|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2010 Nóvember05.11.2010 12:22Ein leið til að eignast vin, er að vera vinur.Hæ hæ.... Nú er farið að kólna í veðri og viljum við biðja ykkur að fara vel yfir hólfin hjá börnunum og athuga
hvort það vanti einhvern útifatnað. Það þurfa að vera tvö pör af hlýjum
vettlingum (helst prjónavettlingar sérstaklega fyrir yngstu börnin þar sem þau
eiga í erfiðleikum með að leika með þykkar lúffur), húfur, hlý peysa, kuldaskór
og kuldagalli. Einnig er nauðsynlegt að hafa pollagallann og stígvél. ![]() Á Bakka er verið að klára að vinna með hafið, við ætlum að vera með foreldrakaffi 3. og 4. desember þar sem börnin geta sýnt ykkur í máli og myndum hvað þau hafa verið að vinna í þemastarfi í haust. Síðan tekur við jólaundirbúningur og fyrsti sunnudagur í aðventu er 28.nóv. Foreldraviðtölin gengu rosavel og gaman hvað margir mættu og hvað allir eru glaðir og ánægðir. ![]() Mikið gaman hvað allir eru orðnir duglegir og klárir leikskólakrakkar á Bóli. Jólaballið verður í Frostaskjóli föstudaginn 10. des frá klukkan 14-16. Við munum eiga þar skemmtilega stund með börnunum á Skerjagarði og fjölskyldu þeirra. Nýjar myndir í albúmi. Kveðja Bakki og Ból.
Flettingar í dag: 135 Gestir í dag: 36 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367726 Samtals gestir: 83302 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |