|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2011 Maí19.05.2011 14:10Sumar og sól..Hæ hæ Við viljum þakka ykkur fyrir frábæra mætingu og flottar veitingar á opna húsinu og útskriftinni laugardaginn 14. maí. Að vanda fengum við frábært veður og var dagurinn yndislegur í alla staði. Við viljum minna ykkur á að skrá ykkur í sveitaferðina sem farið verður föstudaginn 27. maí. Skráningarblað hangir uppi á töflunum í fataklefanum hjá Bakka og fyrir framan Ból. Á morgun verður nestisdagur á leikskólanum og mega börnin koma með nesti að heiman. Við ætlum að fara í nestisferð í næsta nágrenni og borða nestið okkar þar. ![]() Við fórum í húsdýragarðinn með börn fædd 2005 og 2006. Þar skoðuðu þau dýrin, vísindatjaldið og léku sér í leiktækjunum. Skemmtileg og notaleg ferð. Nú þegar sumarstarfið er hafið erum við mikið úti og munum við reyna að nýta næsta nágrenni til að leika. Það eru tveir rólóar í göngufæri og svo er mjög stutt að labba niður í fjöru. Einnig eru tveir grasblettir nálægt okkur þar sem hægt er að fara í ýmsa leiki og boltaleiki. Við förum líka í vettvangferðir með elstu börnin á Bakka. þær verða auglýstar jafnóðum, fer eftir veðri. Auðvitað verður bara gott veður í sumar. Nýjar myndir í myndaalbúmi.
Flettingar í dag: 132 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367723 Samtals gestir: 83301 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |