Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2010 Desember

06.12.2010 13:35

Jólin koma...

Jæja þá er jólaundirbúningur í fullum gangi hér á Skerjó. Við erum farin að æfa okkur að syngja jólalögin fyrir jólaballið sem verður föstudaginn 10. desember kl. 14:00 í Frostaskjóli. Foreldar koma og sækja börnin ekki seinna en klukkan 13:00. Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna fólkið . Leikskólinn sér svo um drykki handa öllum.   Hlökkum til að eiga notalega stund með ykkur.  Auðvitað eru allir velkomnir afar og ömmur og systkini. emoticon

Þriðjudaginn  14. desember fara börn sem fædd eru 2005-2008 í kirkjuna. Það kemur rúta að sækja okkur og tekur hann Sigurvin á móti okkur þar.  Boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

Fimmtudaginn 16. desember er elstu börnunum boðið að koma aftur í kirkjuna og horfa á börn í 4. bekk Melaskóla sýna helgileikemoticon


      

  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar