Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2011 Febrúar

01.02.2011 11:06

Börn eru gullnáma - Hlutverk hinna fullorðnu er að fá gullið til að glóa. Loris Malaguzzi

Þá er febrúar genginn garð. emoticon

    Berglind tónlistarkennari bauð foreldrum að koma í heimsókn í tónlistarstund. Vakti það mikla lukku og margir foreldrar á Bóli komu og tóku þátt. Gaman að sjá hvað litlu krílin  okkar eru dugleg og hvað það er 
gaman hjá þeim. 

            

Það er búið að vera skemmtileg vinna hjá okkur í tröllaþema á Bakka. Það er ýmislegt búið að vera að gera t.d að æfa tröllaleikrit, teikna tröllamyndir, búa til stærðar tröllskessu og fleira skemmtilegt.

               

Stjörnurnar ( skólahópur ) fór í heimsókn í Melaskóla.  Það var lesin saga fyrir þau á bókasafninu og voru þau auðvitað öll til fyrirmyndar. Síðan fengu þau að fara heim með skólabílnum. 

                 

Við viljum síðan minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og athuga hvort það séu ekki örugglega hreinir vettlingar í hólfunum og taka óhreina vettlinga með heim, kíkja líka í þurrkskápinn. Það hefur verið allt of mikið um það að börnin séu ekki með vettlinga eða þá að vettlingarnir hafa verið svo óhreinir og rakir frá því daginn áður og þá er ekki hægt að fara í þá. Einnig viljum við biðja ykkur um að taka með pollagalla heim á föstudögum :)

                                                        

Bóka og spiladagur verður fimmtudaginn 3. febrúar þá geta börnin komið með bækur og spil að heiman.  Við viljum minna á strákadaginn  sem verður  fimmtudaginn 10. febrúar . Þá væri gaman ef strákarnir mættu fínir í leikskólann og stelpurnar gerðu eitthvað skemmtilegt fyrir strákana. 

Börnin á Bóli og yngri börnin á Bakka  taka fyrir grunnlitina  (rauður, gulur,  og blár) og vinna með þá. Í lok hvers litar verður haldið litaball   Við byrjum á rauða litnum. 

Nýjar myndir á heimasíða emoticon

  • 1
Flettingar í dag: 132
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367723
Samtals gestir: 83301
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar