinna með hafið. Börnin á Bóli eru á fullu að kynnast efniviðnum í könnunarleiknun og myndsköpun. 

                                  


Nú er mjög blautt í veðri og gaman að leika úti í pollunum. Börnin koma mjög blaut inn úr útiverunni og vantar allt of oft aukaföt í hólfin hjá þeim emoticon  Við eigum ekki aukaföt til að lána  og verðið þið foreldrar að fylgjast með  því hvort það vanti aukaföt hjá ykkar börnum, annars komum við til með að hringja í ykkur og biðja ykkur um að koma með föt á barnið ef þau vantar. Það þurfa að vera auka buxur, peysa, bolur, nærbuxur og sokkar (2 pör). Ef þið farið með blaut föt heim af barninu - þá þurfa að koma ný föt í hólfið daginn eftir emoticon

                 

Bakka fórum við í Þjóðleikhúsið á skemmtilega sýningu. Og að sjálfsögðu í KR á fimmtudag

           

Nýjar myndir í myndaalbúmi.

Kveðja Bakki og Ból.


23.09.2010 14:07

Gaman saman

         Halló halló...
  Margt skemmtilegt hefur verið að gerast í síðustu viku hjá okkur 
  á Skerjagarði. 
  Hópastarfið er komið á fulla skrið á Bakka og Ból. 
  
               

    Alltaf er jafngaman þegar Berglind tónlistarkennari kemur.   

                  
  
 Löggan kom í heimsókn og var að fræða okkur um umferðareglurnar.   

             

 Mikið hefur verið farið í vettvangsferðir, fjöruferðir, Ásmundarsafnið og í        Norrænahúsið.

              

  Stjörnurnar eru að vinna með stafina og formin, einnig erum við að vinna í jarðleir. 

              

      Könnunnarleikur á Bóli, gaman saman...

            

    Yngri börnin á Bakka í hópastarfi og hreyfingu í Gleðigarði. 
 
             

Við erum búin að setja matseðill fyrir næstu viku á síðuna. 
Í næstu víku fimmtudaginn, verður spiladagur og bókadagur munið að merkja spilin og bækurnar. 
Kveðja Bakki og Ból nýjar myndir í myndaabúminu. 
 
      

10.09.2010 13:34

Ótitlað

Hæ Hæ 
Nú er hópastarfið komið á fullan skrið. 
    
                 

Börnin fóru í KR heimilið á miðvikudaginn og gerði það mikla lukku emoticon 

         
Berglind tónlistakennari kom á fimmtudaginn og kenndi ný lög og dansa. 

                                  
Kveðja Bakki nýjar myndir í myndaalbúminu. 

  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar