Leikskólinn Skerjagarður
    <language>is</language>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ gær var nestisdagur hjá Bakka og Bóli  og fóru öll börnin í gönguferð og borðuðu nestið úti. Elstu börnin á Bakka fóru í strætóferð upp í Gerðuberg og tóku nestið með :)         Nestisferð yngri börn á Bakka    Nestisferð eldri börn á BakkaHópastarf er farið í gang hjá Bakka og var áhugi hjá börnunum að vinna með umferðina í næsta þema. Hreyfingin byrjar í september. Eldri börnin á Bakka fara í KR heimilið á miðvikudögum og mega þau koma með íþróttaföt með sér. Gott að börnin séu ekki mætt seinna en kl. 8:50.Yngri börnin fara í hreyfingu í Gleðigarð á þriðjudögum.Berglind tónlistarkennari byrjar einnig með tónlistina í september. Stjörnurnar (skólahópurinn) er aðeins byrjaður í skólahóp og eru tvisvar sinnum í viku.    Stjörnurnar (skólahópur)Við ætlum að fara að stað með vinabangsa á Bakka og Bóli. Þá kemur barnið heim með bangsa og dvelur hann hjá því í einn dag. Bók fylgir með bangsanum þar sem gaman væri ef þið foreldrar mynduð aðstoða börnin að skrifa í (útskýringar fylgja með bókinni).Á Bakka verða tveir bangsar einn fyrir eldri hópinn sem heitir Hlynur og einn fyrir yngri hópinn sem heitir Krúttið. Á Bóli verður einn bangsi fyrir eldri börnin sem heitir Birna.                 Krúttið á Bakka Margt spennandi að gerast hjá okkur á næstunni  Það er komnar nýjar myndir inn í myndaalbúmið bæði hjá Bakkakv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið vonum að þið hafið haft það gott í sumarfríinu :)Nú erum við komin á skrið eftir gott sumarfrí.  Aðlögun nýrra barna á Bóli er búin og gekk hún mjög vel. Sumarlegar skvísur á Bakka :)Við viljum minna foreldra barna á Bakka á foreldrafundinn sem verður á morgunn miðvikudag kl.9:00 í fyrramálið. Þá munum við kynna starfið í vetur og einnig mun starfsfólkið kynna sig.Við erum búin að setja inn matseðil fyrir þessa viku á síðuna. Einnig erum við búin að setja inn hópaskiptinguna á Bakka fyrir veturinn sem og skiptingu í hreyfinguna. Við munum setja inn upplýsingar um hópa og fleira á Bóli um leið og það er tilbúið. kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ dag var nestisdagur og komu börnin með nesti að heiman. Yngri börnin á Bakka og börnin á Bóli fóru í gönguferð um hverfið og borðuðum nestið úti í góða veðrinu. Elstu börnin okkar fóru niður í bæ, kíktu á bókasafnið og fengu smá kynningu þar, fóru niður á tjörn og borðuðu síðan nestið úti. Í dag er síðasti dagurinn fyrir sumarfrí og vonum við að þið hafið það sem allra best í sumarfríinu. Við sjáumst svo hress og kát í ágúst (við opnum aftur þriðjudaginn 3. ágúst). Við óskum skólabörnunum okkar velfarnaðar í skólanum  Ps. það eru nýjar myndir í albúminu. Einnig er komin stundaskrá fyrir ágúst inn á síðuna og matseðill fyrir fyrstu vikuna í ágúst.Bestu kveðjur frá öllum á Skerjagarði</description>
Ótitlað
      <description>HæhæSumarhátíðin var haldin þann 16.júní. Þá mættu börnin í furðufötum í leikskólann. Við fórum í skrúðgöngu um hverfið og lékum okkur og dönsuðum úti við tónlist. Í hádeginu var svo pizza og ís í eftirrétt. SumarhátíðinSkólahópurinn fór í útskriftarferð í vikunni. Þau fóru inn í Kópavog á Rútstúnið og léku sér þar. Síðan fóru þau heim til Ellu í heitapottin og fengu pizzu í hádegismat. Þetta var mjög skemmtileg ferð og skemmtu allir sér vel. ÚtskriftarferðinSnúðaskokkið var haldið í gær og voru krakkarnir mjög dugleg að hlaupa. Þegar börnin komu svo í mark eftir mislang hlaup fengu allir metalíur og snúð.  SnúðaskokkiðVið minnum svo á að leikskólinn fer í sumarfrí fimmtudaginn 1. júlí (síðasti dagur fyrir sumarfrí er miðvikudagurinn 30.júní)  :) Við opnum síðan aftur þriðjudaginn 3. ágúst.Á miðvikudaginn 30. júní (Síðasta dag fyrir sumarfrí) verður svo nestisdagur. Þá mega börnin koma með nesti að heiman.Nýjar myndir í myndaalbúminu :)Matseðill fyrir næstu viku er kominn inn á heimasíðunakv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er kominn matseðill fyrir vikuna 21-25 júní inn á heimasíðuna :)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæNú erum við mikið að fara í ferðir með eldri börnin á leikskólanum. Þau yngri fara mikið í gönguferðir um hverfið og oft er tekið nesti með og borðað úti þegar gott er veður.Skólahópurinn okkar fór í  hjólaferð út í Nauthólsvík en það er gert á hverju ári. Nú í ár ákváðum við að fara á hlaupahjólum og gekk það rosa vel. Í Nauthólsvíkinni léku börnin sér, fengu að vaða og svo voru grillaðar pylsur. Í NauthólsvíkStrákarnir í skólahópnum fóru í heimsókn heim til Sóldísar í síðustu viku. Þar léku þeir sér úti og bjuggu svo til pizzu :) Stelpurnar fara svo í næstu viku. Í heimsókn hjá SóldísiÞað var einnig óvissudagur hjá skólahópnum í síðustu viku. Farið var á túnið hjá fjörunni og þar fóru þau í leiki. Síðan var borðað nesti úti-jógúrt og ávexti.  Óvissuferð hjá skólahópnumBörn sem fædd eru 2005 fóru í menningarferð í bæinn í síðustu viku. Þau fóru niður á tjörn og gáfu öndunum brauð, kíktu síðan inn í Ráðhúsið og enduðu svo í Hljómskálagarðinum og léku sér þar og fengu smá nesti :) Bæjarferð Þau börn sem byrja á Bakka eftir sumarfrí komu í heimsókn upp á Bakka á miðvikudaginn. Þar fóru allir í val og farið var yfir helstu reglur sem gilda :) Þetta gekk rosa vel og voru allir mjög duglegir. Hlakkar okkur mikið til að fá þessa flottu krakka upp á Bakka til okkar í ágúst:) Gaman í vali á BakkaBörnin á Bóli hafa farið mikið í gönguferðir um hverfið. Oft er tekið með nesti og borðað úti og er það voða gaman :)  Í fjörunni að borða nesti Sumarhátíðin verður haldin miðvikudaginn 16.júní en þá mega börnin koma í furðufötum (búningum). Börnin hafa verið að búa til kórónur til að hafa þennan dag. Við förum í skrúðgöngu um hverfið, í hádeginu er svo heimabökuð pizza og ís á eftir.   Börnin búa til kórónur fyrir sumarhátíðinaÞað eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið :)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er búið að vera ýmislegt að gerast hjá okkur síðustu daga í góða veðrinu  Á fimmtudaginn var nestisdagur og borðuðu allir nestið úti.  Það er alltaf jafn mikil stemning að borða úti                                      Nestisdagur á BóliBörn sem fædd eru 2006 fóru í ferð í Hljómskálagarðinn á fimmtudaginn og borðuðu nesti sitt þar. Síðan löbbuðum við niður í bæ og enduðum á Austurvelli og fengum okkur ís og fórum í leiki þar.                             Bæjarferð börn fædd 2006Á föstudaginn var síðan sveitaferðin. Farið var á Grjóteyri og skoðuðum við dýrin þar, lékum okkur, borðuðum nesti og áttum skemmtilegan dag saman                                       SveitaferðinÞað eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmiðkv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÁ morgunn fimmtudag verður nestisdagur á leikskólanum og mega börnin koma með nesti að heiman. Við ætlum að fara í nestisferð í næsta nágrenni og borða nestið okkar þar :)Börn sem fædd eru 2006 fara á morgunn í óvissuferð og taka nestið sitt með :)Við viljum líka minna ykkur á að skrá ykkur í sveitaferðina sem farið verður á föstudaginn. Skráningarblað hangir uppi á töflunum í fataklefanum hjá Bakka og fyrir framan Ból.Í síðustu viku fóru börn sem fædd eru 2005 í menningarferð í Norræna húsið. Þau fóru að skoða tilraunalandið þar.   TilraunalandiðSkólahópurinn endaði veturinn í KR heimilinu með því að fara í heita pottinn þar og skemmtu þau sér mjög vel þar. Í heita pottinum í KR heimilinuEinnig höfum við verið mikið úti að leika í ýmsum leikjum Útileikirkv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÁ föstudaginn 14.maí var heilsuskokk hjá okkur og voru börnin mjög dugleg að hlaupa. Þegar þau voru búin að hlaupa fengu allir ávexti á eftir                                HeilsuskokkiðSkólahópurinn fór í Tilraunalandið í Norrænahúsinu í gær og var það mjög skemmtilegt.                             TilraunalandiðVið erum mikið úti að leika þessa dagana. Það er alltaf gaman að sulla í pollunum eða leika með nýja sumardótið                            Gaman úti að leikaÞað eru nýjar myndir í albúminukv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæNú er kominn tími fyrir sólarvörn. Við viljum biðja ykkur um að bera sólarvörn á barnið ykkar áður en það kemur í leikskólann á morgnanna. Einnig viljum við biðja ykkur um að koma með sólarvörn og geyma í hólfinu  hjá barninu (muna að merkja). Við munum svo bera á þau eftir hádegi á sólardögum.Einnig viljum við biðja ykkur um að koma með létta skó á börnin nú þegar það eru farið að vera þurrt og hlýtt úti. Auðvitað þurfa stígvélin líka að vera með alla daga. Á mánudaginn 10. maí og þriðjudaginn 11. maí fóru börn sem fædd eru 2004 og 2005 í Húsdýragarðinn. Þar skoðuðu þau dýrin, vísindatjaldið og léku sér í leiktækjunum. Síðan voru grillaðar pylsur og skemmtu sér allir rosa vel                       Gaman í húsdýragarðinumNú þegar sumarstarfið er hafið erum við mikið úti og munum við reyna að nýta næsta nágrenni til að leika. Það eru tveir rólóar í göngufæri og svo er mjög stutt að labba niður í fjöru. Einnig eru tveir stórir grasblettir nálægt okkur þar sem hægt er að fara í ýmsa leiki og boltaleiki.Við höfum tekið fram fullt af nýju sumardóti sem skemmtilegt er að leika með úti t.d. húllahringi, krítar, sápukúlur og fleira.         Úti á ,,skógarróló,,        Leikið með sumardótÁ föstudaginn verður svo Heilsuskokk og munum börnin þá hlaupa smá hring og fá svo ávexti í verðlaun  Það eru komnar nýjar myndir í myndalbúmiðkv Bakki og Ból</description>
Opið hús
      <description>HæhæVið viljum þakka ykkur fyrir frábæra mætingu og flottar veitingar á opna húsinu og útskriftinni síðastliðinn laugardag. Að vanda fengum við frábært veður og var dagurinn yndislegur í alla staði.            Útskriftarhópurinn 2010                               Opna húsiðNú eru foreldraviðtölin að hefjast. Bakki er með foreldraviðtöl á morgunn fimmtudag 6 maí og föstudaginn 7.maí.Ból er með foreldraviðtöl á þriðjudaginn 11.maí og miðvikudaginn 12. maíÞað hangir uppi skráningarblað á töflunum þar sem þið getið skráð ykkur í viðtal. Sumarstarfið er nú byrjað á Bakka og á Bóli og erum við farin að vera meira úti að leika.Aðlaganir eru einnig byrjaðar á Bóli fyrir næsta vetur. ps. Matseðillinn fyrir maí mánuð og myndir frá opna húsinu eru komnar inn.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæOpið hús og útskrift elstu barnanna verður laugardaginn 1. maí kl 10-12.Útskriftin hefst um kl. 11.00 þá mun útskriftarhópurinn syngja nokkur lög fyrir okkur. Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar hafa komið með veitingar á hlaðborð. Foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna og foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin. Skerjagarður mun svo sjá um drykki.Vonumst til að sjá sem flesta :)Bestu kveðjur Skerjagarður</description>
Ótitlað
      <description>HæhæHreinsunardagurinn sem átti að vera næstkomandi laugardag (24.apríl) verður aflýst. Við ætlum að reyna að hittast einhvern laugardag í maí þegar veðurspáin verður góð. Við munum auglýsa það með stuttum fyrirvara. Börn sem fædd eru 2004 og 2005 fóru í síðustu viku á sýningu í Gerðubergi sem heitir Krummi krunkar úti. Þetta var mjög skemmtileg sýning þar sem börnin tóku þátt. Þau voru búin að búa til krummagrímur og æfa nokkur krummalög fyrir sýninguna. Krummar á krummasýningu Við viljum minna ykkur á að koma með viðeigandi útifatnað á börnin. Það eru margir sem eru ekki með stígvél eða pollagalla þegar það rignir, en það er nauðsynlegt að hafa þennan fatnað alltaf með. Það vantar einnig húfur hjá mörgum og líka vettlinga. Opið hús og útskrift elstu barnanna sem verður laugardaginn 1. maí frá kl. 10-12. Sá háttur hefur verið hafður á að foreldrar hafa komið með bakkelsi sem sett er á sameiginlegt hlaðborð. Foreldrar barna á Bakka hafa komið með bakkelsi fyrir fullorðna fólkið og foreldrar barna á Bóli hafa komið með bakkelsi fyrir börnin.  Skerjagarður hefur svo skaffað drykki. Hlaðborð á opnu húsi 2009.Kv. Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæJæja þá er tröllaþema á enda hjá okkur og eru börnin búin að læra margt um tröllin og búa til ýmislegt í kringum þau. Þau hafa t.d. teiknað tröllamyndir, búið til tröllaleikrit, tröllahelli, tröll úr verðlausum efnivið, tröllagrímur og margt fleira.  Flottar tröllskessur hjá stelpunum :)Hreyfingin er alltaf á sínum stað. Elstu börnin fara í KR heimilið einu sinni í viku og yngri börnin fara í hreyfingu í kjallaranum með Jurate eða Tinnu. Börnin í hreyfingu í  kjallaranumUmferðaskólinn kom í heimsókn til okkar ásamt börnum frá Sælukoti en þau komu á Skerjagarð til að vera með í umferðaskólanum. Þar lærðu börnin allar helst umferðareglurnar og fengu að horfa á skemmtilega bíómynd. Á morgunn miðvikudag fara börn sem fædd eru 2004 og 2005 í Gerðuberg á sýningu sem heitir ,,Krummi krunkar úti,,. Börnin hafa verið að læra ýmsar krummavísur og búið til krummagrímur í tengslum við þessa ferð.Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ síðustu viku var kósýdagurinn hjá okkur og mættu börnin í náttfötum og með bangsa og sum með koddana sína og teppi. Þetta var ótrúlega mikill kósýdagur :)                       Kósýdagur á Bóli og BakkaSíðustu daga höfum við verið að föndra allskonar páskaföndur                         Páskaföndur á Bakka og BóliStundaskráin fyrir apríl er komin inn á heimasíðuna. Það verður margt að gerast hjá okkur í apríl. Elstu börnin (2004) fara í umferðaskólann og á sýningu í Gerðuberg ásamt næst elsta hópnum (2005). Það verður útidótadagur í lok apríl og mega börnin þá koma með eitthvað útidót í leikskólann. Hinn árlegi hreinsunardagur verður svo 24. apríl en þá verður tekið til hendinni í garðinum og hann gerður fínn fyrir sumarið. Opið hús og útskrift elstu barnanna verður svo 1. maí kl. 10-12.GLEÐILEGA PÁSKA ps. nýjar myndir í albúminukv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÁ morgunn fimmtudag verður kósýdagur á Skerjó. Þá mega börnin mæta í náttfötum, með bangsa, kodda og/eða eitthvað sem þeim þykir kósý :) Nú fer að styttast í páskana og erum við byrjuð að föndra ýmiskonar páskaföndur.  Páskaföndur á Bakka Skólahópurinn fór í heimsókn í Melaskóla í síðustu viku og fengu að fara í leikfimistíma með krökkunum þar. Í leikfimistíma í MelaskólaSkólahópurinn er byrjaður að æfa þúsaldaljóðið sem þau munu flytja á útskriftinni og er eitt erindið um ,,eldinn,,. Það hefur mikið verið spáð í eldinn og eldgos eftir að það byrjaði að gjósa í Eyjafjallajökli um helgina og hafa þau teiknað svakalega flottar eldfjallamyndir :) kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>ATH!!!Breytingar á skóladagatali:Hreinsunardagurinn sem átti að vera 1. maí verður laugardaginn 24. apríl og opið hús og útskrift elstu barnanna verður laugardaginn 1.maí en ekki laugardaginn 8.maí eins og stóð í skóladagatalinu. Við ákváðum að breyta þessu þar sem margir foreldrar hafa talað við okkur og beðið okkur um að breyta þar sem margt er í gangi þessa helgi (þ.e. 8 maí).kv Skerjó</description>
Ótitlað
      <description>HæhæTröllaþema:Enn er verið að vinna með tröllaþemað og eru elstu börnin að búa til tröll úr verðlausum efnivið. Yngri börnin eru að klára tröllagrímurnar sínar.  Tröll úr verðlausum efniviðÍ gær þriðjudag fórum við í skemmtilega ferð í Reykjanesbæ. Við fórum af stað kl. 10 og komum aftur heim um kl. 14. Þannig að þetta var löng og skemmtileg ferð. Við fórum að skoða ,,Helli skessunnar,,. Þetta var mjög skemmtilegt og ævintýri líkast fyrir börnin að fá að sjá og heyra í skessunni og prófa að leggjast í stóra rúmið hennar. Við tókum með okkur nesti og fengum að borða það hjá bátasafninu í Duushúsi þar sem veðrið lék ekki við okkur. Það eru fullt af myndum frá ferðinni í myndaalbúminu !!!!Síðastliðinn fimmtudag var gleraugnadagur og komu börnin með margskonar gleraugu í leikskólann GleraugnadagurATH!!!Við viljum biðja ykkur um að fara vel yfir hólfin hjá börnunum ykkar og taka með blauta og skítuga vettlinga heim og koma með hreina og þurra vettlinga aftur í leikskólann. Það er frekar óþægilegt að fara í blauta og skítuga vettlinga út að leika og leikskólinn á ekki auka vettlinga til að lána. Eins er gott að skoða hvernig pollagallarnir líta út og taka með heim og þvo.Í næstu viku (fimmtudag 25.mars) ætlum við að hafa kósýdag og mega börnin þá koma í náttfötum, með kodda, teppi, bangsa eða bara það sem þeim finnst vera kósý  Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna á gleraugnadaginn sem verður á morgunn fimmtudag. En þá mæta allir með gleraugu í leikskólann. Það geta verið sólgleraugu, sundgleraugu eða hvernig gleraugu sem er  .Tröllaþema:Börnin eru að klára ýmis verkefni sem þau eru að gera í tengslum við tröllaþemað t.d. grímur og tröll úr verðlausum efnivið og fleira skemmtilegt.  Fiskahópur og Kisuhópur í hópastarfiHreyfing:  Hreyfingin er alltaf á sínum stað bæði á Bakka og á Bóli. Börnin eru mjög dugleg og áhugasöm. Hreyfing hjá Bakka og BóliSkólahópurinn fór í heimsókn í Selið í Melaskóla á föstudaginn síðastliðinn. Var það mjög gaman og voru börnin mjög stillt og prúð í heimsókninni. Það eru komnar fullt af nýjum myndum inn í myndaalbúmið.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæMatseðill fyrir mars mánuð er kominn á heimasíðuna  </description>
Ótitlað
      <description>HæhæJæja þá er snjórinn loksins kominn til okkar og er búið að vera gaman að leika úti síðustu daga.   Tröllaþema. Yngri börnin (2005 og 2006) eru að búa til tröllagrímur. Eldri börnin eru að búa til tröll úr verðlausum efnivið. Í síðustu viku var dótadagur og er hann alltaf jafn vinsæll hjá bönunum. Þá komu börnin með dót að heiman og léku sér saman með það.ps. Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 26. febrúar vegna námskeiðsdags starfsfólks. Á morgunn fimmtudag 25. febrúar verður dótadagur og mega börnin þá koma með eitt dót í leikskólann. Munið að merkja dótið :)Tröllaþema: Börnin hafa verið að búa til ýmislegt í tengslum við tröllaþemað. Börnin á Bóli eru að búa til tröllagrímur. Börnin á Bakka hafa verið að teikna tröllamyndir á glærur, búa til tröll úr verðlausum efnivið og margt fleira skemmtilegt. Teiknað á glærur           Búið til TröllagrímurVið höfum einnig verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið og skoða ,,tröllasteina,,. Börnin á Bóli að finna tröllastein Yngri börnin á Bakka (2005 og 2006) og elstu börnin á Bóli (2006) fóru í strætóferð upp í Gerðuberg. Þar skoðuðum við tvær sýningar sem voru í gangi. 1) ,,Þetta vilja börnin sjá,,  er sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum sem komu út 2009.2) ,,Strengir,, er sýning á leikbrúðum, grímum og búningum Messíönu Tómasdóttur frá nokkrum sýningum Strengjaleikhússins um þriggja áratuga skeið.  Gerðubergps. það eru nýjar myndir í myndaalbúminu.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ dag er öskudagur og er búið að vera mikið fjör hjá okkur. Börnin mættu öll í skemmtilegum búningum og hittumst við svo öll niðri á Bóli og sungum saman nokkur lög og slógum ,,poppið úr öskupokanum,,   Þegar búið var að borða poppið fóru börnin af Bakka upp að dansa og í leiki og börnin á Bóli dönsuðu niðri á Bóli.   Krakkarnir á Bakka fengu síðan skemmtilega heimsókn en það komu nokkrir ungir drengir og sungu fyrir okkur Gamli Nói og fengu þeir auðvitað smá gotterí fyrir. Í hádegismat var síðan pizza.  Poppið slegið úr pokanum   Skemmtilegir búningarÍ gær þriðjudag fór skólahópurinn í heimsókn í Borgarleikhúsið. Það var mjög skemmtileg ferð og margt að skoða. Börnin voru alveg til fyrirmyndar í ferðinni og var haft orð á því hversu stillt og prúð þau voru og erum við mjög stollt af þeim   Börnin fengu að prófa allskonar leikmuniAnnars er tröllaþema ennþá í fullum gangi og ýmislegt brallað í kringum það   Fjallið málað                Leikritið um BúkolluVið viljum enn og aftur minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 26. febrúar en þá er námskeiðsdagur hjá starfsfólki. Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæBól:Krakkarnir í fiskahóp eru búin að vera að teikna tröllamyndir og læra margt um tröllin. Þau eru einnig búin að fara í göngu að leita að tröllasteinum.  Yngri börnin eru í myndsköpum og könnunarleik. Einnig hafa þau verið að fara í gönguferðir um hverfið og eru börnin mjög dugleg að labba.  Hreyfing: Við tengjum hreyfinguna líka tröllaþemanu og förum í allskonar tröllaleiki. Bakki: TRÖLLAÞEMAEldri börnin  á Bakka hafa verið að vinna heilmikið með tröllin. Þau eru búin að búa til tröllafjall og skuggaleikhús (Búkollu) og margt fleira.  Yngri börnin: TRÖLLAÞEMADýra- og hvolpahópur er að æfa leikritið um Búkollu og er búinn að búa til leikmynd sem tengist því.          Kisuhópur er að æfa leikritið um Geiturnar þrjar og tröllið undir brúnni og útbúa leikmynd tengda því.  Yngri börnin fóru einnig í gönguferð í leit að tröllasteinum. Þau fundu fullt af tröllasteinum :) Á föstudaginn verður vinastund á Bóli kl. 9:00. Þá koma krakkarnir á Bakka í heimsókn á Ból og við syngjum saman nokkur lög sem við höfum verið að æfa  Á miðvikudaginn í næstu viku er Öskudagur og mega börnin þá koma í furðufötum eða náttfötum í leikskólann. Við minnum á að ekki er æskilegt að koma með vopn sem fylgja ýmsum búningum í leikskólann. Mjög gott er líka að merkja aukahluti sem börnin koma með :-) Við minnum á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 26. febrúar vegna námskeiðsdags starfsfólks. kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er búið að vera nóg að gera hjá okkur í tröllaþema bæði á Bakka og Bóli. Það er ýmislegt búið að vera að gera t.d. að æfa tröllaleikrit, teikna tröllamyndir, búa til tröllafjall og fleira skemmtilegt.  Skólahópurinn okkar fór í heimsókn í Melaskóla á miðvikudaginn. Það var lesin saga fyrir þau á bókasafninu og voru þau auðvitað öll til fyrirmyndar. Síðan fengu þau að fara heim með skólabílnum.  Í gær fimmtudag var spiladagur og var það mjög skemmtilegt. Við spiluðum allan morguninn og skiptust börnin á að spila saman. Það er alltaf gaman að læra ný spil :) Hann Sigurvin frá kirkjunni kom í heimsókn til okkar í dag föstudag. Við sungum saman, hann sagði okkur mjög skemmtilega sögu og svo komu Rebbi refur og Mýsla í heimsókn líka :)Við viljum síðan minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og athuga hvort það séu ekki örugglega hreinir vettlingar í hólfunum og taka óhreina vettlinga með heim, kíkja líka í þurrkskápinn. Það hefur verið allt of mikið um það að börnin séu ekki með vettlinga eða þá að vettlingarnir hafa verið svo óhreinir og rakir frá því daginn áður að það er ekki hægt að fara í þá. Einnig viljum við biðja ykkur um að taka með pollagalla heim á föstudögum :)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er búið að vera nóg að gerast hjá okkur í síðustu daga. Á fimmtudaginn var bæði vasaljósadagur og einnig fengum við að sjá leikritið um hann Einar Áskel. Börnunum þótti rosalega gaman að horfa á leikritið, bæði þau yngstu og elstu. Börnin sátu allan tímann og horfðu á með áhuga.Vasaljósadagurinn var líka skemmtilegur og mættu öll börnin með vasaljós :)  Vasaljósadagur  Leikritið um hann Einar ÁskelÞorrahátíðin heppnaðist líka vel. Börnin voru búin að búa til þorrahatta og mörg mættu þau í lopapeysu sem gerði stemninguna skemmtilega. Í boði var allskonar þorramatur s.s. hákarl, hrútspungar, lundabaggi, lifrapylsa, harðfiskur, sviðasulta og svo auðvitað grjónagrautur. Harðfiskurinn og lifrapylsan voru vinsælust en mörg börn smökkuðu hákarlinn, hrútspungana og lundabagga við mis-miklar vinsældir :) Þorrahátíðin Nú eru allir hópar bæði á Bakka og á Bóli farin að skoða tröllin í hópastarfinu. Tveir elstu árgangarnir (2004 og 2005) fóru á bókasafnið og fengu sögustund þar. Lesin var sagan um Skessuna sem leiddist. Síðan fengu þau að láni nokkrar tröllabækur á bókasafninu sem við getum lesið. Við höfum líka farið í allskonar tröllaleiki bæði úti og inni og teiknað tröllamyndir.                Freyja Dís og Lára Ósk teikna       Leikritið um kiðlingana þrjá  tröllamyndir .                               og tröllið undir brúnni.Í næstu viku fimmtudaginn 4. febrúar verður síðan spiladagur og mega börnin þá koma með eitt spil (eða púsl) að heiman. Munið að merkja spilin vel :)Föstudaginn 26. febrúar verður námskeiðsdagur hjá starfsfólki Skerjagarðs og verður þá leikskólinn lokaður. ps. það eru nýjar myndir í albúminu.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna á vasaljósadaginn sem verður á morgunn fimmtudag (21. jan). Þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum að hafa öll ljós slökkt um morguninn og verður gaman að leika sér með vasaljósið í myrkrinu.Á morgunn fimmtudag fáum við einnig að sjá leikritið um hann Einar Áskel og byrjar það klukkan 9:30. Þessi leiksýning er í boði  foreldrafélagsins.Á föstudaginn 22. jan. verður þorrahátíð hér á Skerjagarði. Þá fáum við að smakka þorramat og gaman væri ef börnin eiga lopapeysur, að mæta í þeim þennan dag. Við erum aðeins byrjuð að vinna með tröllaþemað. Við höfum verið að spjalla um tröllin og heyra hvað börnin vita um tröllin. Við höfum verið að lesa tröllasögur, syngja tröllalög og fara í ýmiskonar tröllaleiki. Í næstu viku ætlum við svo að fara á bókasafnið og sækja fleiri tröllabækur og fáum þá einnig sögustund á bókasafninu. Börn sem eru fædd 2004 og 2005 fara á bókasafnið.      Mikael að skoða tröllabók      Börnin breyta sér í tröllkv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Hæhæ  Í næstu viku, föstudaginn 22. jan byrjar þorrinn og erum við byrjuð að búa til þorrahatta sem börnin verða með á þorrahátíðinni. Eins og undanfarin ár verðum við með þorramat í boði og eru börnin mjög spennt að smakka og þá sérstaklega hákarlinn :) Gaman væri ef börnin mættu í lopapeysum í leikskólann þennan dag til að hafa daginn sem þjóðlegastann. Kisuhópur að mála þorrahattaÍ næstu viku ætlum við að fara að byrja með nýtt þema og varð Tröllaþema fyrir valinu. Öll börnin á Bakka og elstu börnin á Bóli verða með í þessu þema.Skessan í fjallinuFimmtudaginn 21. janúar verður leiksýningin um Einar Áskel sýnd hér á leikskólanum og byrjar hún kl. 9:30.Úr leiksýningunni um Einar ÁskelMatseðillinn er kominn inn á heimasíðunakv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæGLEÐILEGT NÝTT ÁR !! Nú fer starfið að hefjast hjá okkur aftur eftir langt og gott jólafrí  Við byrjum á fullum krafti í næstu viku og finnum okkur þá eitthvað skemmtilegt þema til að vinna með.Búið er að setja inn stundaskrá fyrir janúar inn á heimasíðuna og einnig er búið að senda þær til ykkar í tölvupósti.Skólahópurinn hefur farið í KR heimilið annan hvern miðvikudag fyrir jólin, en nú verður breyting á því, við ætlum að fara alla miðvikudaga. Það hafa allir svo gaman og gott af þessari hreyfingu og var því ákveðið að fara vikulega í KR heimilið. Viljum við biðja foreldra um að láta börnin hafa með sér íþróttaföt alla miðvikudaga. Einnig er hægt að geyma íþróttafötin í leikskólanum og taka öðru hverju heim og þvo ef þið viljið það.Það er búið að setja inn fullt af nýjum myndum inn síðan í desember, frá heimsókn í þjóðmynjasafnið, kirkjuferðinni og fleira skemmtilegt.Á morgunn fimmtudag verður bókadagur á leikskólanum og mega börnin koma með eina bók í leikskólann og við reynum að lesa sem flestar bækurnar. MUNIÐ AÐ MERKJA BÆKURNAR .kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja að þakka ykkur fyrir frábæra mætingu á jólaballið síðastliðinn föstudag og takk fyrir allar kræsingarnar            Jólaveinninn                     Dansað í kringum jólatréiðÞað er búið að vera nóg um að vera hjá skólahópnum okkar síðustu daga. Á mánudaginn fóru þau í Grasagarðinn á kaffihús.   Í gær þriðjudag fóru þau svo í Árbæjarsafnið að skoða allt gamla dótið og fengu þau einnig fræðslu í leiðinni.  Í dag miðvikudag fóru þau svo í KR heimilið í íþróttir Börnin á Bóli og yngri börnin á Bakka voru svo dugleg að baka muffins fyrir kaffihúsið. Börnin á Bóli og börn fædd 2006 á Bakka fóru í dag á ,,kaffihúsið,, á Skerjagarði og fengu muffins og safa. Kaffihúsastemming á SkerjóEins og áður sagði breyttist kaffihúsaferðin hjá yngri börnunum (2005) á Bakka. Þau fara í Grasagarðinn næstkomandi föstudag 11. des. f.h. Það gæti því verið að vinastundin breytist eitthvað þ.e. að hún verði á morgunn fimmtudag eða seinna um daginn á föstudaginn. Munið!!! Jólahúfudagur verður á föstudaginn. Þá mæta allir með jólasveinahúfur :)ATH!! Á morgunn ætlum við að hafa brunaæfingu á leikskólanum og viljum við biðja ykkur foreldra um passa upp á að það séu auka sokkar hjá börnunum ykkar því að við þurfum að fara út á sokkunum.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæJólaballiðVið viljum byrja á að minna ykkur á jólaballið sem haldið verður næstkomandi föstudag 4. desember. Jólaballið byrjar klukkan 14:00 og viljum við biðja ykkur um að sækja börnin um kl. 13:00 (ekki seinna en 13:30). Jólasveinninn mun svo kíkja á okkur um klukkan 14:15.Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna og foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin. Afar, ömmu og systkini eru velkomin að koma með og eiga skemmtilega stund með okkur.                                           Kaffihúsaferðin í Grasagarðinn 7. desember hjá Bakka breytist aðeins. Það var hringt í okkur frá Grasagarðinum og þær höfðu tvíbókað fyrir hádegi þann 7. des. þannig að börn sem fædd eru 2005 (og áttu að fara þann 7.des f.h) fara á kaffihús í Grasagarðinum 11. desember í staðinn. Elstu börnin (2004) fara 7. desember eftir hádegi eins og stendur á stundatöflunni. Annars eru allir komnir í jólaskap hér á Skerjó. Við erum í rólegheitum að búa til jólaskraut og syngja jólalögin.               Jólaföndur                      Aðventustund á BakkaMatseðill fyrir desember er kominn inn á heimasíðunakv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæNú er farið að kólna í veðri og viljum við biðja ykkur að fara vel yfir hólfin hjá börnunum og athuga hvort það vanti einhvern útifatnað.  Það þurfa að vera tvö pör af hlýjum vettlingum (helst prjónavettlingar sérstaklega fyrir yngstu börnin þar sem þau eiga í erfiðleikum með að leika með þykkar lúffur), húfur, hlý peysa, kuldaskór og kuldagalli. Einnig er nauðsynlegt að hafa pollagallann og stígvél. Jæja þá er jólaundirbúningur í fullum gangi hér á Skerjó. Við erum farin að æfa okkur að syngja jólalögin fyrir jólaballið sem verður föstudaginn 4. desember kl. 14:00 í Frostaskjóli. Foreldar koma og sækja börnin ekki seinna en klukkan 13:00. Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna fólkið . Leikskólinn sér svo um drykki handa öllum. Föstudaginn 11. des verður svo Jólavinastund á Bóli og jólahúfudagur  og mega börnin þá koma með jólasveinahúfu í leikskólann.  Elstu tveir árgangarnir fara í kaffihúsaferð í Grasagarðinn mánudaginn 7. desember. Yngri börnin (2005) fara f.h. og eldri börnin (2004) fara e.h. Við munum einnig fara í húsdýragarðinn og leika okkur þar. Börn sem fædd eru 2006-2008 fara á kaffihús í Skerjagarði miðvikudaginn 9. desember. Við munum breyta eldhúsinu okkar í kaffihús og fá heitt kakó og nýbakaðar muffins sem við ætlum að baka mánudaginn 7. des og þriðjudaginn 8 des.   Þriðjudaginn 15. desember fara börn sem fædd eru 2004-2006 í kirkjuna. Það kemur rúta að sækja okkur og tekur hann Sigurvin á móti okkur þar. Fimmtudaginn 17. desember er elstu börnunum boðið að koma aftur í kirkjuna og horfa á börn í 4. bekk Melaskóla sýna helgileik.Þriðjudaginn 22. desember verður svo foreldrakaffi klukkan 14:30 og er það síðasti dagur fyrir jólafrí.Leikskólinn verður svo lokaður á þorláksmessu og á milli jóla og nýárs. Við opnum aftur mánudaginn 4. janúar. ATH!!! Á morgunn fimmtudag verður svo náttfataball og mega börnin þá koma í náttfötum og með bangsa með sér. kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÁ fimmtudaginn í síðustu viku var heilsuskokk og hlupu börnin smá hring og fengu síðan ávexti á eftir. Það er alltaf jafn hressandi að hlaupa  Á föstudaginn síðasta var vinastund á Bakka og komu börnin á Bóli upp til okkar og sungu við saman nokkur lög. Elstu börnin á Bakka enduðu svo vinastundina á að syngja ,,Myndina hennar Lísu,, fyrir okkur.             Vinastund á Bakka        Elstu börnin syngja fyrir okkur Á Bakka og Bóli er jólaundirbúningur í fullum gangi. Við erum að föndra, búa til jólagjafir,jólakort og jólapappír. Við erum aðeins farin að syngja jólalögin og komast allir í jólaskap við það. Börnin endurvinna pappír  -Jólaferðin í Árbæjarsafnið sem auglýst var á stundatöflunni mánudaginn 30.nóvember verður ekki þann dag heldur færist hún til þriðjudagsins 8. des. Það eru nokkrar nýjar myndir á heimasíðunnikv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍþróttaálfurinn kom í heimsókn til okkar og gerði með okkur nokkrar æfingar og spjallaði við krakkana. Skemmtu börnin sér vel og fannst mjög gaman að hitta íþróttaálfinn. BólÁ Bóli eru börnin að byrja að föndra jólaföndur :) Annars höfum við verið dugleg að vera úti að leika og farið í gönguferðir. Hreyfingin er alltaf á sínum stað og finnst börnunum mjög gaman í hreyfingunni.  Eldri börnin fara alltaf í val tvisvar sinnum í viku og einnig er mikið spilað.     Eldri börnin á Bóli í vali   Spilað á BóliBakkiYngri börnin á Bakka- eru búin að klára fjölskyldumyndirnar og eru þær mjög flottar og skemmtilegar eins þið eruð mörg búin að fá að sjá :) Annars erum við núna byrjuð að föndra fyrir jólin og búa til endurunninn pappír. Við höfum líka verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið og eru börnin mjög dugleg að ganga.            Yngri börn í gönguferð          Börnin rífa niður dagblöð                                   í endurunninn pappírEldri börnin á Bakka- Hafa farið mikið út fyrir leikskólann og skoðað. Þau fóru á listasýningu Yosimtoma Nara og skoðuð skemmtileg verk þar (sjá myndaalbúm) Á listasýningunni Yosimtoma NaraÞau fóru einnig að skoða Hallgrímskirkju og voru þau mjög áhugasöm um kirkjuna. Þegar þau komu heim þá fóru nokkrir krakkar í einingakubbana og byggðu kirkjuna úr þeim :) HallgrímskirkjaSkólahópurinn fékk einnig heimsókn frá slökkviliðinu sem fræddu börnin  um reykskynjara og fleira. Þau fengu að horfa á fræðslumynd um eldsvoða, og síðan fengu þau að fara út og skoða sjúkrabílinn og heyra sírenuvælið   Slökkviliðið í  heimsókn Matseðillinn er kominn inn á síðuna og nýjar myndir í albúmið :)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæNæstkomandi föstudag 30.október kemur íþróttaálfurinn í heimsókn til okkar á Skerjagarð. Hann kemur kl. 9:30 og þurfa því börnin að vera mætt fyrir þann tíma til að missa ekki af honum  Börnin mega mæta í íþróttaálfabúning eða í íþróttafötum þennan dag og sjáum við til þess að þetta verði góður íþróttadagur. EldhúsiðHún Mumbi okkar er komin í fæðingarorlof og hefur hann Óli tekið við að elda handa okkur næstu 2-3 mánuðina.BólFiskahópur hefur verið að æfa sig í fínhreyfingum og verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið.Yngri börnin hafa verið dugleg í myndsköpun, í könnunarleik og svo eru þau líka mjög dugleg að leika úti.  Könnunarleikur BakkiÍ síðustu viku fóru elstu börnin í heimsókn á Árbæjarsafn að skoða sýningu sem heitir ,,Komdu að leika,,. Þar fengu börnin að sjá dót sem var vinsælt í ,,gamla daga,, og fengu þau að leika með það. Þar voru líka allskyns búningar sem þau mátuðu og gerðu leikrit.  Á Árbæjarsafninu sýning ,,Komdu að leika,,Elstu börnin eru að vinna með ævintýrin og eru þau búin að velja sér ævintýri sem þau ætla að setja upp. Þau hafa ákveðið að vinna með ævintýrið um Gullbrá og birnina þrjá og Grísirnir þrír.  ,,Gullbrá og birnirnir þrír,, Yngri börnin á Bakka hafa verið að æfa sig í fínhreyfingum. Þau eru einnig að vinna með fjölskylduna sína. Þau hafa líka verið mjög dugleg að fara í gönguferðir um hverfið.Í síðustu viku var furðufataball og var gaman að sjá hvað börnin voru í skemmtilegum búningum og skemmtu sér vel. Slegið var upp furðufataballi á Bakka og farið var í ýmsa leiki.   FurðufatadagurAlþjóðlegi bangsadagurinn var í gær þriðjudag og máttu börnin koma með bangsa með sér í leikskólann. Mörg börn mættu með bangsa með sér.  Alþjóðlegi bangsadagurinnATH! Við vorum að breyta atriðum í skóladagatalinu fyrir veturinn 2009-2010 sem er hér inni á heimasíðunni.       Foreldraviðtölin verða á Bakka fimmtudaginn 5 nóvember og föstudaginn 6. nóvember og á Bóli þriðjudaginn 10. og miðvikudaginn 11. nóvember.   Jólaballið var skráð 11. desember en það verður 4. desember í Frostaskjóli.   Einnig færðum við kaffihúsadagana aftur um eina viku þar sem jólaballið færðist fram um eina viku.   Stundatafla fyrir nóvember er komin inn á heimasíðuna.   Einnig eru nýjar myndir í  myndaalbúminu   KV Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Munið bangsadaginn á morgunn þriðjudag. Þá mega börnin koma með bangsa í leikskólann     </description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum bara minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 23. október og mánudaginn 26. október vegna skipulags- og námskeiðsdags.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja á að þakka ykkur fyrir góða mætingu á foreldrafundinn      Á morgunn fimmtudag 8. október verður gleraugnadagur í leikskólanum. Þá mæta allir með gleraugu í leikskólann, það geta verið t.d. sólgleraugu, sundgleraugu eða hvernig gleraugu sem er  Næsta föstudag verður vinastund á Bóli. Þá koma krakkarnir af Bóli og Bakka saman og syngja nokkur lög saman.  Einnig munu eldri börnin á Bóli syngja eitt lag fyrir hin börnin sem þau eru búin að æfa  Ból: Fiskahópur á Bóli er enn að vinna með vinaþemað. Þau eru búin að mála og skreyta vinasteinana sína. Þau hafa einnig verið mjög dugleg að fara í gönguferðir um hverfið. Yngri börni hafa einnig farið mikið í gönguferðir. Deltasandurinn er líka vinsæll hjá litlu krílunum okkar á Bóli.                     Leikið með Deltasand Bakki: Elstu börnin á Bakka (Snillingarnir) hafa ákveðið taka fyrir eitthvað ævintýri, æfa það og leika og útbúa allt sem því tilheyrir þ.e. búninga, leikmuni og þess háttar. Þessi hugmynd kom í kjölfarið af heimsókninni í Þjóðleikhúsið sem þau fóru í um daginn. Þau voru mjög áhugasöm og spennt eftir að hafa farið í heimsóknina og var ákveðið að fara út í leikræna tjáningu. Þau fóru á bókasafnið í síðustu viku og tóku fullt af bókum með ævintýrum sem þau eru að lesa og ákveða síðan hvaða ævintýri þau ætla að vinna með. Við höfum einnig verið að fylgjast með yngri börnunum á Bakka og athuga hvort það sé eitthvað sem þau eru að sýna áhuga á. Við höfum ekki enn ákveðið hvað næsta viðfangsefni verður en ætlum núna að fara að vinna aðeins með fjölskylduna okkar    Á bókasafninu í GerðubergiHann Sigurvin frá kirkjunni kom í heimsókn til okkar síðasta föstudag. Hann spjallaði aðeins við okkur, við sungum saman og svo kom hann með allskonar ,,dýr,, (t.d. hund, Rebba ref og fleiri) sem við fengum að heilsa upp á                   Sigurvin í heimsókn á Bakka og BóliÞað eru nýjar myndir í albúminu  ps. Það væri rosa gaman að heyra frá ykkur í gestabókinni  kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæMunið foreldrafundinn sem verður í kvöld hér á Skerjagarði kl. 20:30. Við munum kynna starfið í vetur og einnig mun starfsfólkið kynna sig. Vonumst við til að sjá sem flesta í kvöld  Ból:Á Bóli er fiskahópur enn að vinna með vinaþemað. Börnin máluðu vinasteinana sína sem þau týndu í fjörunni í síðustu viku.       Bakki: Börnin á Bakka hafa farið mikið í ferðir í síðustu viku. Elstu börnin fóru í heimsókn í Þjóðleikhúsið og hlustuðu þar á ævintýrið um Búkollu og fengu síðan að skoða leikhúsið. Yngri börnin á Bakka (fædd 2005) fóru í Norræna húsið á kvikmyndasýningu þar sem þau horfðu á stuttmyndir-teiknimyndir.        Í Norræna húsinu      Í ÞjóðleikhúsinuEinnig fóru elsu börnin í KR heimilið í dag miðvikudag og fóru þar í hreyfingu. Við höfum fengið salinn þar að láni og munum fara þangað annahvern miðvikudag með elstu börnin í hreyfingu og leiki.    Hreyfing í KR heimilinukv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Viðbragðsáætlun Skerjagarðs vegna inflúensunar er komin inn á heimasíðuna. Þið farið í ,,skrár,, og þar er hægt að nálgast hana :)</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna á foreldrafundinn sem verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 20:30 :) Starfsfólk kynnir sig og kynning verður á starfinu í vetur.  Veitingar í boði :)Gunnar Leifur ljósmyndari kom í dag og tók myndir af börnunum. Gekk myndatakan mjög vel. Hann tók mynd af öllum börnunum og fá foreldrar síðan sýnishorn af myndunum (vonandi í næstu viku) og geta þá ákveðið hvort þeir vilja kaupa myndina eða ekki :)Börnin á Bóli í myndatökuBakki:Nú er vinaþemað á enda hjá okkur á Bakka og förum við fljótlega að finna okkur nýtt þema til að skoða :) Við enduðum vinaþema með vinaballi og var mjög mikið fjör á ballinu.  Vinaball á Bakka :)Ból:Eldri börnin á Bóli eru enn að vinna með vinaþemað. Í gær fór fiskahópur í fjöruna að tína steina til að mála :)Yngri börnin fóru í gönguferð út á skógarróló að leika og hafa síðan verið í könnunarleik og leik inni og úti.Á Bóli var líka vinaball í síðustu viku og skemmtu allir sér mjög vel :)  Vinaball á Bóli            Í fjörunni           Úti á skógarrólóATH! Nýjar myndir í myndaalbúminu :)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæNú er mjög blautt í veðri og gaman að leika úti í pollunum. Börnin koma mjög blaut inn úr útiverunni og vantar allt of oft aukaföt í hólfin hjá þeim     Við eigum ekki aukaföt til að lána og verðið þið foreldrar að fylgjast með  því hvort það vanti aukaföt hjá ykkar börnum, annars komum við til með að hringja í ykkur og biðja ykkur um að koma með föt á barnið ef þau vantar. Það þurfa að vera auka buxur, peysa, bolur, nærbuxur og sokkar (2 pör). Ef þið farið með blaut föt heim af barninu - þá þurfa að koma ný föt í hólfið daginn eftir      -Við viljum minna á ljósmyndarann sem kemur miðvikudaginn 23. september og tekur mynd af börnunum ykkar. -Foreldrafundur verður haldinn á Skerjagarði miðvikudagskvöldið 30. september kl. 20:30. Þá munum við kynna starfið í vetur sem og starfsfólk. Ból- Í hópastarfi hjá eldri börnunum (fiskahóp) er enn verið að vinna með vináttuna. Á morgunn fimmtudag verður vinaball    Yngri börnin á Bóli fara í könnunarleikinn, mála og leika sér úti og inni Þau eru eru líka búin að vera að mála mynd og stimpla hendurnar fyrir vinakeðjuna okkar.   Bakki- Öll börnin á Bakka hafa verið að vinna með vináttuna þessa vikuna. Þau hafa verið að mála vinasteina og klára vinakeðjuna og fleira skemmtilegt. Við endum vinaþemað með vinaballi sem verður á morgunn fimmtudag    Ath! Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna !!!!kv Bakki og Ból</description>
      <description>HæhæNú er byrjað að kólna aðeins í veðri og er því nauðsynlegt að börnin séu vel búin í leikskólanum. Nauðsynlegt er að hafa húfur, vettlinga, hlýja úlpu og góða peysu til að vera í undir pollagallanum í hólfunum sem og góða skó auk stígvéla. Við viljum einnig biðja ykkur um að setja fötin (útföt sem og aukaföt) í hólfin þeirra þannig að þau geti náð í þau sjálf og klætt sig í. Börnin eru mjög dugleg að klæða sig sjálf og leiðinlegt þegar eitthvað vantar :-)BólÁ Bóli hefur Fiskahópur verið að vinna með vináttuna. Þau hafa verið að stimpla hendur á diska til að setja í vinakeðjuna okkar. Þau hafa einnig málað vinamynd tvö og tvö saman og spjallað heilmikið um vináttuna.Yngri börnin hafa verið að fara í hópastarf og könnunarleikinn. Einnig hafa þau verið að fara í stuttar gönguferðir um hverfið.  BakkiElstu börnin á Bakka eru enn að vinna með skordýraþemað. Einnig hafa þau verið að æfa sig að sauma og hefur það gengið mjög vel.  Yngri hóparnir hafa verið að mála vinasteinana sem við týndum í fjörunni í síðustu viku. Mikil umræða hefur verið um vináttuna og sungin vinalög.  Vinastund:Í síðustu viku var fyrsta Vinastundin. Börnin á Bóli komu í heimsókn upp á Bakka og sungu við nokkur lög saman. Yngri börnin á Bakka sungu í lokin eitt lag fyrir hin börnin. Þetta var rosalega skemmtileg stund og fannst börnunum á Bóli mjög spennandi að koma í heimsókn á Bakka. Næsta vinastund verður svo fyrsta föstudag í október og þá munu börnin á Bakka fara niður á Ból og heimsækja börnin þar.  Fullt af nýjum myndum í albúminu.ps. Við viljum líka minna á Gestabókina. Okkur finnst voða gaman að heyra frá ykkur :-)kv Bakki og Ból-Hér koma upplýsingar í sambandi við ljósmyndarann sem kemur í leikskólann og tekur myndir af börnunum.Kæru foreldrarForeldrafélag Skerjagarðs stendur fyrir því að fá hann Gunnar Leif Jóhannsson ljósmyndara til að koma og taka myndir af börnunum n.k. miðvikudag 23. september. Gunnar mun bæði taka hópmyndir af hvorri deild og einstaklingsmyndir.  Reiknað er með að hópmyndataka verði fljótlega upp úr 9 og því nauðsynlegt að börnin mæti ekki seinna en 9 á föstudagsmorguninn. Eftirfarandi tilboð býðst foreldrum sem hafa áhuga á að kaupa myndir: Verð: 3.500 ISK per barn.  (Það er ekki veittur systkynaafsláttur þar sem þetta er allra lægsta verð) Innifalið:  Hópmynd í stærðinni 20x25 með nöfnum inná ásamt einstaklingsmynd í nokkrum stærðum, 1 stk 13X18, 1. stk 9X12 og fjórar passamyndir, tilvalið í sumarfríið og til að hafa í veskinu. Gunnar er eigandi að Barna og fjölskylduljósmyndum.  Nánari upplýsingar um stofu hans og starfsemi hennar er hægt að finna á ljosmyndir.net. Vonum að þið séu öll jafn ánægð með þetta framtak eins og við :) Með góðri kveðju,Stjórn foreldrafélagsins.</description>
Ótitlað
      <description>HæhæAth! Leikskólinn verður lokaður á föstudaginn 4. september. Það varð smá villa í stundaskránni hjá Bóli en þar kom ekki fram að leikskólinn sé lokaður, en það eru báðar deildar lokaðar!!!!!BólHópastarfið er komið á fullt skrið hjá eldri börnunum á Bóli. Þau fundu nafn á hópinn og heitir hann Fiskahópur. Yngri börnin hafa verið að vinna í myndsköpun og farið í könnunarleikinn. Þau fóru einnig gönguferð um hverfið og var það voða gaman. Hreyfingin er komin á fullt og fara eldri börnin á Bóli á fimmtudögum í hreyfingu.BakkiElstu börnin á Bakka eru enn að skoða skordýrin. Við fengum í síðustu viku rosalega fallegt og stórt fiðrildi sem eitt foreldri kom með handa okkur.  Haft var samband við Náttúrugripasafnið og vildu þau endilega fá fiðrildið þangað og fóru börnin í heimsókn á safnið.   Yngri börnin hafa verið að klára að skreyta vinakeðjuna (stimpla hendur og skreyta) og er keðjan byrjuð að myndast í stiganum á leið upp á Bakka. Við fórum einnig í fjöruferð að finna vinasteina sem við ætlum að mála og skreyta.      Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu  kvBakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæHeilsuskokkið var í gær og tóku börnin á Bakka bara þátt að þessu sinni. Krakkarnir voru mjög dugleg að hlaupa og síðan fengu allir ávexti á eftir.   Bakki - Yngri börnin á Bakka eru enn að vinna með vináttuna.             Eldri börnin eru enn að skoða skordýr og vinna með þau. Tvisvar í viku höfum við tjáningu á Bakka með yngri börnunum. Þá standa þau upp fyrir framan hin börnin og segja frá einhverju skemmtilegu.   Ból - Hópastarf á Bóli byrjar í næstu viku. Litlu krílin eru að æfa sig að vera á leikskóla og gengur það mjög vel. Annars hafa þau verið dugleg að vera úti að leika og elstu börnin farið í gönguferðir um hverfið. HreyfingEins og fram kom í fréttabréfinu þá verður engin tónlist í vetur. Í staðin fyrir hana ætlum við að hafa skipulagða hreyfingu. Jurate sér um hreyfinguna með yngri börnunum á Bakka og Tinna sér um hreyfinguna fyrir eldri börnin á Bóli og fer hvert barn einu sinni í viku í hreyfingu. Vinafundir - Einu sinni í mánuði ætlum við að hafa svokallaða Vinafundi. Þá hittast börnin á Bóli og Bakka og syngja saman. Önnur deildin sér um þessa stund hverju sinni og ákveður hvaða lög verða sungin og svo sýna börnin á þeirri deild eitt atriði fyrir hin börnin. Við hittumst á þeirri deild sem sér um vinastundina hverju sinni. Bakki ætlar að byrja að sjá um þessa stund og koma þá börnin á Bóli upp á Bakka. Við ætlum að hafa þessa stund alltaf fyrsta föstudag í mánuði kl. 9:00. Þar sem leikskólinn verður lokaður föstudaginn 4. september ætlum við að byrja fimmtudaginn 3. september. Munið skipulagsdaginn föstudaginn 4. sept. Þá er leikskólinn lokaður.kv Bakki og Ból</description>
Skipulagsdagur 4. sept og fleira
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna ykkur á að föstudaginn 4. september verður skipulagsdagur hjá starfsfólki og er þá leikskólinn lokaður. Bakki: Skólahópurinn á bakka er á fullu að skoða skordýrin. Þau fengu til að mynda geitungabú til að skoða og var það mjög spennandi. Þau hafa verið að setja upp skordýargildrur og veitt allskyns skordýr í þær. Yngri börnin eru að spjalla um vináttuna. Við byrjum á að stimpla hendurnar okkar á blað og ætlum við að búa til vinakeðju úr öllum höndunum.Í gær fóru yngstu börnin á Bakka í hópastarf og fundu nafn á hópinn sinn og heitir hann KISUHÓPUR (Tómas Magni, Salka Dögg , Anna María og Áslaug).  Ból:Aðlaganir á Bóli eru að taka enda og hafa þær gengið mjög vel. Skipulagt starf á Bóli byrjar svo í september. Elstu börnin á Bóli hafa verið að fara í gönguferðir um nánasta umhverfi að tína lauf og fleira.   Á morgunn fimmtudag er útidótadagur og mega börnin þá koma með eitt útidót með sér í leikskólann. Munið að merkja dótið vel !!!Við erum búin að setja á heimasíðuna skóladgatal fyrir skólaárið 2009-2010. Þar getið þið fylgst með því sem er að gerast hjá okkur á þessu skólaári. Þar eru til að mynda allir skipulags- og námskeiðsdagar komnir inn. Einnig er fréttabréf ágústmánaðar komið inn á heimasíðuna. Þið farið inn í Skrár og þar ýtið þið á fréttabréf. Við erum einnig búin að setja eitt eintak í hólfin hjá börnunum og senda tölvupóst með fréttabréfinu.Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmiðkv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVonandi hafa allir haft það gott í sumarfríinu í þessu frábæra veðri sem við fengum Nú er allt komið á fullt skrið hjá okkur.  Aðlaganir nýrra barna á Bóli ganga mjög vel og viljum við bjóða ný börn og foreldra þeirra velkomin í hópinn.Nestisdagurinn sem var á þriðjudaginn gekk mjög vel. Við fórum út fyrir leikskólalóðina og drukkum nesti en fengum ekki alveg að njóta okkar þar sem geitungar voru á sveimi allt í kringum okkur og gerði okkur lífið leitt Skólahópurinn okkar er búinn að fara í skólahóp og fundu þau nafn á hópinn og heita þau SNILLINGARNIR  Annað starf byrjar hægt og rólega hjá okkur, en elstu börnin fengu mikinn áhuga á öllum skordýrunum í kringum okkur og eru farin að skoða þau nánar. Þau eru til að mynda búin að búa til skordýragildru og fleira skemmtilegt. Yngri hóparnir ætla að byrja á vináttunni en hún skiptir miklu máli hjá þeim. Þau allra yngstu ætla að byrja að aðlagast leikskólanum og er það heilmikið nám hjá þeim  Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna og einnig matseðill fyrir ágúst mánuð. Bestu kveðjur Bakki og Ból</description>
Sumarfrí :-)
      <description>Hafið það sem allra best í sumarfríinu. Sjáumst hress í ágúst     Bestu kveðjur frá öllum á Skerjagarði</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVorum að bæta við myndum í myndaalbúmið frá Heilsuskokki hjá Bóli og Sumarhátíð Ból </description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ síðustu viku var sumarhátíðin hjá okkur og gekk hún rosa vel,  þó að veðrið hafi ekki alveg verið eins og við vorum búin að panta  Börnin mættu í búningum og fóru í skrúðgöngu um hverfið með hristur og hatta sem þau höfðu búið til í leikskólanum og fána. Síðan var pizza í hádegismat og borðuð allir vel af henni.    Á fimmtudaginn fóru eldri börnin á Bóli í nestisferð út á Aparóló. Farið var í allskonar hlaupaleiki þar sem börnin hlupu um leikvöllinn og upp á hól og hinir klöppuðu á meðan  . Síðan var borðað nesti og leikið sér.  Á fimmtudaginn næsta verður íþróttadagur hjá okkur á Skerjó.  Þá væri gaman ef börnin mættu í íþróttafötum og ætlum við að fara í allskonar íþróttaleiki  Við minnum á að síðasti dagur fyrir sumarfrí er þriðjudagurinn 30. júní. Við opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst.Það eru komnar myndir í albúmið frá sumarhátíðinni og nestisferðinni á Aparóló.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæBörnin hafa verið mikið úti í góða veðrinu síðustu daga og einnig höfum við farið í skemmtilegar ferðir út fyrir hverfið með eldri börnunum.Hljómskálagarðurinn-yngri börnin á Bakka og nokkur frá Bóli   Kjarvalsstaðir- fórum að skoða sýningu sem heitir Kjarval og dýrin. Fengum okkur síðan nesti úti og lékum okkur í leiktækjunum- börn fædd 2004   Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið :-)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er kominn matseðill fyrir júní inn á heimasíðuna :-)kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum bara minna á nestisferðina sem verður á morgunn laugardaginn 6. júní kl 15:00 í Hljómskálagarðinum. Allir sem geta/vilja mæti með börnin og nesti við leiktækin í Hljómskálagarðinum. Vonumst til að sjá sem flesta.Foreldrafélagið</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÉg var að setja inn fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið. Í síðustu viku fóru eldri börnin á Bakka í Húsdýragarðinn og léku sér þar og grilluðu pylsur í hádeginu.  Yngri börnin á bakka fóru í fjöruferð með stækkunargler og háfa og rannsökuðu sjávarlífið. Við tókum líka nesti með.  Nestisdagurinn heppnaðist líka mjög vel og komu börnin öll með hollt og gott nesti og borðuðu það úti.  Minnum svo á að skrá sig í sveitaferðina :-)kv Bakki og Ból   </description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum bara minna ykkur á að skrá ykkur í sveitaferðina sem fyrst svo að hægt sé að fara að panta rútuna.  Skráningarblaðið er á töflunni hjá Bóli.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað eru tveir nýjir starfsmenn byrjaðir hjá okkur á Skerjagarði. Það eru þær Tinna og Sonja. Tinna er á Bóli og Sonja á Bakka. Við bjóðum þær velkomnar. Við viljum svo minna ykkur á Opið hús sem verður á Laugardaginn 9. maí kl. 11-13. Vonumst við til að sjá sem flesta.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Kæru foreldrarHreinsunardagurinn sem átti að vera á morgunn laugardaginn 2. maí verður aflýst vegna veðurs. kv Skerjó</description>
Ótitlað
      <description>HæhæLoksins heyrist frá okkur hér á Skerjó  Við viljum byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs sumars og takk kærlega fyrir skemmtilegan vetur. Hreinsunardagurinn verður á Skerjagarði næstkomandi laugardag 2.maí kl. 11-14. Þá hittast foreldrar og börn hér á leikskólanum og taka til hendinni á leikskólalóðinni. Vonandi sjáum við sem flesta.  Það er alltaf gaman að hitta aðra foreldra og spjalla saman um leið og við gerum leikskólalóðina snyrtilega. Laugardaginn 9. maí kl. 11-13 er svo opið hús og útskrift elstu barnanna.Nú fer starfið aðeins að breytast hjá okkur þar sem sumarið er komið. Þá erum við meira út að leika og í förum í vettvangsferðir um hverfið okkar.  Einnig er tónlistin með Berglindi tónlistakennara hætt þennan veturinn. Á Bakka ætlum við að nota mánudagana til þess að fara í gönguferðir og útileiki. Miðvikudagar verða vettvangsdagar en þá förum við í styttri og lengri vettvangsferðir. Á föstudögum ætlum við svo að hafa hreyfingu, þá förum við í ýmsa boltaleiki, hlaupum, klifrum og gerum margt skemmtilegt.  Fimmtudagar verða áfram uppákomudagar en núna í maí verður útidótadagur og nestisdagur. Við ætlum einnig að hafa þemavikur á Bakka og tengist starfið áfram inn í þær en meira verður um vettvangsferðir og útiveru í kringum þær. Á Bóli verður farið í vettvagsferðir um hverfið á mánudögum. Á miðvikudögum verður leikjadagur en þá verður farið í skemmtilega úti- og innileiki.  Fimmtudagar verða áfram uppákomudagar. Núna í  maí verður útidótadagur og nestisdagur. Sveitaferðin verður á sínum stað föstudaginn 29. maí. kl. 13:00 Farið verður á Hraðastaði sem er í Mosfellsdalnum. Dýrin verða skoðuð og svo verður grillað. -Við viljum minna foreldra barna á Bakka á foreldraviðtölin sem verða á morgunn þriðjudag og á miðvikudaginn. ps. Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. Það eru nýjar myndir á 6 fyrstu síðunum  Einnig er komin stundaskrá fyrir maímánuð inn á heimasíðuna (farið inn í Bakki eða Ból og þar stendur stundaskrá maí). Einnig er ég búin að senda hana til ykkar í tölvupósti.  Endilega látið mig vita ef þið fáið ekki tölvupóstinn þá gæti verið að við séum ekki með rétt tölvupóstfang. kv Bakki og Ból.</description>
Ótitlað
      <description>HæhæSkerjagarður á afmæli í dag- 6ára Viljum síðan minna á námskeiðsdag starfsfólks sem verður föstudaginn 24. apríl og verður þá leikskólinn lokaður.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞá enn ein vikan búin og nóg að gera hjá okkur á Bakka og Bóli.Á fimmtudaginn var foreldrakaffi á Bakka þar sem börnin sýndu foreldrum afrakstur þemavinnunnar þ.e. ,,umferðin,, og ,,ég sjálfur,,. Frábær mæting var og viljum við þakka ykkur fyrir komuna. ÞemavinnaUmferðin: Hópaverkefni- Börnin máluðu umferðagöturnar, bjuggu til umferðamerki, bíla (löggubíla, slökkviliðsbíla og venjulega bíla) og hús (slökkvistöð, löggustöð, hús sem var að kvikna í), sem voru síðan sett á göturnar.    UmferðarverkefniÉg sjálfur:  Börnin máluðu kallana sína, skoðuðu eyrun. Nokkur börn bjuggu til umferðamerki og umferðaljós :-)  Börnin á Bóli skoðuðu nefið og notuðu skynfærin til að finna lykt og bragð.   Ég sjálfurLitirnir: Börnin eru byrjuð að skoða gula litinn. Vil viljum minna á Kósídag sem verður næsta fimmtudag (19.mars). En þá mega börnin koma í náttfötum, með kodda, teppi, bangsa eða eitthvað sem þeim finnst kósí að vera með. Skólahópurinn er byrjaður að æfa Þúsaldaljóð, þ.e. um jörðina, vatnið, loftið og eldinn. Þeir vinna einnig ýmis verkefni tengd þessu. Textana við þessi lög er að finna hér inn á heimasíðunni undir-söngtextar-Þúsaldarljóð eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. ATH!Við viljum enn og aftur biðja ykkur um að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og sjá til þess að þar sé allur sá útifatnaður sem börnin þurfa á að halda til að geta verið úti að leika (kuldagalli, húfur, kuldaskór,stígvél, pollagalli, hlý peysa og að minnsta kosti tvö pör af vettlingum).  Það eru allt of mörg börn sem eru ekki með vettlinga og þá er mjög kalt að vera úti að leika í frostinu bbrrrrrrrr......Nýjar myndir í myndaalbúminukv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er allt gott að frétta af okkur á Skerjó.  Þemastarf:Umferðin- Hóparnir ákváðu að gera umferðagötur með umferðamerkjum á. Rassálfarnir máluðu umferðagötur á stórt blað og Leðurblökurnar bjuggu til lítil umferðamerki til að setja á umferðagöturnar. Ath! Það er mjög skemmtileg umferðasíða með allskyns umferðaleikjum fyrir krakka inn á slóðinni www.us.is  (Umferðastofa). Þar er t.d. leikur sem heitir ,,Innípúkinn í umferðinni,, sem er mjög skemmtilegur leikur  þar sem börnin hjálpa Innipúkanum að finna Matthildi og Dodda og þarf hann að fara yfir götur og lærir umferðareglurnar í leiðinni. Einnig eru þar samstæðuleikir með umferðamerkjunum og fleira.   Ég sjálfur- Börnin notuðu skynfæri til að finna lykt og bragð. Settur var allskyns matur í skál og álpappír yfir. Þau fengu svo að lykta af skálinni og áttu að giska á hvað var í skálinni. Þau voru mjög klár að finna út hvað var í skálinni. Síðan fengu þau að smakka á því sem var í skálinni. Þau máluðu einnig kallana sína. Þeir eru orðnir svo flottir    Litirnir- Börnin eru búin að vinna með bláa litinn og var blátt ball á síðasta föstudag. Næsti litur sem börnin vinna með er gulur (páskaliturinn)Á fimmtudaginn 12. mars verður foreldrakaffi á Bakka kl. 14-16. Þá ætla börnin að sýna afrakstur þemavinnunnar þ.e. ,,umferðin,,og ,,ég sjálfur,,. ATH!Við viljum benda ykkur á að föstudaginn 24. APRÍL verður leikskólinn lokaður vegna námskeiðsdags starfsmanna. (Ath! það er einnig lokað fimmtudaginn 23. apríl en þá er sumardagurinn fyrsti).Það eru komnar myndir í myndaalbúmið. Einnig nýr matseðill. Ég var einnig að senda til ykkar stundatöfluna fyrir mars mánuð, þannig að þið getið fylgst með því sem er á döfinni hjá okkur.Einnig viljum við benda ykkur á að skoða heimasíðuna með börnunum ykkar og fá þau til að segja ykkur frá því sem er að gerast hjá okkur. Þeim finnst það mjög gaman. Við fórum með nokkur börn í tölvuna hjá okkur og skoðuðum myndir af heimasíðunni og þeim fannst það mjög spennandi  kv. Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað var mikið um að vera í síðustu viku en þá var bollu-, sprengi-, og öskudagur. Á bolludeginum fengum við auðvitað bollu í kaffitímanum og fannst börnunum þær rosalega góðar. Á spengidegi borðuðu allir yfir sig af saltkjöti og baunum. Síðan var það hinn lagþráði öskudagur sem allir voru búnir að bíða eftir með spenningi  . Börnin mættu í allkyns furðufötum. Öll börnin hittust niður á Bóli og var ,,snakkið slegið úr pokanum  . Þegar börnin voru búin að borða snakkið var dansað og farið í dansleiki. Eftir hádegi var svo farið út að leika.      Bolludagur     ÖskudagurÞemastarf:Umferðin- Þar sem öskudagur kom upp á miðvikudegi þá féll þemastarfið niður. Börnin hafa mikið verið að spila umferðaspilið í vikunni sem þau bjuggu til og einnig höfum við verið að spjalla mikið um umferðina og sungið umferðalög.     Ég sjálfur- börnin hafa verið að skoða nefið og lyktarskynið. Börnin á Bóli voru að búa til líkamann sinn og skoða andlitið sitt í spegli, sem þau svo vinna áfram með.       Litirnir- Börnin hafa verið að vinna með bláa litinn. Blár dagur verður svo á Bóli næsta föstudag 6. mars en þá mæta allir í einhverju bláu.  Á fimmtudaginn næstkomandi þ.e. 5. mars þá fara tveir elstu árgangarnir í heimsókn á bókasafnið. Bókasafnið bauð okkur að koma í heimsókn og fá fræðslu um meðferð bóka og fleira. Á föstudaginn 6. mars fer svo skólahópurinn í leikfimi út í Melaskóla. Foreldrakaffi verður svo á Bakka 12. mars. kl. 14-16.  Þá langar okkur til að sýna foreldrum afrakstur þemavinnunnar sem stendur yfir núna. Einnig er komin stundatafla fyrir mars mánuð inn á heimasíðuna. Í mars ætlum við að hafa kósídag ( 19. mars) en þá geta börnin mætt í náttfötum, með bangsa sinn, kodda eða teppi eða hvað sem ykkur dettur í hug sem er kósí   Á Bakka verður svo spila- og púsldagur en á Bóli verður bóka- og geisladiskadagur (26. mars). Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Hæhæ Í síðustu viku vorum við með dótadag og fannst krökkunum mjög gaman að koma með dót að heiman og sýna öðrum og skiptast á. Við bjuggum einnig til bolluvendi í síðustu viku sem börnin tóku með sér heim. Þau ætluðu svo öll að bolla mömmu og pabba í morgunn (vonandi hafið þið vaknað vel í morgunn kæru foreldrar).   Meistararnir fóru í heimsókn í Melaskóla á miðvikudaginn. Þeir voru mjög spenntir og stóðu sig mjög vel í heimsókninni. Síðan var farið heim með skólabílnum.HópastarfUmferðinBörnin bjuggu umferðarminnisspil í síðustu viku. Þeim finnst mjög gaman að spila þetta spil og sjá merkin sem þau bjuggu til :-)Ég sjálfurVið notuðum hópastarfstímann til að búa til bolluvendi  LitirnirBörnin eru enn að vinna með bláa litinn. Blár dagur verður svo á Bóli 6. mars en þá mæta allir í einhverju bláu :-)Á miðvikudaginn er Öskudagur og mega börnin þá koma í furðufötum í leikskólann. Við minnum á að ekki er æskilegt að koma með vopn sem fylgja ýmsum búningum í leikskólann. Mjög gott er líka að merkja aukahluti sem börnin koma með :-) kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞá er enn og aftur komin ný vika og nóg að gera hjá okkur á Skerjagarði. Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu flestir með nesti með sér. Við settumst niður inni á deild og borðuðum nestið okkar, kíktum á hvað hinir voru með og skiptumst á nesti :-)   Þemastarf:Umferðin-Börnin kláruðu umferðamerkin sín og voru mjög ánægð með þau. Við bjuggum einnig til umferðaljós með því að stimpla hendurnar okkar á blað ,rautt, gult og grænt.   Ég sjálfur- Börnin teiknuðu inn á líkamann sinn augu og tóku mynd af nefinu sínu og límdu á   Nokkur börn bjuggu líka til umferðamerki eins og eldri börnin.   Litirnir- Nú eru börnin farin að skoða bláa litinn. Þau skoða ýmislegt sem er blátt og föndra með bláa litinn. Á fimmtudaginn næsta verður dótadagur hjá okkur. Þá mega börnin koma með eitt dót í leikskólann. Það væri mjög gott ef þið merktuð dótið sem börnin koma með. Við viljum einnig minna á að það er ekki í boði að koma með kökur þegar börnin eiga afmæli. Það er í boði að koma með ís, snakk og grænmeti. Þegar líður að afmæli barnanna þá setjum við miða í hólfin þar sem við minnum á hvað er í boði að koma með og viljum við biðja ykkur um að virða það Það eru nýjar myndir í albúminu kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæMeistararnir áttu að fara í heimsókn í Melaskóla í síðustu viku en því  miður urðum við að fresta því þar sem mikil veikindi voru hjá börnunum. Við fáum að fara fljótlega í heimsókn og munum við auglýsa það þá.Í síðustu viku var Rauður dagur á Bóli þar sem börnin eru búin að vera að vinna með rauða litinn. Margir mættu í rauðum fötum og deildin var skreytt rauðum hlutum sem börnin höfðu búið til.              Þemastarfið er í fullu gangi.Umferðin- Börnin eru búin að klára umferðamerkin sín. Við fórum einnig í strætóferð þar sem við skoðuðum umferðina og umferðamerkin og börnin leytuðu að sínu umferðamerki. Þeim finnst mjög gaman þegar þau sjá sitt merki  Ég sjálfur- Börnin hafa verið að skoða bækur um líkamann. Þau hafa teiknað sinn líkama í réttri stærð og teikna síðan inn á hann líkamshluta s.s augun og fleira. Þau hafa verið að skoða sérstaklega augun sín.   Litirnir- Börnin hafa verið að skoða rauða litinn og enduðu þau það með því að hafa rauðan dag. Næst ætla þau að skoða bláa litinn.  Meistararnir eru byrjaðir að æfa Þúsaldaljóðið þ.e. lagið um jörðina, vatnið, loftið og eldinn.  Við byrjum að vinna með jörðina. Við veltum fyrir okkur ýmsu í tengslum við jörðina, myndskreytum, förum í ýmsa leiki og fleira.Næsta fimmtudag 12. febrúar verður nestisdagur og mega börnin þá koma með nesti að heiman.Þetta hefur alltaf verið mjög vinsælt hjá börnunum.Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.ps. okkur finnst líka alveg rosalega gaman að heyra frá ykkur í gestabókinni kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ síðustu viku var strákadagur og heppnaðist hann mjög vel. Strákarnir mættu fínir og flottir í leikskólann og var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Elstu strákarnir á Bakka (2003 og 2004) fóru í strákaferð á bókasafnið og hlustuðu þar á sögu sem heitir Rauða eplið. Þeir vöktu auðvitað athygli því þeir voru allir svo fínir í skyrtu með bindi og sumir í jakkafötum. Fengu þeir síðan að leika á bókasafninu. Síðan var farið og keyptar kleinur og kókómjólk. Eftir hádegið fengu þeir svo að velja hvort þeir vildu vera inni að leika eða úti. Yngri strákarnir og Bakka og strákarnir á Bóli fengu kaffihúsastemmingu í eldhúsinu og fengu allir snúða og mjólk.    Á föstudaginn var grímuball á Bakka. Börnin höfðu öll búið til grímur í leikskólanum og var ákveðið að slá upp balli þar sem allir voru með sínar grímur.     Miðvikudaginn næsta þ.e. 4.febrúar fara Meistararnir í heimsókn í Melaskóla. Þeir fara þar á bókasafnið, fá að kíkja inn í skólastofu og enda á því að fara í heimsókn í Selið. Farið verður kl. 13:30.Í febrúar ætlum við að hafa Nestisdag (12.feb) þar sem börnin mega koma með nesti að heiman sem þau borða hér í leikskólanum. Einnig hafa börnin mikið verið að spyrja um dótadag og ætlum við að hafa dótadag 19.febrúar. Þá mega börnin koma með eitt dót að heiman (muna að merkja dótið).25. janúar er svo öskudagur og mega þá allir koma í furðufötum. Þá sláum við ,,köttinn úr tunnunni,, og dönsum saman.Þemastarf:Umferðin- börnin hafa fengið eitt umferðamerki sem þau æfðu sig að teikna og síðan máluðu þau sitt umferðamerki og ætlum við að setja spítu á það þannig að þetta verður ,,alvöru,, umferðamerki. Þau hafa farið í gönguferð og skoðað umferðamerkin og leitað að sínu umferðamerki. Ég sjálfur- Börnin hafa verið að skoða augun sín. Einnig hafa þau verið að teikna líkamann sinn þ.e. strikað eftir útlínum á stórt blað og eiga svo eftir að vinna meira með það.Litirnir- börnin hafa verið að skoða rauða litinn. Þau hafa verið að mála með rauðum lit, skoðað ýmisa hluti í umhverfinu sem eru rauðir og fleira. Á föstudaginn næsta verður svo rautt ball á Bóli og væri gaman ef allir mættu í einhverju rauðu.Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið og stundataflan fyrir febrúar er líka komin inn.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum minna á strákadaginn sem verður næsta fimmtudag 29.júní. Þá væri gaman ef strákarnir mættu fínir í leikskólann og stelpurnar gera eitthvað skemmtilegt fyrir strákana. Annars er þemað í fullum gangi. Eldri börnin á Bakka hafa verið að skoða umferðarmerkin, teikna umferðamynd og farið í göngu um hverfið og skoðað umferðamerkin í hverfinu okkar. Yngri börnin á Bakka og eldri á Bóli sem eru að skoða ,,ég sjálfur,, eru byrjuð að skoða augun sín og hafa verið teknar ljósmyndir af þeim og þau geta skoðað sig...hvernig lít ég út?Yngstu börnin á Bóli hafa verið að vinna með rauða litinn. Rautt ball verður svo haldið á Bóli 6. febrúar. Næstkomandi fimmtudag 29.jan fara eldri börnin á Bakka í sögustund á Borgarbókasafnið. Þá ætlar bókasafnsfræðingur þar að lesa fyrir okkur sögu (hún ætlar að reyna að finna einhverja umferðasögu).Við viljum svo minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna á hverjum degi og sjá til þess að það séu alltaf þurrir vettlingar (2 pör). Það eru mjög mörg börn sem vantar vettlinga í útiverunni. Einnig að passa upp á að það séu alltaf húfur og viðeigandi skór og auðvitað kuldagalli, regngalli og hlý peysa)  Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmiðkv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description> Hæhæ-Þorrablótið heppnaðist alveg rosalega vel í dag hjá okkur. Krakkarnir voru búnir að búa til þorrahatta og mættu mörg börn í lopapeysum og voru mjög þjóðleg .  -Við fengum að smakka á allskyns þorramat t.d. hákarl, súrhval, lundabagga, hrútspunga, súra svínasultu, sviðasultu, slátur, harðfisk og fleira. Börnin voru mjög dugleg að smakka en misjafnt var hvernig þeim fannst maturinn. Sumir fengu sér nokkra bita af hákarl og fannst hann bara góður.Eftir hádegi héldum við svo þorraball, Bakki og Ból saman. Þar sungum við nokkur lög og síðan dönsuðum við og skemmtun okkur vel.    -Við vorum líka svo heppin að það var hringt í okkur frá stöð 2 í morgunn og komu þeir í heimsókn til okkar og tóku upp matartíma hjá elstu börnunum. Þeir spjölluðu við börnin og fylgdust með þegar þau smökkuðu á þorramatnum. Endilega fylgist með fréttum stöðvar 2 í kvöld.Það eru komnar myndir frá þorrablótinu í myndaalbúmið .Góða helgi kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæJæja þá er ný vika að hefjast og verður nóg að gera í þessari viku. Nú erum við að fara að byrja á fullu í þemastarfi. Á Bakka eru eldri með umferðareglurnar og yngri með ,,ég sjalfur,, og á Bóli eru elstu með ,,ég sjálfur,, og yngri með litina.Í síðustu viku fóru tveir elstu árgangarnir á Bakka í heimsókn í VÍS (tjónadeild) og fengu þar fræðslu um umferðareglurnar og fengu að sjá bíla sem hafa lent í umferðaóhappi og voru margir bílarnir mikið klesstir.  Í þessari viku ætlum við svo að vinna úr þessari heimsókn.Í síðustu viku var vasaljósadagur og fannst börnunum mjög gaman að leika með vasljós úti og inni í myrkrinu og heppnaðist sá dagur mjög vel.Á föstudaginn næsta er svo bóndadagur og þorrinn hefst og ætlum við að hafa þorramat í boði hér á Skerjagarði. Börnin búa til þorrahatta og gaman væri ef þau gætu komið í lopapeysu í leikskólann.Tónlistin byrjaði aftur síðasta fimmtudag og föstudag og finnst börnunum alltaf jafn gaman að fara í tónlist til hennar Berglindar. kv Bakki og Ból</description>
Nýtt þema og fleira
      <description>HæhæHún Ananda er hætt hjá okkur  . Hún er að fara til Chile í heimsókn og óskum við henni góðrar ferðar og velfarnaðar  .Nú erum við að fara af stað með nýtt þema á báðum deildum.-Eldri  hóparnir á Bakka ætla að taka fyrir umferðina. Við ætlum að fara vítt og breytt í að fjalla um umferðina og sjá hvað börnin vilja skoða nánar.-Á fimmtudaginn 15. janúar förum við í vettvangsferð í VÍS en þar verður tekið á móti okkur og fjallað um ýmislegt sem tengist umferð og umferðaröryggi.  -Við erum að læra nýtt lag sem tengist umferðinni og er það svona:                                                                                        Rauði karlinn (lag. Gamli nói)    Rauði karlinn, rauði karlinnkallar til þín hér.Hann biður þig að bíða best er því að hlýða.Stans hann segir,stans hann segir.Stans og gættu að þér.   Græna karlinn, græna karlinnkrakkar þekkja flest.Göngumerkið gefurgát á öllu hefur.Yfir götu öll við göngumglöð í einni lest.ATH! Ef þið lumið á einhverju skemmtilegu heima sem tengist umferðinni á einn eða annan hátt þá megið þið endilega senda börnin með það í leikskólann t.d. bækur, myndir, hlutir eða hvað sem er.-Yngri hóparnir á Bakka og elstu börnin á Bóli ætla að taka fyrir,,Ég sjálf(ur) og nánasta umhverfið mitt,,. -Yngri börnin á Bóli taka fyrir grunnlitina (gulur, rauður og blár)og vinna með þá. Í lok hvers litar verður haldið litaball  -Meistararnir fara í heimsókn í Melaskóla mánudaginn 26. janúar kl. 13:30.  Heimsóknin hefst á skólasafninu þar sem börnin fá fræðslu um skólann og hlusta á sögu. Í lokin er svo Selið skoðað. Tónlistin með Berglindi tónlistarkennara byrjar svo aftur hjá okkur í þessari viku, Ból á fimmtudaginn og Bakki á föstudaginn. Á stundaskránni stóð að hún ætti að byrja í síðustu viku en það breyttist.Við viljum síðan minna á vasaljósadaginn sem verður næstkomandi fimmtudag. Þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum að fara snemma út þennan dag og leika okkur með vasaljósið í myrkrinu.Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.Kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæJæja þá erum við komin á stað aftur eftir gott jólafrí. Við vonum að þið hafið öll haft það rosalega gott um jól og áramót. Það er komin stundaskrá fyrir janúar inn á síðuna. Í janúar ætlum við að hafa vasaljósadag en þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum einnig að hafa strákadag. Þá mæta strákarnir fínir í leikskólann og stelpurnar gera eitthvað skemmtilegt fyrir strákana. Föstudaginn 23. janúar verður svo Þorrahátið. Þá ætlum við að vera þjóðleg og  smakka á þorramat og gaman væri ef börnin mættu í lopapeysu í leikskólann þann dag (þeir sem eiga).Matseðill fyrir janúar er einnig kominn inn á síðuna. kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Kæru foreldrar og börnVið óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári    Jólakveðja frá Skerjagarðips. nýjar myndir í albúminu</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum bara minna á að á morgunn þriðjudag 16. desember förum við í Neskirkju. Við förum með rútu og fer hún frá leikskólanum klukkan  9:00 stundvíslega þannig að börnin þurfa að vera mætt ekki seinna en kl. 8:45 í leikskólann.Á miðvikudaginn 17. desember fara Meistararnir (skólahópur) aftur í kirkjuna og þá til að horfa á helgileik sem nemendur úr Melaskóla flytja. Þá þurfa þeir að vera mættir í leikskólann ekki seinna en kl. 9:00.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVil viljum byrja á þakka ykkur öllum fyrir frábæra mætingu á jólaballið og æðislegar kræsingar         Í þessari viku ( miðvikudag og fimmtudag) verður farið á kaffihús með tvo elstu árgangana (2003 og 2004) á leikskólanum. Þeir ætla að fara í Húsdýragarðinn og fá kakó og kleinur og fara svo og hlusta á jólasögu. Börn fædd 2005 ætla að hafa kaffihúsastemningu hér á leikskólanum á morgunn miðvikudag kl. 9:30 og börn fædd 2006 og 2007 á fimmtudaginn á sama tíma  Á þriðjudaginn í næstu viku þ.e. 16.des förum við í Neskirkju. Farið verður með rútu frá leikskólanum. Þar hlustum við á prestinn, syngjum saman og svo fá allir kakó og smákökur áður en haldið er heim aftur.Munið svo að skórinn fer út í glugga á fimmtudaginn 11. desemberps. Myndir frá jólaballinu eru komnar í albúmið. Það eru tvö albúm með myndum í  kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Hæhæ allirJæja þá erum við komin í jólaskap hér á Skerjó. Við erum byrjuð að syngja jólalögin og gera allskonar jólaskraut.  Við höfðum aðventustund á föstudaginn þar sem við kveiktum á fyrsta aðventukertinu þ.e. spádómskertinu og sungum saman ,,Við kveikjum einu kerti á....,,         Við kveikjum einu kerti á...(S. Muri/Lilja Kristjánsdóttir)     Við kveikjum einu kerti á,Hans koma nálgast fer,sem fyrstu jól í jötu láog jesúbarnið er.  Við kveikjum tveimur kertum áog komu bíðum hans.Því Drottin sjálfur soninn þámun senda´ í líking manns.  Við kveikjum þremur kertum áþví konungs beðið er,þótt Jesús sjálfur jötu og stráá jólum kysi sér.  Við kveikjum fjórum kertum á;brátt kemur gesturinnog allar þjóðir þurfa að sjáað það er frelsarinn.  Á föstudaginn 5. desember verður jólaballið og verður það haldið í Frostaskjóli kl. 14:00. Þið þurfið að vera búin að sækja börnin í leikskólann ekki seinna en kl. 13:00.Foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna. Það er kominn matseðill fyrir desember inn á síðuna og einnig stundaskráin fyrir desember. Við settum einnig stundaskránna í hólfin hjá börnunum þannig að allir ættu að hafa fengið eintak og geta því fylgst með þegar eitthvað er um að vera hjá okkur. Nú er búið að breyta morgunmatnum hjá okkur og var þetta fyrsti dagurinn í dag þar sem við vorum einungis með hafragraut í boði og fannst okkur sem flestir væru bara ánægðir með þessa breytingu  Það gæti tekið einhver börn nokkra daga að aðlagast þessu en við erum þess viss um að það tekur ekki langan tíma og það verða flestir farnir að borða hafragraut af bestu lyst áður en langt um líður  Stelpudagurinn var hjá okkur í síðustu viku og komu stelpurnar þá fínar í leikskólann. Á Bakka bjuggu strákarnir til hálsmen handa stelpunum og stelpurnar fóru í Gleðigarð og bjuggu til kórónu handa sér. Síðan var slegið upp balli þar sem strákarnir buðu stelpunum upp í dans  Á Bóli bjuggu stelpurnar sér til kórónu og voru inni að leika     Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.Kv Bakki og Ból </description>
Jólafréttir
      <description>HæhæJólafréttir-Jólaball verður 5. desember í Frostaskjóli. Foreldrar sækja börnin í leikskólann eigi síður en kl. 13.00, jólaballið hefst kl. 14:00. Foreldrar á Bóli sjá um veitingar fyrir börnin. Foreldrar á Bakka sjá um veitingar fyrir fullorðna.-Kirkjuferð. 16. desember kl. 9:00 fara þrír elstu árgangar leikskólans í kirkjuferð. Börnin fara með rútu.-Foreldrakaffi/jólakaffi verður 22. desember kl. 14:30-Kaffihúsaferð. Í desember fara 2 elstu árgangarnir í Húsdýragarðinn. Farið verður 10 og 11. desember. Kaffihúsastemming verður á Skerjagarði fyrir yngri börnin.-Lokað verður á Þorláksmessu og á milli jóla og nýárs.-Frá 1. desember verða breytingar á morgunmatnum. Er það liður í hagræðingu í rekstri leikskólans og einnig viljum við leggja áherslu á hollara fæði. Á mánudögum verður í boði morgunkorn og hafragrautur. Á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum verður eingöngu hafragrautur með rúsínum. Á föstudögum verður kakó og ristað brauð. Við viljum líka minna á að morgunmaturinn er búinn klukkan 8:45. Þá fara börnin inn á deildar.-Muna einnig að taka allan fatnað með ykkur heim á föstudögum, einnig pollagallana. Það hefur verið erfitt fyrir ræstinguna að þrífa fataklefana þar sem þeir eru oft fullir af fötum sem hafa gleymst, vonum við að þetta komist strax í lag  -Í desember munum við svo leggja áherslu á að eiga rólegar og notalegar stundir saman með börnunum ykkar þar sem við föndrum saman, syngjum jólalög og fleira skemmtilegt.ps. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið. Það eru nýjar myndir á 5 blaðsíðum.kv Bakki og Ból</description>
Hundakúnstir á Skerjagarði
      <description>HæhæUpptakan frá tónlistartímanum með Berglindi, krökkunum og Lilla (voffa) kom í fréttatímanum í kvöld. Þið getið séð fréttina á: ruv.is    kv Bakki</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÍ dag kom ríkissjónvarpið og tók upp einn tónlistartíma með henni Berglindi tónlistarkennara. Það voru yngri börnin á Bakka sem voru í tónlist þá. Þetta verður sennilega sýnt í kvöldfréttum í kvöld.  Ég var að setja inn nýjar myndir á síðuna en núna voru það bara myndir frá Bóli. Það koma svo fleiri myndir í næstu viku :-)Góða helgi kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>Loksins LoksinsVar að setja inn matseðilinn og stundaskrár fyrir nóvember inn á síðuna. Í næstu viku koma nýjar myndir inn.Góða helgikv Bakki og Ból</description>
      <description>Hæhæ allirNú er orðið kalt í veðri og er þá nauðsynlegt að börnin séu vel búin með góðan kuldafatnað þ.e. kuldagalla, hlýja peysu, kuldaskó, hlýja vettlinga og húfu. Það skiptir svo miklu máli að börnin séu vel búin til að vera úti að leika og líði vel á meðan þau eru úti. Það er erfitt að leika sér ef manni er kalt.Í síðustu viku var náttfatadagur hjá okkur og mættu börnin í náttfötunum sínum og höfðum við það kósí þennan dag og höfðum náttfataball og fórum við í ýmsa skemmtilega leiki.    Við minnum svo á að á mánudaginn 27. október er Alþjóðlegur bangsadagur og mega börnin þá koma með bangsa með sér í leikskólann.Bakki Á Bakka erum við enn að vinna með veðrið. Börnin hafa verið að skoða hvernig veðurspáin er fyrir hvern dag fyrir sig og unnið með veðrið á ýmsan hátt. Þau hafa verið að leira í tengslum við veðrið, málað og fleira.Hlynur bangsi Nú er Hlynur farinn að fara heim með eldri börnunum á Bakka. Við ákváðum að breyta aðeins fyrirkomulaginu með hann. Nú fer hann alltaf heim með einhverju barni á föstudögum og kemur aftur í leikskólann á mánudegi. Þannig að nú fá öll börnin að fara með hann heim yfir helgi. Svo hvílir hann sig þess á milli í leikskólanum. Börnin eru mjög spennt að fara með hann heim og það er gaman að sjá hvað allir eru duglegir að skrifa í bókina hans Hlyns hvað gert var. Börnunum finnst svo gaman að sýna hinum börnunum hvað þau gerðu saman  BólAllt gengur sinn vanagang á Bóli.  Það eru komnar fullt að nýjum myndum í myndaalbúmið  kv Bakki og Ból</description>
      <description>Hæhæ allirSigurvin frá Neskirkju kom í heimsókn til okkar síðastliðinn þriðjudag. Hann sér um barnastarfið í kirkjunni. Sigurvin kemur annan hvern þriðjudag kl. 9:00 til okkar í vetur. Hann byrjar á Bóli og kemur svo upp á Bakka. Hann segir börnunum sögur og við syngjum saman lög úr sunnudagaskólanum.Bakki:Á bakka erum við að spá og spekulera í veðrinu en það er nýja þemað hjá okkur. Við erum byrjaðar að hlusta á börnin hvað þau eru að spá í sambandi við veðrið og vinnum út frá því. Þetta veðurverkefni er sameiginlegt verkefni sem við tökum þátt í, í samvinnu við fleiri leikskóla sem vinna í anda Reggio Emilie.    Ból:Á bóli eru yngstu krílin okkar í könnunarleiknum og svo eru þau að læra að leika saman og vera saman í hóp. Elstu börnin á Bóli fara einu sinni í viku upp á Bakka í einingakubbana og vinna ýmis verkefni í hópastarfi. Þau eru einnig farin að spá aðeins í veðrið og ætla að taka þátt í veðurverkefninu.   Meistararnir:Meistararnir eru búnir að vera að leika sér með stafina. Einnig höfum við verið að æfa okkur í að klappa atkvæði, ríma og lært nokkrar þulur. ps. fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu og matseðillinn fyrir okt. er loksins kominn kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað eru nýjar myndir í myndaalbúminu :-)</description>
Ótitlað
      <description>HæhæVið viljum byrja að þakka ykkur fyrir komuna á foreldrafundinn á þriðjudaginn. Það var ágætis mæting, en auðvitað viljum við alltaf sjá fleiri  Nú erum vði búin að setja inn á síðuna hópaskiptingu fyrir Ból sem og hópaskiptingu í tónlistina með Berglindi. Dagskipulagið fyrir veturinn er einnig komið inn.Stundaskrá fyrir október fyrir Bakka og Ból komin inn. Í október ætlum við að hafa útileikjadag, náttfatadag, dótadag og svo er alþjóðlegur bangsadagur og verður þá bangsadagur.Kv Bakki og Ból</description>
Foreldrafundur 30.sept.
      <description>MUNIÐ FORELDRAFUNDINN Í KVÖLD ÞRIÐJUDAGSKVÖLD 30.SEPT. KL. 20:30KV BAKKI OG BÓL</description>
Ótitlað
      <description>Hæhæ Viljum við byrja á að minna á FORLDRAFUNDINN sem verður haldinn á þriðjudaginn 30. september kl. 20:30 hér á Skerjagarði. Vonumst við til að sjá sem flesta. Við viljum biðja ykkur foreldra um að hafa með allan þann útifatnað sem barnið þarf að hafa í leikskólanum s.s. pollagalla, stígvél, húfu, vettlinga (minnst 2 pör), hlýja peysu, úlpu og góða skó (ef ekki rignir). Það er einnig farið að kólna og má þá hafa í huga að koma með kuldagalla þegar það rignir ekki.  Þau eru mörg hver ekki með þetta meðferðis og það er ómögulegt að vera að senda þau t.d. út í strigaskóm þegar það rignir eða húfulaus.Ef við höldum áfram á þessum nótum hehe  þá viljum við líka biðja ykkur um að hafa alltaf nóg af aukafötum í körfunum. Það er oft mikil rigning úti og stórir pollar sem gaman er að sulla í og blotna börnin því mikið. Þá er nauðsynlegt að hafa aukaföt í körfunum. Þið verðið að vera dugleg að fylgjast með því að nóg sé af öllu s.s. sokkar (2 pör) eða sokkabuxur, buxur, peysur, nærbuxur og bolur. Við eigum ekki föt til að lána börnunum og eru þau mörg hver ekki tilbúin að fara á lánsföt. Tónlistin með henni Berglindi byrjaði aftur í síðustu viku og voru börnin mjög spennt og glöð að hitta hana aftur og læra ný lög og leiki.Bakki:Á Bakka erum við búin að klára sjóræningjaþemað. Við enduðum það á sjóræningjadegi þar sem börnin breyttust í sjóræningja. Þau voru búin að búa til allskyns sjóræningjahluti sem þau notuðu svo þennan dag. Þau fóru einnig í fjársjóðsleit og fundu allir hóparnir fjársjóðskistur með fjársjóði í      Meistararnir bökuðu sjóræningjaköku handa Bakka og Bóli og smakkaðist hún mjög vel namm namm Í lok dagsins var síðan foreldrum boðið að koma að skoða afraksturinn af þemavinnunni.  Það var rosalega góð mæting og viljum við þakka ykkur kærlega fyrir komuna. Ból:Á Bóli gengur allt sinn vanagang. Börnin fara út að leika, í könnunarleikinn og í hópastarf.   Þau eru líka dugleg að hjálpa hvert öðru :-) Á fimmtudaginn er svo bangsadagur og mega þá börnin koma með bangsa í leikskólann. Það var gaman að sjá að það voru nokkrir sem skrifuðu í gestabókina  Endilega verið dugleg að kvitta þar. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið!!!!!!!!!!!!!kv Bakki og Ból</description>
Fullt af nýjum myndum í albúminu :-)
      <description>HæhæBakki:Á Bakka er sjóræningjaþema í fullum gangi en fer að taka enda. Við ætlum að enda það á fimmtudaginn með sjóræningjadegi. Þá fá börnin allt það sem þau hafa búið til í tengslum við sjóræningjaþemað, breytast í sjóræningja og leyta að fjársjóði sem þau hafa falið úti. Meistararnir (skólahópur) ætlar svo hafa leyniveislu fyrir alla sjóræningja :-) Ykkur foreldrum er síðan boðið að koma á fimmtudaginn og skoða afrakstur þemavinnunar á milli klukkan 15-17. Á föstudaginn er svo spiladagur en þá mega börn sem fædd eru 2003 kom með spil að heiman. Við ætlum að prófa að hafa svona spiladaga á föstudögum og skipta á milli barnanna að koma með spil. Tónlistin með henni Berglindi tónlistarkennara byrjar á föstudaginn. Ég ætla að setja inn hópana hér á heimasíðuna undir -tónlist-. og klukkan hvað börnin eru þannig að það séu allir mættir á réttum tíma til að missa ekki af tónlistinni.Það eru komin nöfn á yngri hópana á Bakka og eru það:Hjartahópur (Lára Ósk, Freyja Dís, Tinna María, Ísold, Ásta Matthea og Anna Fríða.)Hákarlahópur (Stefán Þorri, Skírnir, Jóhannes, Funi og Mummi).       Hjartahópur                         HákarlarnirMeistararnir:Meistararnir eru að æfa stafinn Aa í skólahóp.Þeir eru einnig að æfa þulu sem þeir svo myndskreyttu.Fögur er kvöldsólin, heið og hrein,lata kisa liggur á stein:,,Ég drap eina mús, lapti rjóma úr krús,steiktri stirtlu og sporðistal ég undir borði.Ég er svo sæl og sveitt,södd og löt og þreytt,sagði kisa.Ból:Á Bóli er allt komið á fullt skrið. Hópastarfið er komið í gang og eru börin að læra að vera saman í hóp og taka tillit til hvers annars. Í hópastarfi er mikið spilað, leikið með leir, litað og málað. Yngstu börnin eru byrjuð í könnunarleiknum og er gaman að fylgjast með þeim, þar sem þau eru að uppgötva allan efniviðin sem við bjóðum upp á þar.       Hópastarf               KönnunarleikurTónlistin með Berglindi tónlistarkennara byrjar svo á fimmtudaginn á Bóli kl. 9:00. Að lokum viljum við svo minna á foreldrafundinn sem verður haldinn hér á Skerjagarði þriðjudaginn 30. september kl. 20:30. Viljum við biðja ykkur um að taka þetta kvöld frá  Á þessum fundi verður kynnig á starfinu hér á Skerjó og starfsfólki.ps. Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu.  Það eru nýjar myndir á 4 fyrstu blaðsíðunum endilega kíkið og fáið börnin ykkar til að skoða með ykkur og segja ykkur frá því sem þau eru að gera í leikskólanum  kv Bakki og Ból</description>
Matseðill fyrir september
      <description>HæhæÞað er kominn matseðill fyrir september inn á síðuna.Góða helgi ps. það væri voða gaman að heyra frá ykkur í gestabókinni. Bara kvitta kv Bakki og Ból </description>
Stundaskrá fyrir september Bakki og Ból
      <description>HæhæÞað er komin stundaskrá fyrir september inn á heimasíðuna. Stundaskrá fyrir Bakka er undir ,,Bakki,, Stundaskrá fyrir Ból er undir ,,Ból,,Stundaskrárnar hanga einnig á töflunni í fataklefa hjá Bakka og á töflunni fyrir framan Ból.Það eru einnig nokkur eintök í hólfunum á móti töflunni hjá Bóli fyrir þá sem vilja fá eintak þar.Bestu kveðjur Bakki og Ból</description>
Bakkafréttir
      <description>HæhæJæja þá erum við á Bakka komin á fullt skrið með sjóræningjaþema. Við erum búin að vera að skoða mikið af bókum þar sem sjóræningjar koma fram í og fræðast um þá. Yngri börnin á Bakka (þ.e. börn fædd 2005 og 4 börn fædd 2004) eru búin að fara í fjöruna og grafa holur og athuga hvort að þau fyndu fjársjóð. Þau fundu ekki fjársjóð og komust þau af því að það væri vegna þess að þau hefðu ekkert fjársjóðskort :-)  Þau eru líka búin að búa til sjóræningjasjónauka.  Eldri börnin á Bakka eru búin að fara og týna steina sem þau ætla að hafa sem fjársjóð í fjársjóðskistu sem þau útbúa sjálf. Þau ætla síðan að fela fjársjóðinn og útbúa fjársjóðskort og skiptast á við annan hóp og leyta síðan að fjársjóðnum. Þau eru búin að mála steinana (fjársjóðinn) og fjársjóðskistuna og einnig að útbúa sjónauka.  Þannig að það er ýmislegt sem þeim dettur í hug að gera sem tengist sjóræningjum.     Við höfum verið að hlusta á sjóræningjalag af diskinum með honum Pétri Pan og læt ég textann fylgja. SjóræningjasöngurHæ hó, hæ hó,fáni, kúpu og beina, hæ hó, hæ hó, fáni, kúpu og beinaFrammi í stafni flöggum viðfána kúpu og beina.Þjórum romm að þekktum sið þú veist hvað ég meina.Hæ hó, hæ hóo.s.frv.Af okkur stöndum stíðin grimmstrauma og illra veðrra.Verði ég allur fyrir fimmfinndu mig þá í neðraHæ hó, hæ hó,o.s.frv.Allir setja upp óttasviper ég munda korða,yfirgefa allir skipon´í djúp sér forða.Hæ hó, hæ hó,o.s. frv.Elstu tveir hóparnir hafa fundið nafn á hópinn sinn.Annar hópurinn heitir ,,Rassálfar,, (Egill, Tómas, Einar Skúli, Stebbi, Einar Páll, Svava og Agla). Hópstjóri Rasssálfa er Erna. Hinn hjópurinn heitir ,,Leðurblökurnar,, (Gunnar, Lúkas, Thor, Sindri, Ágúst, Einar Geir, Íris Erla og Valdís). Hópstjóri er Inga Nanna.Rassálfarnir     LeðurblökurnarSkólahópurinn okkar hefur einnig fengið nýtt nafn og eru þeir núna MEISTARARNIR og er lykilorðið þeirra ,,Æfingin skapar meistarann,,.    Við viljum síðan biðja ykkur foreldra um að passa upp á að það séu öll útiföt meðferðis sem börin ykkar þurfa að nota í leikskólanum. Það hafa mörg börn ekki verið með húfur síðustu daga og það er frekar kalt þegar rignir beint á þau. Að lokum viljum við svo minna á HATTADAG sem verður á morgunn fimmtudag fyrir bæði börn á Bakka og Bóli. Þa´mega börnin koma með hatta að heiman.Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna kv Bakki</description>
Sumarfríið búið
      <description>HæhæJæja þá er sumarfríið á enda og allir komnir aftur á Skerjagarð. Við höfum farið rólega af stað þar sem aðlaganir nýrra barna standa yfir. Viljum við bjóða nýja foreldra og börn velkomin til okkar á Skerjagarð . Það eru ekki miklar mannabreytingar hjá okkur þennan veturinn    Hún Steinunn er að fara í skóla og er síðasti dagurinn hennar á föstudaginn og munum við sakna hennar mikið og óskum við henni velfarnaðar í skólanum. Við erum búnar að fá nýjan starfsmann til okkar en hún heitir Rósella og verður hún á Bóli. Einnig verður hún Elín (dóttir Ellu og Óla) á Bóli sem aukamanneskja. Annars er sami starfsmannahópurinn og var í fyrra en smá tilfærslur eru á milli deilda. Hún Guðfinna sem var á Bakka er komin niður á Ból og er deildarstjóri þar. Helga sem var á Bóli er komin upp á Bakka og Ananda sem var á Bóli verður á Bakka og á Bóli. Við höfum tekið upp nýja reglu í sambandi við hvað má koma með þegar börnin eiga afmæli. Við tókum þá ákvörðun að nú sé ekki í boði að koma með kökur á afmælisegi barnanna. Það verður í boði að koma með ís, snakk eða grænmeti. Við vonum allir verði ánægðir með þessa breytingu  Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu þá börnin með nesti að heiman og fórum við út á skógarróló og borðuðum nestið okkar. Það er alltaf mikil stemning fyrir nestisdegi og þá sérstaklega þegar hægt er að borða það úti.    Annars hefur veðrið leikið við okkur og höfum við notfært okkur það og verið mikið úti að leika. Börnin á Bakka eru byrjuð að skoða bækur um sjóræningja en við ætlum að vera með sjóræningjaþema næstu daga eða vikur (fer eftir áhuga barnanna). Það er mikð búið að vera að skoða í sjóræningja og er mikill áhugi hjá börnunum. Á Bóli eru aðlaganir í fullu gangi og ganga mjög vel  Þetta verður flottur barnahópur á Skerjagarði þennan veturinn eins og alltaf Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu frá ágúst. Endilega kíkið á það.Bestu kveðjur frá Bakka og Bóli</description>
Nú fer að styttast í sumarfrí
      <description>HæhæJæja þá fer að styttast í sumarfrí hjá okkur hér á Skerjagarði. Síðasti dagurinn fyrir sumarfrí er mánudagurinn 31. júní. Annars er veðrið búið að leika við okkur í júní og við búin að vera mikið úti að leika og allir orðnir brúnir og sællegir.Elstu börnin okkar eru búin að vera mikið á ferðinni og eru t.d. búin að fara í heimsókn til hennar Berglindar tónlistarkennara upp í Álafosskvos. Þar eyddu þau góðum degi. Það voru grillaðar pylsur, leikið sér í náttúrunni og farið í latabæjarhlaup.       SKólahópurinn er svo búinn að fara í hjólreiðaferð í Nauthólsvíkina. Allir mættu með hjólin sín og hjóluðu saman á ströndina og borðuðu hádegismat þar og nutu veðurblíðunnar.      Skólahópurinn fór einnig í útskriftarferð en að þessu sinni var farið í bæjarferð þ.e. í hjómskálagarðinn og rölt í bænum. Síðan var farið heim til Ellu í kópavoginn og þar voru grillaðir hamborgarar, leikið sér á trampólíninu og farið í heita pottinn. Allir voru mjög ánægðir eftir daginn. Yngri börnin eru líka búin að fara í vettvangsferðir en þá bara hér í hverfinu. Það er búið að fara í fjöruna, út á aparóló og á skógarróló.   Sumarhátíðin gekk mjög vel og komu börnin í furðufötum í leikskólann og farið var í skrúðgöngu um hverfið með fána. Í garðinum var svo hoppukastali sem börnin skiptust á að fara í. Í hádeginu var svo pizzapartý.     Latabæjarhlaupið var svo haldið í júní. Börnin eru orðnir miklir hlaupagarpar og stóðu sig auðvitað mjög vel í hlaupinu. Í lokin fengu svo öll börnin latabæjarmedalíu :-)    ATH! Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmiðkv Bakki og Ból</description>
júní mánuður
      <description>HæhæJæja þá er komin stundaskrá fyrir júní mánuð inn á heimasíðuna. Í júní ætlum við að fara mikið í vettvangsferðir með börnin á Bakka og þá sérstaklega elstu krakkana. Yngri krakkarnir fara auðvitað líka í ferðir en styttri og þá helst hér í næsta nágrenni.Í júní ætlum við að hafa aftur Latabæjarhlaup þar sem það er mikill áhugi hjá börnunum fyrir því. Þá hlaupum við smá hring og þegar við komum í mark fá börnin ávexti og grænmeti. Einnig verður dótadagur og þá mega börnin velja hvort þau koma með inni- eða úti dót.  Þann 16. júní verður svo sumarhátíð á Skerjagarði. Þá mega börnin koma í furðufötum og förum við í skrúðgögnu hér um hverfið. Í hádeginu verður svo pizzaveisla og ís namm namm. Skólahópurinn hefur alltaf farið í hjólreiðaferð og útskriftaferð. Við ákváðum að setja ekki niður ákveðinn dag fyrir þessar ferðir en við settum niður vikuna. Þetta gerum við til að reyna að fá sem besta veðrið til að fara í þessar ferðir. Maímánuður er búinn að vera skemmtilegur og margt gert. Starfsfólkið fór í námsferð til Danmerkur og Svíþjóðar og skoðaði þar nokkra leikskóla og einngi fórum við í leikjagarð og fengum kennslu í nýjum skemmtilegum útileikjum sem við munum nýta í starfinu okkar. Hreinsunardagurinn var haldinn 17. maí og tekið var til hendinni í garðinum .Opna húsið var svo 24. maí og tókst að venju mjög vel. Útskriftahópurinn ásamt nokkrum börnum sem eru fædd 2003 sungu fyrir okkur Þúsaldaljóð (jöðin, vatnið, loftið og eldinn), lagið um hann Maxamús og svo sungu öll börn sem vildu nammilagið. Allir stóðu sig mjög vel í söngnum. Í dag verður svo sveitaferðin og vonum við að sem flestir komist með okkur og eigi skemmtilegan dag saman.Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið frá Bakka og Bóli. Það eru nýjar myndir á bls. 1-3. þannig að þið þurfið að fletta til að sjá allar nýju myndirnar (settar inn 30.maí).Kveðjur frá Bakka og Bóli</description>
Starfsdagar, hreinsunardagur, opið hús og sveitaferð..
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna á starfsdaga sem verða þriðjudaginn 13. og miðvikudaginn 14. maí og verður þá leikskólinn lokaður. Einnig viljum við minna á Hreinsunardag á Skerjagarði en hann verður laugardaginn 17. maí kl. 10-14. en þá mæta foreldrar ásamt börnum og taka til hendinni í leikskólagarðinum og eiga skemmtilegan dag saman.Opið hús og útskrift elstu barnanna verður svo laugardaginn 24. maí kl. 11-13.Sveitaferðin verður svo föstudaginn 30. maí. Það verður farið á Hraðastaði og verður lagt af stað frá Skerjagarði kl. 12:45.Stundaskrárnar fyrir maí mánuð verða settar í öll hólf barnanna en hún er einnig hér á heimasíðunni.  Næsta fimmtudag eða 8. maí verður útidótadagur en þá mega börnin koma með eitthvað útidót í leikskólann. Það getur t.d. verið bolti, skófla og fata, sippuband, krítar eða eitthvað annað skemmtilegt. Því miður getum við ekki leyft hjól eða hlaupahjól og ekki línuskauta þar sem garðurinn er það lítill.Matseðill fyrir maímánuð er kominn inn á síðuna.Bestu kveðjur frá Bakka og´Bóli</description>
Latabæjarskokk á morgunn fimmtudag
      <description>HæhæÁ morgunn fimmtudag 17. apríl verður Latabæjarskokk í leikskólanum. Þá ætla krakkarnir að hlaupa smá hring, mislangan eftir aldri og þegar allir hafa lokið hlaupinu verður boðið upp á allskyns grænmeti og ávexti. Gaman væri ef börnin kæmu í íþróttafötum í leikskólann þannig að þægilegt verði að hlaupa. Einnig langar okkur til að athuga hvort einhver eigi fyrsta Latabæjardiskinn þ.e. Áfram latibær en á honum eru æfingar sem gaman væri að gera í upphafi hlaupsins þ.e. sem upphitun. Þessi diskur er uppseldur og langar okkur mikið til að fá hann lánaðan og fá að skrifa hann hjá einhverjum Það eru síðan komnar nýjar myndir í myndaalbúmið .kv Skerjó</description>
Loksins hægt að blogga og setja inn myndir
      <description>HæhæJæja loksins er hægt að setja inn nýjar myndir og blogga á síðuna okkar. Það var ekki hægt að setja neitt inn vegna uppfærslu á síðunni. Það eru líka komnar stundaskrár fyrir apríl inn fyrir bæði Bakka og Ból.Enn allavega þá er allt gott að frétta af okkur á Skerjagarði. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur t.d. var strákadagur í endan mars og heppnaðist hann vel. Það komu margir strákar uppábúnir í leikskólann. Stelpurnar bökuðu fyrir þá og útbjuggu einnig armbönd handa þeim sem þeir voru mjög ánægðir með. Í síðustu viku vorum við svo með náttfataball og máttu börnin einnig koma með bangsa með sér. Það var slegið upp balli og á Bakka var farið í ýmsa skemmtilega leiki eins og ásadans, stoppdans og lest. VIð viljum svo minna á að næstkomandi fimmtudag (10. apríl) verður dótadagur hjá okkur og mega börnin þá koma með eitthvað eitt dót að heiman.Nú er verið að leggja lokahönd á þemað þ.e. vatnið hjá yngri börnunum á Bakka og börnunum á Bóli og hljóðið og hljóðfæri hjá eldri börnunum á Bakka. Eldri börnin eru að klára að gera sitt hljóðfæri og yngri börnin að klára stóra bátinn og umhverfið í kringum hann þ.e. sjóinn. Við tökum okkur síðan smá pásu en höldum auðvitað áfram að fara í hópastarf en munum nú reyna að vera meira úti í náttúrunni og fara í vettvangsferðir um nánasta umhverfi og fara í útileiki.Foreldraviðtöl verða svo núna í lok apríl og byrjun maí. -Foreldraviðtöl fyrir yngri börnin á Bakka (þ.e. börn fædd 2004) verða haldin miðvikudaginn 30. apríl.-Foreldraviðtöl fyrir eldri börn á Bakka (þ.e. börn fædd 2003 og 2002) verða haldin miðvikudaginn 7.maí og fimmtudaginn 8. maí.-Foreldraviðtöl á Bóli verða mánudaginn 28. apríl og þriðudaginn 29. apríl.Skráningablað kemur fljótlega upp og verður uppi á töflu hjá Bakka og Bóli.            ATH! að skrá ykkur á réttan dag Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu. bestu kveðjur frá Skerjó</description>
Foreldrafundur miðvikudaginn 2. apríl
Gleðilega páska 
      <description>HæhæStelpudagurinn sem var 13. mars heppnaðistí alla staði vel. Stelpurnar mættu allar mjög fínar í leikskólann og létu strákana dekra við sig  Strákarnir bökuðu muffins fyrir stelpurnar og útbjuggu strákarnir á Bakka perluarmbönd handa stelpunum. Stelpurnar á Bakka fóru allar niður í kjallara og bjuggu sér til prinsessukórónur í tilefni dagsins. Eftir hádegi fengu stelpurnar að vera inni að dúlla sér á meðan strákarnir fóru út að leika. Í kaffitímanum buðu svo strákarnir stelpunum muffins og gáfu þeim armböndin. VIð viljum svo minna á strákadaginn sem verður 27. mars eða fimmtudaginn efir páska.     Þann 14. mars fóru Eðlurnar og Deplahópur í ferð í Gerðuberg að sjá sýningu sem heitir ,,Spor regnbogans,,. Þetta var leikbrúðusýnig með flautuleik um litina, tilfinningar og tónlist. Börnin áttu að búa til grímur og koma með á sýninguna og bjuggu allir til sína grímu og höfðu hana eins og þau vildu og voru þær mjög skrautlegar og skemmtilegar. Fengu þau mikla athygli fyrir þessar flottu grímur á sýningunni. Börnunum fannst sýningin mjög skemmtileg en skrýtið að það var ekkert talað allan tímann, bara spilað á flautu og leikið. Þegar sýningin var búin fengu börnin að hitta leikarana og spjalla við þær um sýninguna. Við skoðuðum einnig aðra sýningu sem var í Gerðubergi þar sem við sáum ýmis gömul hljóðfæri og ýmislegt tengt þeim.  Þegar við vorum búin að skoða hljóðfærin fórum við á kaffihúsið í Gerðubergi og fengum safa og smáköku áður en við lögðum af stað aftur á leikskólann en strætóferð upp í Gerðuberg tekur 40 mín þannig að það var mjög gott að fá pínu í magann áður en við fórum í strætó til baka.     Við viljum svo þakka ykkur fyrir frábæran stuðning með því að kaupa af okkur servíettur og kerti. Þið eruð frábær. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið. Það eru myndir úr ferðinni í Gerðuberg, frá stelpudeginum, páskaföndri og fleira. Við óskum ykkur gleðilegra páska og hafið það sem allra best í páskafríinu.     </description>
Nóg að gera :-)
      <description>HæhæÞað er smávegis breyting á stundatöflunni á Bakka. Við áttum að fara á Sinfoníuna miðvikudaginn 26. mars en því var breytt og förum við í staðinn föstudaginn 28. mars. Þetta er ferð fyrir börn fædd 2002 og 2003. Þið getið farið inn á www.sinfonia.is og skoðað um hvað þetta verk er sem við erum að fara að sjá. Það heitir Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina. Við ætlum að undirbúa börnin vel fyrir þessa ferð þannig að þau fái sem mest út úr ferðinni.Næstkomandi föstudag þ.e. 14. mars ætla Deplahópur og Eðlurnar að fara á sýningu í Gerðubergi í tengslum við hópastarfið þ.e. hljóðið. Það eru tvær sýningar í gangi þar núna sem tengjast okkar þema. Fyrri sýningin er -Hljómfagurt stefnumót tónlistarfólks og hljóðfærasafnara. Það getum við fengið að sjá ýmis hljóðfæri gömul og ný. Hin sýningin er- Strengjaleikhúsið flytur flautu- og leikbrúðuverkið Spor regnbogans fyrir leikskólabörn. Verkið fjallar um tónlist, tilfinningar og liti regnbogans. Börnin taka virkan þátt í sýningunni með þvi að koma með grímur sem þau munu gera hér í leikskólanum, sveifla og hreyfa litbönd og syngja saman lokalag sýningarinnar. Sjá meira  um báðar þessar sýningar á  www.gerduberg.is.Annars er búið að vera nóg að gera hjá okkur á Skerjó.Skólahópurinn er búinn að vera á miklu flakki síðustu daga. Föstudaginn 7. mars fóru þau í heimsókn í Melaskóla og fengu að fara í leikfimistíma þar með 1. bekk. Þetta er í tengslum við samstarf Melaskóla og leikskólanna. Börnin mættu með leikfimisföt og tóku virkan þátt í tímanum.           Í gær 10. mars bauð Sara Elísabet og mamma hennar skólahópnum í heimsókn heim til Söru og fengu börnin smá fræðlu um Kína og um ýmsa hluti í tengslum við Kína. Þau fengu að skoða allskonar dót frá Kína og sýndi Sara þeim hvernig ætti að nota það. Þau prófuðu að borða með prjónum, þau hlustuðu á kínverka músík og horfðu á mynd um ferðalag Söru til Kína sem hún fór í á síðasta ári. Allir fengu að lita myndir úr dýrahringnum þ.e. fengu það dýr sem tengist því ári sem þau eru fædd. Þau eru t.d. fædd 2002 og það er hestur. Við eigum örugglega eftir að vinna meira með þetta í leikskólanum.Þetta var rosalega skemmtileg heimsókn og þökkum við kærlega fyrir okkur.         Bókasafnsferð á Bóli. Nokkur af elstu börnunum á Bóli fóru á bókasafnið í síðustu viku. Þetta var mjög skemmtilegt og skoðuðu þau bækur og léku sér í barnahorninu þar. Þetta var í fyrsta skiptið sem sum af þessum börnum fara á bókasafnið með leikskólanum og jafnvel í strætó.    Hópastarf.Hljóðið:Eðlurnar bjuggu til stórt hljóðfæri í síðasta hópastarfstíma. Þau skírðu það páskagítar  (sjá myndir)Deplahópur hlustaði á músik og síðan fengu allir blokkflautu sem þau fengu að spila á. Einn spilaði í einu hratt eða  hægt og börnin dönsuðu í takt við flautuspilið. Vatnið: -Kisuhópur á Bakka kláraði bátana og prófaði að láta þá sigla á vatni. -Tígrisdýrahópur málaði blómapotta sem þau ætla að setja fræ í eftir páska.-Kisu og hundahópur á Bóli (hópurinn hennar Helgu) byrjaði að gera einn stóran bát  úr pappa.  -Yngstu börnin á Bóli eru að vinna með gula litinn.TMTÍ þessari viku lærum við táknin duglegur, útigalli, húfa og kalt.Við viljum svo minna á fimmudaginn er stelpudagur og mega stelpurnar þá koma fínar í leikskólann og ætla strákarnir að dekra aðeins við stelpurnar og baka fyrir þær.Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið.kv Bakki og Ból</description>
Stundaskrá og matseðill fyrir mars og fleira
      <description>HæhæJæja þá er loksins komin stundaskrá fyrir mars mánuð. Ég var að setja hana hér inn á síðuna og einnig sendi ég hana á e maili til ykkar og getið þið þá prentað hana út. Einnig verða nokkur eintök af henni niðri við fataklefa í rekkanum við hurðina. Í þessum mánuði ætlum við að hafa hattaball (næstkomandi fimmtudag þ.e. 6 mars) og mega börnin þá koma með hatta í leikskólann.Fimmtudaginn 13. mars verður svo stelpudagur. Þá mega stelpurnar koma fínar í leikskólann og ætla strákarnir að baka fyrir þær og dekra við þær Fimmtudaginn 27. mars verður svo strákadagur og mega þá strákarnir koma fínir í leikskólann og stelpurnar ætla þá að baka fyrir strákana og dekra við þá Einnig er komin matseðill fyrir mars mánuð hér inn á síðuna. Berglind tónlistarkennari setti í hólfin hjá börnunum blöð með textum af þeim lögum sem hún hefur verið að syngja með börnunum. Ég setti eitthvað af þessum lögun hér inn á síðuna undir tónlist.Skólahópurinn er að æfa Þúsaldarljóðið (jörð, vatn, loft og eldur) og langar mig til minna á að það eru textar af þessum lögun hér inn á síðunni undir söngtextar. Það væri gaman og gott ef þið gætuð farið yfir textann með börnunum því að hann er langur og dálítið erfiður fyrir marga. Ef þið getið ekki prentað hann út þá getið þið beðið okkur um að prenta út eintak af honum fyrir ykkur. Börnunum ykkar þykir alveg örugglega gaman að fá að skoða myndirnar sem eru hér inn á síðunni með ykkur foreldrum og geta þau þá sagt ykkur hvað er að gerast á myndunum. Við höfum verið að spyrja krakkana hvort þau skoði myndirnar á heimsíðunni í tölvunni og mörg segjast ekki hafa skoðað myndir þar. Það væri nú gaman að leyfa þeim að skoða með ykkur og rifja upp hvað þau hafa verið að gera á leikskólanum. Hópastarf:Hljóð.Deplahópur bjó til tvo regnstafi í hópavinnu í hópastarfi síðast. Þau komu sér saman um hvernig þau vildu gera þá og unnu vel saman.Eðlurnar bjuggu til sitt hljóðfæri hvert fyrir sig.Þau völdu sjálf allt efni í hljóðfærið sitt og skreyttu svo.      Vatnið.Kisuhópur og Tigrisdýrahópur og hópurinn hennar Helgu á Bóli eru enn að vinna með bátana og myndvarpann.Litirnir:Yngstu börnin á Bóli hafa verið að skoða bláa litinn og eru þau búin með hann.Næst taka þau fyrir gula litinn.TMT (tákn með tali).Í þessari viku höfum við lært táknin kubba, lita/teikna, vinur og bolti.Bestu kveðjurBakki og Ból</description>
Hljóðfæradagur á fimmtudaginn, hópastarf og TMT.
      <description>HæhæViljum byrja á að minna á hljóðfæradaginn sem verður fimmtudaginn 28. febrúar en þá mega börnin koma með eitthvað hljóðfæri að heiman (ef þau eiga). Þau sem ekki eiga hljóðfæri fá örugglega að prófa hjá þeim sem koma með og svo eigum við líka einhver hljóðfæri hér á leikskólanum.Í síðustu viku var bökunardagur á Bakka og bökuðu yngri börnin okkar kanelsnúða með hjálp Söru, Kristínar, Hildar og Ingu Birnu. Þetta voru alveg ljúfengir snúðar sem þau bökuðu.       Það er allt á fullu í hópastarfí hjá öllum hópum. Vatnið:Kisuhópur og tígrisdýrahópur ásamt hópnum hennar Helgu á Bóli hafa verið að búa til báta úr ýmsum efnivið sem þau fundu sér sjálf. Þau ætla að prófa að láta þá ívatn og athuga hvort þeir fljóti eða sökkvi. Hljóð:Eðlurnar hafa verið að búa til eina stóra trommu sem þau máluðu og skreyttu. Deplahópur var að skoða myndir af ýmsum hljóðfærum og völdu þau sér síðan eitthvað hljóðfæri sem þeim langar til að búa til. Þau teiknuðu sitt hljóðfæri á blað og síðan ætlum við að reyna að búa þau til á næstu vikum. (ef þið lumið á gömlum skókössum þá væri frábært að fá nokkra kassa til að búa til gítar ).TMT:Táknin sem við erum að læra þessa vikuna eru: mamma, pabbi, dúkka og bíll.Það hangir blað á töflunni í fataklefanum á Bakka með myndum af táknunum sem við erum að læra.Það eru líka komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið kv Bakki og Ból</description>
Starfsdagur og námskeiðsdagur, hreinsunardagur, opið hús. 
      <description>HæhæVið viljum byrja á að minna á starfsdag og námskeiðsdag sem við munum hafa 13 og 14 maí (þ.e. þriðjudagur og miðvikudagur eftir hvítasunnnu) og verður þá lokað hér á leikskólanum.Það verður svo hreinsunardagur hér á Skerjagarði laugardaginn 17. maí en þá mæta foreldrar og börn og taka til hendinni hér í leikskólanum og eiga góðan dag saman. Þann 24. maí verður svo Opið hús og útskrift elstu barnanna hér á Skerjagarði. Þá verða til sýnis verk barnanna frá vetrinum sem og ljósmyndir úr starfinu. Í síðustu viku var vasaljósadagur og heppnaðist hann mjög vel. Það komu allir með vasaljós og höfðum við slökkt hér á leikskólanum þannig að skemmtilegra var að leika með vasaljósin.   Í sambandi við hópastarf og þema þá eru yngstu börnin á Bóli að skoða bláa litinn. Þau hafa verið að lita mikið með bláum lit þ.á.m á álpappír. Í lokin þegar þau eru búin að skoða bláa litlinn endum við þemað með bláu balli þar sem allir mæta í einhverju bláu. Það verður auglýst síðar.  Næsti árgangur þ.e. börn fædd 2004 á Bakka og Bóli eru enn að rannsaka vatnið. Þau hafa verið að setja allskonar liti út í vatnið og séð hvernig það breytist. Þau hafa einnig skoðað vatn með allskonar skrauti í á myndvarpa og séð það á veggnum. Það þótti þeim mjög skemmtilegt. Þar sem þau hafa verið að setja allskonar liti út í vatnið hafa þau í leiðinni verið að litablanda þ.e.séð hvernig litirnir breytast þegar þeir eru settir saman. T.d. ef blár og gulur eru settir saman þá kemur út grænn. Þetta finnst þeim mjög áhugavert.   Elstu tveir árgangarnir eru að hlusta á ýmis hljóð  í umhverfinu sem og allskonar tónlist og reyna að túlka hana. Þau hafa verið að hlusta á ýmsa músik frá framandi löndum og ýmis tónverk eins og Pétur og úlfurinn, tónverk um Þrumur og eldingar ásamt fleiru. Þau hafa teiknað myndir um leið og þau hlusta t.d. Eðlurnar hlustuðu á Pétur og úlfinn og teiknuðu myndir um leið og Deplahópur hlustaði  á tónverkið  ,,Þrumur og eldingar,, og teiknuðu mynd um leið.   Við höfum verið að leggja inn tákn með tali (TMT) bæði á Bakka og Bóli. Börnin hafa mikinn áhuga á þessu og eru alltaf að æfa sig þar sem við erum með myndir af táknunum ásamt mynd af hlutinum upp á vegg hjá okkur þar sem þau geta alltaf skoðað táknin. Þau hafa flest fengið sín eigin tákn sem við notum ásamt því að kalla nafnið þeirra. Við leggjum inn 4 tákn á viku og eru þau mjög fljót að læra þau hvort sem þau eru 3. eða 6 ára. Í þessari viku lærðum við táknin: Vindur, snjór, sleði og róla.Við höfum einnig sett upp á töfluna niðri í fataklefa þau tákn sem við erum að læra hverju sinni fyrir ykkur foreldra (þannig að þið getið æft ykkur líka). Við ætlum að reyna að setja hér inn á heimasíðuna þau tákn sem við erum að læra en eigum bara eftir að finna út hvernig við getum það. En vonandi tekst það sem fyrst. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið.kv frá Bakka og Bóli</description>
Vísindasmiðja í Ráðhúsinu,Öskudagurinn og Hlynur Bangsi
      <description>HæhæSíðastliðinn föstudag fór skólahópurinn okkar í vísindasmiðju í anda Rggio Emilia í Ráðhúsinu. Þarna var verið að skoða ljós og skugga og til þess notaðir myndvarpar og ljósaborð. Þarna var allskyns efniviður sem börnin gátu prófað sig áfram með og rannsakað í sambandi við ljósið.Það eru myndir í albúminu frá ferðinni og einnig getið þið séð fleiri myndir á www.roggur.blog.isÞetta var mjög skemmtileg ferð og voru krakkarnir mjög áhugasamir að prófa sig áfram með hlutina og voru öll til fyrirmyndar  (enda ekki að búast við öðru).    Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur hér á Skerjagarði með öskudagsballi þar sem börnin mættu í hinum ýmsu búningum. Gaman var að sjá hvað börnin voru í mismunandi búningum. ,,Snakkið var slegið úr pokanum,, og sungin skemmtileg lög og svo var auðvitað slegið upp dansleik þar sem allir dönsuðu og skemmtu sér vel. Þegar yngstu börnin á Bóli fóru að borða þá færðu eldri börnin sig upp á Bakka og fórum við í ýmsa leiki þar eins og ásadans, stoppdans og hókí pókí. Síðan var pylsupartý í hádeginu og allir borðuðu á sig gat. Við viljum líka þakka öllum fyrir stuðninginn sem keyptu kleinur af okkur á föstudaginn. Þetta heppnaðist mjög vel og ætlum við að gera þetta aftur fljótlega.VIð á Bakka viljum síðan aðeins minna á hann Hlyn, bangsann okkar á Bakka.  Hann Hlynur er mikill vinur barnanna á Bakka og fá þau að taka hann með sér heim öðru hverju og þá í eina nótt í einu nema um helgi sé að ræða þá fer hann heim á föstudegi og kemur á mánudegi. Með Hlyni fylgir bók sem gaman er að þið foreldrar  gætuð skrifað í hvað gert var á meðan Hlynur var í heimsókn hjá ykkar barni. Sumir hafa tekið myndir og límt í bókina og er það mjög gaman en alls ekki nauðsynlegt. Hann Hlynur á gulan poka sem hann er í og setjum við pokann í hólfið hjá því barni sem á að fara með hann heim hverju sinni. Einnig höfum við sett miða á körfuna þar sem stendur með hverjum Hlynur er að fara heim. Við viljum síðan bara minna á að koma með Hlyn aftur daginn eftir í leikskólann því að það er mikill spenningur að fá hann með sér heim.  </description>
Öskudagur og Tákn með tali (TMT)
      <description>HæhæÁ morgunn miðvikudag er öskudagur og mega börnin þá koma í búningum eða náttfötum í leikskólann. Við viljum bara minna á að takmarka aukahluti þar sem þeir geta týnst í leikskólanum.Nú eru börnin á Bakka byrjuð að læra Tákn með tali (TMT). Við leggjum inn 3-4 ný tákn í hverri viku og erum við búin að læra táknin gulur, rauður, grænn og blár. Í gær lærðum við svo táknin að leika sér, syngja og púsla. Börnin eru mjög spennt fyrir þessu og mjög dugleg að læra ný tákn. Við munum setja upp blað í fataklefanum með þeim táknum sem við erum að læra hverju sinni þannig að þið foreldrar geti fylgst með og einnig æft ykkur . Einnig hafa eldri börnin á Bakka valið sér sitt tákn. Yngri börnin munu svo velja sér sín tákn fljótlega. Ef einhverjar spurningar vakna í sambandi við þetta þá endilega spyrjið okkur Það eru komnar nýjar myndir í m yndaalbúmið.kv Bakki og Ból</description>
Ótitlað
      <description>HæhæÞað er komin ný stundatafla fyrir febrúar mánuð (inn í Bakka og Bóli). Ég sendi líka stundatöflurnar á e maili til ykkar. Í febrúar verður margt skemmtilegt að gerast. Í byrjun febrúar er bolludagur, sprengidagur og öskudagur, en á öskudaginn mega börnin koma í búningum í leikskólann.Við sláum poppið/snakkið úr pokanum hehe í staðin fyrir köttinn úr tunnunni  og höfum öskudagsball þar sem við förum í skemmtilega leiki og dönsum. Munið bara að láta börnin koma með aukaföt með sér ef við förum út að leika þann daginn.Við ætlum síðan að hafa vasaljósadag þar sem börnin mega koma með vasaljós að heiman. við ætlum að hafa slökkt í leikskólanum allan þann daginn og vera bara með vasaljós til að lýsa okkur. VIð ætlum líka að hafa bökunardag þar sem við ætlum að baka eitthvað gott namm nammÍ lok mánaðarins verður síðan hljóðfæradagur en þá mega börnin koma með eitthvað hljóðfæri að heiman og sýna hinum börnunum það. Það eru kannski ekki allir sem eiga hljóðfæri og þá er það bara allt í lagi þá fá þau bara að prófa hjá hinum. Á föstudaginn héldum við þorrablót hér  á  leikskólanum . Það var gaman að sjá hvað mörg börn mættu í lopapeysu í leikskólann. Börnin fengu að smakka ýmsan mat sem þau höfðu ekki smakkað áður eins og til dæmis, hákarl, súran hval, sviðsultu og síðan var líka slátur, harðfiskur, rúgbrauð og svo auðvitað grjónagrautuinn hennar Mombiar fyrir þau sem ekki vildu smakka á þorramatnum. Börnin voru auðvitað misdugleg að smakka, þar sem sumir smökkuðu á öllu á meðan aðrir vildu ekki smakka neitt, þrátt fyrir miklar yfirlýsingar um að ætla að smakka á öllu  þegar við vorum að ræða um þorramatinn Börnin voru búin að búa sér til þorrahatta sem þau höfðu á sér og gerði það mikla stemmingu. Þegar við voru búin  að borða hittust allir inn á Bóli í sameiginlegri samverustund þar sem við sungum þorralög og Helga og Þórhildur komu í peysufötum og sýndu börnunum hvernig fötin voru í gamla daga. En það voru einhverjir krakkar sem sögðu eftir á að Helga og Þórhildur hefðu verið í einhverjum grímubúningum hehe  En þetta var mjög skemmilegt.      Í sambandi við hópastarfið þá eru kisuhópur, tígrisdýrahópur og hópurinn hennar Helgu á bóli búin að vera að skoða og rannsaka vatnið. Þau settu vatn í vatnskar og settu ýmsa hluti ofan í og skoðuð hvort þessir hlutir myndu sökkva eða fljóta. Eðlurnar og Deplahópur eru að skoða og hlusta á ýmis hljóð. Deplahópur vildi mála eða lita hljóð í umhverfinu. Það voru ýmsir hlutir sem komu úr þeim teikningum t.d. eldflaugar, eldfjall, vélmenni, sprengjur og fleira. síðan klipptu þau út hluti sem gefa frá sér hljóð úr vikublöðum og límdu á eitt stórt blað.Eðlurnar fóru og hlustu á ýmis hljóð í umhverfinu okkar. Þau fóru t.d niður í eldhús, út og í kjallarann þar sem Deplahóður var að vinna. Það er sem sagt nóg að gera í hópastarfi á Bakka og Bóli. Yngri börnin á Bóli eru svo að fara að læra um litina og skoða þá betur. Það eru líka nýjar myndir komnar inn á heimsíðuna.kv frá Skerjagarði</description>
Körfur í fataklefanum, þemastarf og spilaog púsldagur á fimmtudaginn
      <description>HæhæVið viljum byrja á minna á körfurnar sem eru komnar í fataklefann hjá Bakka. Þær eru til að geyma í aukafötin sem voru vanalega í töskunum þ.e. nærföt, sokka, sokkabuxur, peysu og buxur. Þær eru ekki til að geyma vettlinga, ullarsokka og húfur í.  Við höfum sett lítinn miða á hverja körfu og þegar það vantar eitthvað í körfuna þá merkjum við x við það sem vantar (nærbuxur, nærbol, sokka, sokkabuxur, peysu eða buxur). Þá komið þið með það sem vantar næsta dag og setjið í körfuna og strokið út x-ið. Þá vitum við að það vantar ekki neitt. Föstudaginn 25. janúar verður haldið þorrablót hér á Skerjagarði en þá fáum við að smakka á þorramat namm namm og eru börnin mjög spennt að fá að smakka hákarl hehe. Börnin hafa verðið að gera þorrahatta sem þau skreyta og hafa á þorrablótinu. Það væri einnig mjög gaman ef þau ættu lopapeysu sem þau gætu mætt í þennan dag . Við höfum einnig verið að læra lagið Þorraþræll (Það er fost á Fróni...).Annars er allt komið á fullt skrið með þemað. Kisuhópur, Tígrisdýrahópur og hópurinn hennar Helgu á Bóli þ.e. börn fædd 2004 á Bakka og Bóli eru búin að vera að skoða vatnið og gera ýmsar tilraunir með það. Þau gerðu einnig hugmyndavef þar sem þau sögðu frá því sem þau vissu um vatnið. Við höfum líka verið að syngja lög um vatnið t.d. Droparnir við pollinn og Rigning hér og rigning þar og fleiri skemmtileg lög.      Eldri hóparnir á Bakka þ.e. Eðlurnar og Deplahópur eru að skoða og hlusta á ýmis hljóð í umhverfinu okkar. Við höfum verið að syngja ýmis lög þar sem einhverskonar hljóð koma fram í.  Þau gerðu einnig hugmyndavef þar sem þau sögðu frá þeim hljóðum sem þau mundu eftir og þegar þau voru komin á skrið ætluðum þau aldrei að geta hætt þau vissu um svo mörg og mismunandi hljóð, t.d. ýmis dýrahljóð, hljóð í hljóðfærum, hljóð sem þau heyrðu inni í  leikskólanum og úti og mörg mörg fleiri.       Skólahópurinn fór í heimsókn í Melaskóla í síðustu viku þar sem þau fengu að fara á bókasafnið og í Selið.Þau hittu þar alla krakkana sem voru hér á Skerjagarði í fyrra og eru nú í 1. bekk og var það mjög skemmtlegt. Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og síðan fengu þau að fara heima með skólabílnum.      Berglind tónlistarkennari hefur verið að kenna börnunum nýtt lag um hana Ingu Dóru og er textinn af því lagi kominn inn á heimasíðuna (tónlist).VIð viljum svo minna á spila og púsldaginn á fimmtudaginn 24. janúar en þá mega börnin koma með spil eða púsl að heiman. Yngstu börnin á Bóli mega koma með bangsa í staðin fyrir spil eða púsl.Og svo eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu.kv frá Bakka og Bóli</description>
Margt að gerast á Skerjó
      <description>HæhæÞað er allt gott að frétta af okkur á Skerjó. Það er mikið búið að vera að gera hjá okkur í síðustu viku og í gær. Tveir elstu árgangarnir á Bakka fóru í Gerðuberg að sjá sýningu eftir Sigrúnu Eldjárn um Málfríði, Kugg og vini þeirra. Þetta var mjög skemmtileg sýning og höfðu krakkarnir mikið gaman af. Þau fengu að keyra bílinn hennar Málfríðar og fara upp í Geimfarið hennar og margt fleira skemmtilegt.  Í leiðinni var kíkt á bókasafnið í Gerðubergi og skoðaðar nokkrar bækur.     Skólahópurinn fór svo á Árbæjarsafnið í gær að skoða gömlu húsin, leikföngin og allt gamla dótið sem notað var í gamla daga. Sjá myndir í myndaalbúminu.      Börnin á Bóli höfðu bökunardag í síðustu viku þar sem þau bökuðu kanelsnúða handa öllum. Þetta var mjög skemmtilegt og fengu þau að taka þátt í öllu ferlinu. Þau fengu að brjóta eggin, setja hráefnið í skál, fletja út og rúlla upp og allt það sem tilheyrir í kanelsnúða bakstri. Og ekki skemmdi góði ilmurinn í húsinu og snúðarnir voru rosalega góðir namm namm.     Nú erum við að byrja í þemastarfi á Bakka og á Bóli og hefur verið ákveðið að taka fyrir vatnið með börnunum sem eru fædd 2004 og hljóð og hljóðfæri með elstu tveimur árgöngunum (2003-2002). Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og fróðlegt að sjá hvernig þetta þema á eftir að þróðast hjá hverjum hóp fyrir sig. Þetta er mjög vítt svið og geta hóparnir farið í margar áttir með viðfangsefnið þegar líður á.  Við erum að byrja að leggja inn bækur og lög sem tengjast þessum viðfangsefnum.Börn fædd 2005 á Bóli fara í litina núna í þemastarfi.Bókadagurinn sem var á fimmtudaginn í síðustu viku heppnaðist mjög vel og var mikið lesið þann daginn. Börnin voru mjög spennt að láta lesa úr sinni bók og sátum við lengi í einu og lásum og allir sátu mjög áhugasamir að hlusta á hverja bókina á eftir annarri Börnin mega koma með bækur að heiman hvenær sem er. Okkur finnst mjög gaman að fá nýjar bækur til að lesa, en það þarf bara að muna að merkja bækurnar vel þannig að þær komist til skila.Það gleymdist að setja inn á matseðil og stundaskrá að 25. janúar verður þorrablót hér á leikskólanum þar sem við munum fá að smakka á þorramat namm namm.  Það væri mjög gaman ef börnin gætu komið í lopapeysum í leikskólann þann dag  (ef þau eiga) og verða svolítið þjóðleg í lopapeysum að borða íslenskan þorramat. kv Bakki og Ból</description>
þemastarf og körfur í fataklefa
      <description>HæhæJæja þá er starfið allt að komast á rétt skrið eftir gott jólafrí. Við byrjuðum í þemastarfi aftur í þessari viku.  Við settum inn á janúarstundaskránna að við ætluðum að taka fyrir álfa og tröll, en okkur hefur snúist hugur um það þar sem við tókum þetta sama þema fyrir ári síðan með þessum sömu börnum.  Nú leggjum við höfuðið í bleyti og hlustum á börnin og sjáum hvað þau hafa áhuga á að skoða Nokkur börn af Bakka fóru með Berglindi tónlistarkennara að syngja fyrir aldraða á Vesturgötunni síðastliðinn föstudag. Þau sungu nokkur jólalög og fleiri skemmtileg lög sem þau hafa lært hjá Berglindi. Þeim var tekið rosalega vel og skemmtu sér og öðrum vel  . Við vonumst til að fá að fara aftur með Berglindi og syngja og þá munu önnur börn fá að vera með. (sjá fleiri myndir í myndaalbúminu).    Nú hafa verið settar körfur í hólfin hjá börnunum ykkar og eru þær hugsaðar til þess að setja aukaföt í þ.e. nærföt (nærbuxur og bol), sokka/sokkabuxur, peysu, buxur. Þessar körfur eru ekki til þess að geyma vettlinga, húfur og þess háttar í. Þetta er gert til þess að þið foreldrar geti fylgst betur með hvað vantar hjá börnunum ykkar. Við munum setja miða á körfurnar þar sem við merkjum við þegar það vantar eitthvað í körfuna og þá getið þið komið með hrein aukaföt daginn eftir. Við vonumst til að þetta getið hjálpað til við að hafa alltaf nóg af aukafötum fyrir börnin ykkar því að það er alltaf leiðinlegt að blotna og hafa ekki nein aukaföt til að fara í og við eigum ekki til aukaföt á börnin Við viljum svo minna á bókadaginn sem verður á fimmtudaginn 10. janúar en þá mega börnin koma með bækur að heiman og munum við reyna að lesa sem flestar bækur fyrir þau.  Það er alltaf gaman að fá nýjar bækur til að lesa.Vorum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið og loksins eru komin nokkur gullkorn líka kv Bakki og Ból</description>
Stundaskrá fyrir janúar 2008
      <description>HæhæGleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamla árið. Það eru komnar stundaskrár fyrir janúar inn á heimasíðuna inn í Ból og Bakki.Í janúar ætlum við að hafa bókadag og mega þá börnin koma með bækur að heiman og við reynum að lesa sem flestar bækurnar.Einnig ætlum við að hafa spila og púsldag og mega börnin þá koma með spil eða púsl að heiman. Fyrir börnin sem eru fædd 2005 og 2006 höfum við í staðin bangsadag þar sem þau eru kannski ekki mikið farin að spila.kv Bakki og Ból</description>
Gleðileg jól 
      <description>Kæru foreldrar og börnVið óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þökkum fyrir frábæra samvinnu á árinu sem er að líða. Hafið það sem allra best um jólin og svo sjáumst við hress og kát á nýju ári.Jólakveðja frá okkur öllum á Skerjagarði.</description>
Það er búið að vera gaman í desember 
      <description>HæhæJæja þá er desember langt liðinn og erum við hér á Skerjó búin að eiga rólega og góða daga. Jólaballið heppnaðist í alla staði vel og var mæting rosalega góð og skemmtu allir sér vel. Við vorum með bökkunardag á mánudaginn þar sem börnin bökuðu piparkökur  Við höfum einnig breytt eldhúsinu okkar í kaffihús þar sem yngstu þrír árgangarnir (2006, 2005 og 2004) fengu kakó, kleinur og piparkökur.  Tveir elstu árgangarnir fara í Húsdýragarðinn á kaffihús þar.  Á morgunn verður svo kirkjuferðin þar sem presturinn í Neskirkju tekur á móti okkur. Næsta vika verður svo í rólegheitum hjá okkur, en við ætlum að fara með tvo elstu árgangana á Þjóðminjasafnið að sjá jólasveinana einhvern daginn. Við erum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið frá jólaballinu, kaffihúsinu, bökunardeginum og fleira. kv frá Skerjó</description>
Stundatafla fyrir desember og jólakort.
      <description>HæhæJæja þá er stundatafla fyrir desember mánuð komin inn á heimasíðuna. Við ákváðum einnig að prenta út eintök og setja í hólfin hjá börnunum þennan mánuðinn þar sem mikið er um að vera hjá okkur. Við förum t.d. á kaffihús, höldum jólaball, kirkjuferð, bakstursdagur og fleira skemmtilegt. Annars ætlum við að vera í rólegheitum í desember fyrir utan þær ferðir sem við förum í. Við eru byrjuð að syngja jólalögin og vonandi náum við að setja þau inn á síðuna fljótlega. Við ætlum einnig að fara með tvo elstu árgangana á þjóðmynjasafnið og sjá jólasveinana en við höfum ekki sett ákveðna daga í það.Það eru eitthvað af jólakortunum tilbúin sem þið hafið pantað, (en ekki öll). Annars ætlum við að reyna að vera búin að prenta út öll kortin í næstu viku. Endilega athugið hvort ykkar kort séu tilbúin og munið að greiða um leið  (2000kr pakkinn). Viljum við svo þakka ykkur fyrir frábærar viðtökur á jólakortunum, þið eruð frábærkv Bakki og Ból</description>
Jólakort-síðasti dagur til að panta
      <description>Foreldrar ath!Það fer að verða síðast séns að panta jólakort eftir börnin ykkar. Við þurfum að vera búin að fá pöntunina í síðasta lagi í fyrramálið (þ.e. þriðjudagsmorgunn 27. nóvember).Kv. Bakki og Ból</description>
Jólaball 7. desember og jólakort
      <description>Föstudaginn 7. desember verður haldið jólaball leikskólans í Frostaskjóli á milli kl. 14-16. Allir eru velkomnir þ.e. foreldrar, systkini, amma og afi. Jólasveinninn mætir og dansar í kringum jólatréið með börnunum og færir þeim nammipoka. Foreldrafélagið hefur svo afhent jólapakka fyrir hvert leikskólabarn þegar það fer heim.Sá siður hefur verið að börnin hafa verið sótt í leikskólann kl. 13:30 og svo hittast allir hressir í Frostaskjóli og eiga góðan dag saman.Foreldrar á Bakka hafa séð um veitingar fyrir fullorðna og foreldrar frá Bóli fyrir börnin.    Við stefnum á námsferð í vor að kynna okkur Reggio Emilia. Einn liður í fjáröflun okkar eru jólakort eftir börnin ykkar. Við skönnum inn myndir eftir barnið/börn ykkar og prentum þau á góðan pappír. Munum við selja jólakortin 12 í pakka á 2000 kr. Þetta hefur vakið lukku og verið vel tekið hjá þeim leikskólum sem hafa gert þetta J Gott væri að fá pantanir frá ykkur sem fyrst. Það er kominn listi á töflurnar hjá Bakka og Bóli þar sem þið getið skráð niður fjölda af pökkum sem þið viljið fá, ef þið hafið áhuga     Kv Bakki og Ból</description>
Nýjar myndir og fleira
      <description>HæhæJæja loksins heyrist frá okkur hér á Skerjó   Við erum aðeins byrjuð í undirbúningi fyrir jólin en það er jú bara rétt rúmur mánuður til jóla hohohó..   Eins og fyrri jól hafa börnin útbúið jólakort úr endurunnum pappír og erum við byrjuð að vinna í honum. Það er mjög skemmtilegt ferli sem allir fá að taka þátt í og útbúa sinn eigin pappír. Annars erum við að vinna með tjáningu og framkomu og eru börnin að læra ýmsar skemmtilegar vísur og lög. Nú erum við að læra lagið um hana ,,Siggu gömlu,, (bæði börnin á Bóli og Bakka). Við erum búin að setja hana hér inn á síðuna undir Bakki -söngtextar og Ból-söngtextar þannig að nú getið þið sungið heima með börnunum ykkar Fuðrufataballið sem var í byrjun mánaðarins var vel heppnað og mættu börnin í skemmtilegum búningum og skemmtu sér vel. Við villjum svo bara minna á nestisdaginn sem verður næsta fimmtudag en þá mega börnin koma með nesti að heiman og borða í leikskólanum. Við viljum bara minna á að koma með hollt og gott nesti.Hann Sigurvin frá Neskirkju kemur alltaf til okkar 1x í mánuði (hann kom í dag þriðjudag). Hann segir börnunum sögu, syngur með þeim og spjallar við þau. Einnig koma Engilráð, Rebbi refur og fleiri skemmtilegir vinir með honum og taka þátt í stundinni. Við viljum svo bara minna ykkur á að vera alltaf með nóg af aukafötum í töskunni-hafa alltaf með pollagalla, stígvél, kuldagalla og kuldaskó, hlýja peysu, vettlinga, húfu og sokka  ALLA DAGA.Það getur verið pollagallaveður fyrripartinn en svo kuldagallaveður seinnipartinn eða öfugt Við vorum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið. Endilega kíkið á þær Bestu kveðjur frá okkur á Skerjó</description>
Stundaskrá fyrir nóvember komin á heimasíðuna.
      <description>HæhæÞá er komin stundaskrá fyrir nóvember mánuð. Það verður nóg að gera í nóvember hjá okkur. Fimmtudaginn 1. nóvember ætlum við að hafa furðufata- og grímudag. Þá mega börnin mæta í furðufötum og/eða með grímur í leikskólann. Fimmtudaginn 15. nóvember verður svo hinn vinsæli nestisdagur. Þá mega börnin koma með nesti að heiman og borða í leikskólanum.  Í lok mánaðarins eða 29. nóvember verður svo Dóta-og bangsadagur. Það er oft meira kósí fyrir minnstu krílin okkar að koma með bangsa frekar en dót á dótadegi. VIð höfum einnig sent ykkur stundaskránna á maili en ef þi hafið ekki fengið mail frá okkur látið okkur þá endilega vita. Það eru kannski einhverjar adressur sem eru ekki réttar hjá okkur og einnig ef þið hafið breytt um netfang eða þvíumlíkt og kannski gleymt að láta okkur vita. Ef þið hafið einhverjar skemmtilegar hugmyndir af uppákomudögum sem brjóta starfið okkar upp þá endilega látið okkur vita hér á síðunni kv Bakki og Ból</description>
Takk fyrir góða mætingu á foreldrakaffið og fundinn :-)
      <description>HæhæVið viljum bara þakka ykkur fyrir frábæra mætingu á foreldrakaffið og á foreldrafundinn. Það var nánast 100 % mæting á foreldrakaffið og finnst okkur frábært að sjá áhugann hjá ykkur foreldrum á starfi barna ykkar Það voru nokkur börn og foreldrar sem spurðu um uppskriftina af kókoskúlunum sem börnin útbjuggu fyrir foreldrakaffið og látum við hana fylgja með.Kókoskúlur100gr smjör (smjörvi)1 msk kakó4 msk sykur3 dl haframjöl1 msk vatn Kókosmjöl til að velta kúlunum upp úr-Þetta er allt sett saman í skál (nema kókosmjölið) og hnoðað með höndunum. Búnar til kúlur úr og velt upp úr kókosmjölinu. Gott að setja aðeins í kæli áður en borið fram Góða helgikv frá Skerjó</description>
Munið foreldrakaffið og foreldrafundinn á morgunn miðvikudag.
      <description>Foreldrar ath!Munið foreldarkaffið á morgunn miðvikudag á milli kl. 8-9 og 15-16. Boðið verður upp á veitingar sem börnin útbjuggu Einnig viljumvið minna á foreldrafundinn annað kvöld þ.e. miðvikudagskvöldið 17. okt. kl. 20:30.Vonumst til að sjá sem flesta bæði í kaffinu og fundinum kv frá okkur á Skerjó</description>
Nýjar myndir í myndaalbúmið, foreldrakaffi og foreldrafundur
      <description>HæhæJæja loksins eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið  (öll myndaalbúmin sem birtast þegar þið opnið myndaalbúmið eru ný).Annars er bara allt gott að frétta af okkur hér á Skerjó. Við erum að leggja lokahönd á skordýraþemað þar sem okkur finnst áhuginn hjá börnunum hafa minnkað mikið. Það verður foreldrakaffi á miðvikudaginn 17. október á milli k. 8-9 eða 15-16, þar sem þig getið komið og skoðað verk barnanna sem tengjast skodýra- vina- og haustþemanu. Við munum svo athuga hvar áhugi barnanna liggur í framhaldi af því og það verður spennandi að sjá hvað við tökum fyrir næst. Við viljum svo bara minna á FORELDRAFUNDINN sem verður haldinn hér á Skerjagarði miðvikudagskvöldið 17. október kl.20:30 þar sem starfið verður kynnt, starfsfólk kynnt og svo mun foreldrafélagið kynna starfsemi þess. Við vonumst til þess að sjá sem flesta foreldra.Vorum að setja inn ný lög hjá Bakka og einnig er kominn matseðill fyrir október.kv Bakki og Ból</description>
Dagskrá október mánaðar
      <description>HæhæÞað er komin stundaskrá fyrir október mánuð inn á heimasíðuna.Í október æltum við á Bakka að fara á Nátturugripasafnið með Deplahóp og Eðlurnar í tengslum við skordýraþemað. Einnig verður bökunardagur hjá börnunum á Bóli og Leyniveisla skólahóps á Bakka. Þá munu börnin í skólahóp bjóða börnunum í veislu sem þau munu útbúa sjálf.Einnig ætlum við að hafa náttfataball og bangsadag í tengslum við alþjóðlegan bangsadag sem er í október. Þá koma allir í náttfötum í leikskólann og með bangsa líka.Þann 17. október ætlum við svo að hafa foreldrakaffi á deildunum á milli kl. 8-9 um morguninn og svo á milli kl. 15 og 16 seinnipartinn þannig að ællir ættu að finna tíma sem hentar til að komá og skoða það sem börnin hafa verið að gera og fá sér kaffisopa í leiðinni.Um kvöldið þann 17. verður svo foreldrafundur hér á Skerjagarði þar sem starfið verður kynnt sem og starfsfólk. Einnig mun foreldrafélagið vera með smá kynningu.Því miður eru ekki komnar neinar nýjar myndir inn á síðuna en vonandi gefst okkur tími í þessari viku til að setja inn myndir. kv Bakki og Ból</description>
Leikskólinn lokaður föstudaginn 28. september
      <description>Foreldrar ath !Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 28. september vegna námskeiðsdags starfsfólks.kv frá Skerjagarði</description>
Vinátta, skordýr og tónlist
      <description>HæhæÞað er alltaf nóg að gera hjá okkur hér á Skerjó. Við erum enn að vinna með skordýraþemað.  Það er ýmislegt búið að vera að bralla í sambandi við það. Einn hópurinn á Bakka bjó t.d. til risastórann kóngulóarvef og risastórar kóngulær. Það er búið að fara í margar gönguferðir með stækkunargler og háfa að skoða skordýrin. Við erum líka að vinna með vináttuna og okkur sjálf. Börnin hafa verið að finna nöfn á hópana sína og heita þeir ýmsum skemmtilegum nöfnun, t.d. tígrisdýrahópur, kisuhópur, Deplahópur og svo eru nokkrir hópar eftir að finna nafn á sinn hóp. Þau hafa verið að teikna sjálfsmynd þar sem þau spá í hvernig þau líta út þ.e. að skoða sig í spegli áður en þau teikna sig. Við höfum tekið hópmyndir af þeim og ætlum svo að búa til vinakeðju með sjálfsmyndunum þeirra :-) Börnin búa svo til litla vinagjöf sem þau gefa hvert öðru á vinaballi sem haldið verður 24. september.      Tónlistin er byrjuð með henni Berglindi og er alltaf jafn gaman að fara til hennar. Þar dönsum við saman t.d. kóngulóardans, við syngjum ný og gömul lög og gerum ýmislegt skemmtilegt saman. Berglind mun tengja tónlistina við það sem við erum að gera hverju sinni eins og t.d. núna erum við með skordýraþema og vinaþema og kennir hún þeima þá ný lög sem tengjast því og dansa.     Við viljum svo bara minna á að það er lokað föstudaginn 28. september v/námskeiðsdags starfsfólks. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið kv frá Bakka og Bóli</description>
Ýmislegt nýtt komið á heimasíðuna 
      <description>HæhæVorum að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið         Við vorum líka aðeins að breyta uppsetningunni á síðunni. Það eru komnir sér tenglar fyrir Bakka og Ból og þar inn í eru ýmsar upplýsingar um starfið á deildinni t.d. hópaskipting, stundatöflur og söngtextar sem við erum að syngja (þ.e. sér söngtextar sem Ból er að syngja og sér sem Bakki er að syngja).Einnig er komin nýr tengill um tónlistina með Berglindi tónlistarkennara. Innan hans er t.d. mynd af Berglindi og vonandi fljótlega smá upplýsingar um hana, skipting hópanna í tónlist á Bakka og Bóli og textar af lögum sem hún er að kenna börnunum. Við erum líka búin að setja inn myndir af starfsfólkinu á Bakka og Bóli.ATH!Nú er tónlistin byrjuð með henni Berglindi tónlistarkennara og verðum við í Gleðigarði (kjallara) í tónlistinni í vetur.  Ból er á fimmtudögum og Bakki á föstudögum. Við erum búin að skipta börnunum niður í hópa í tónlistinni (sjá tengil -tónlist hér til hliðar) og er nauðsynlegt að börnin séu komin á réttum tíma ef þau eiga að ná tónlistinni. Það er ekki hægt að koma inn í  tónlistartíma þegar hann er byrjaður og ekki hægt að fara með næsta hóp á eftir. Ef börnin koma eftir að þeirra tími er byrjaður eða eftir að hann er búinn þá missa þau af tónlistinni þann daginn. Þess vegna er nauðsynlegt að skoða í hvaða hóp og á hvaða tíma barnið ykkar er.Ef það er eitthvað sem ykkur dettur í hug að hægt sé að setja hér inn á heimasíðuna, einhverjar nánari upplýsingar sem þið viljið eða annað skemmtilegt, endilega látið okkur vita annað hvort  hér á síðunni eða ná tali af okkur beint. Bestu kveðjur frá Bakka og Bóli</description>
Námskeiðsdagur starfsfólks og foreldrafundur
Skólavottorð
      <description>Foreldrar athugið!Þeir foreldrar sem eru með skólavottorð þurfa að skila því sem allra fyrst til hennar Ellu.Bestu kveðjur frá Skerjó</description>
Stundaskrá fyrir september mánuð og nýjar myndir
      <description>HæhæÞá er komin stundaskrá fyrir septemer mánuð.Þið finnið hana með því að fara inn í Bakka eða Ból eftir því á hvaða deild barnið ykkar er og þar stendur stundaskrá september. Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. kv Bakki og Ból</description>
Hópaskipting, stundaskrár og dagskipulag komið inn á heimasíðuna. 
      <description>HæhæVorum að setja inn á heimasíðuna hér til hægri, inn í ,,Bakki,, og ,,Ból,, hópaskiptingu í vetur, dagskipulag, stundaskrá vetrarins og stundaskrá mánaðarins. Stundaskrá september mánaðar er ekki komin inn en kemur í byrjun næstu viku. Það er kominn nýr matseðill fyrir september mánuð. kv Bakki og Ból</description>
Foreldrar ath. - Skordýraþema
      <description>HæhæNú eru eldri börnin á bóli (fædd 2004) og börnin á Bakka að vinna með könnunaraðferðina og ætlum við að nýta síðustu daga sumarsins til þess að finna og skoða skordýrin. Til þess að efla áhuga barnanna og dýpka vinnuna er börnunum þess vegna velkomið að koma með að heiman hvað eina sem tengist skordýrum og lána okkur  meðan á verkefninu stendur. Þetta getur t.d. verið :          Ljósmyndir eða teikningar af skordýrum  skordýrabangsar eða leikföng  uppstoppuð skordýr  bækur sem tengjast skordýrum og fleira sem ykkur dettur í hug.   -Við viljum líka minna á dótadaginn á morgunn föstudag. Þá mega börnin koma með eitt dót að heiman. Fyrir þau allra yngstu er mjög sniðugt að koma með bangsa eða eitthvað álíka.  Bestu kveðjur frá Bóli og Bakka </description>
Loksins fréttir frá okkur :-)
      <description>HæhæLoksins heyrist frá okkur hér á Skerjó eftir gott sumarfrí. Við vonum að allir hafi haft það rosa gott í sumarfríinu og bjóðum við nýja foreldra sérstaklega velkomna í hópinn . Nú er vetrarstarfið að hefjast að nýjan leik hjá okkur eftir skemmtilegt sumarstarf þar sem útivera hefur verið í aðalatriði. Það hafa orðið smávægilegar breytingar á starfsmönnum í hjá okkur, en ekki miklar sem betur fer .Hún Ásrún sem var á Bóli er að hætta og sest nú á skólabekk og óskum við henni velfarnaðar í skólanum (það er samt aldrei að vita nema hún verði eitthvað hjá okkur í vetur). Ragnhildur verður ekki hjá okkur á föstudögum eins og hún var síðastliðinn vetur þar sem hún ætlar að einbeita sér algerlega að náminu. Í staðin fyrir þessar frábæru konur koma aðrar frábærar í staðinn. Hún Helga leikskólakennari er byrjuð hjá okkur á Bóli og sér um deildarstjórn þar eftir hádegi. Annars er allt að komast á rétt skrið hjá okkur og erum við á Bakka byrjuð að vinna með skordýrin í þemastarfi.  Börnin hafa skoðað bækur um skordýr og fóru þau svo í vettvangsferð út á skógarróló í leit að skordýrum. Þau bjuggu til skordýragildru sem þau grófu niður í jörðina og settu ýmislegt góðgæti í til að lokka skordýrin ofan í. Þetta þema er rétt að byrja hjá okkur og verður gaman að sjá hvað gerist næst . Það er svo gaman að sjá hvað börnin eru áhugasöm og spennt fyrir þessu.Skólahópurinn verður 3x í viku mánudögum, fimmtudögum og föstudögum. Sóldís og Inga munu vera með skólahópinn í vetur. Á Bóli eru aðlaganir nýrra barna í fullum gangi og ganga þær mjög vel.Eldri börnin á Bóli (börn fædd 2004) munu svo fylgja yngri börnunum á Bakka (börn fædd 2004) í þemastarfi og fleiru. Þau eru byrjuð að vinna með skordýrin í þemastarfi eins og yngri börnin á Bakka.Á haustin höfum við alltaf byrjað á því að taka vináttuna fyrir og verður engin breyting  þar á þennan veturinn. Við munum flétta vináttunni inn í allt starfið hjá okkur til að allir kynnist vel og læri að umgangast hvert annað á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Við hlökkum til að fá að starfa með börnunum ykkar og ykkur foreldrunum í vetur og vonum að allir verði duglegir að kíkja á okkur hér á heimasíðunni og endilega að láta heyra í ykkur hér á síðunni, það er svo gaman að sjá og heyra að þið séuð að fylgjast með Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið hjá okkur.Bestu kveðjur frá okkur Skerjó.</description>
SUMARFRÍ
      <description>Hæhæ Vorum að setja inn stundaskrá  og matseðil fyrir ágúst mánuð þar sem við erum öll að fara í sumarfrí Við viljum svo bara senda ykkur okkar bestu sumarkveðjur og við vonum að allir eigi eftir að hafa það rosa gott í sumarfríinu og svo hittumst við bara hress og kát í ágúst.Bestu kveðjur frá öllum á Skerjó </description>
Nýjar myndir frá útskriftarferð skólahóps og frá nestisdeginum.
      <description>HæhæVorum að setja inn nýjar myndir frá nestisdeginum sem var í gær. Þá komu börnin með nesti að heiman og borðuðm við nestið úti. Yngstu börnin á Bóli fóru út að skógarróló, eldri börnin á Bóli og börnin á Bakka fóru út á aparóló. Veðrið lék við okkur og allir skemmtu sér vel.Einnig settum við inn myndir frá útskriftarferðinni hjá skólahópnum okkar en þau fóru út í Viðey. Það var rosa gaman hjá þeim og þá sérstaklega að fá að fara í ,,hraðbátinn,,  Þau fóru á veitingastaðinn úti í Viðey og fengu þar að borða og síðan skoðuðu þau sig um léku sér úti í náttúrunni.Þetta var mjög vel heppnuð ferð.kv frá Bakka og Bóli</description>
Sumarhátið, snúðaskokk og fjöruferð-nýjar myndir
      <description>HæhæÞað eru komnar nýjar myndir frá sumarhátíðinni sem var 15. júní og snúðaskokkinu sem var 19. júní. Sumarhátíðin gekk í alla staði vel og voru allir ánæðir eftir daginn. Börnin komu í furðufötum og er það alltaf mikið stuð hjá þeim. Við fórum í skrúðgöngu um hverfið og sungum á leiðinni. Börnin höfðu búið sér til kórónur sem þau voru með og nokkur börn bjuggu til hljóðfæri sem þau spiluðu á í skrúðgöngunni. Þegar við komum aftur í leikskólann var settur upp hoppukastali sem allir fengu að prófa og spiluð var músik útí garði og dönsuðu börnin úti og léku sér. Síðan var pylsupartý í hádeginu hjá henni Mombi okkar.   Í gær var svo hið feykivinsæla snúðaskokk haldið. Þá hlaupa börnin smá hring í hverfinu mis langan eftir aldri. Þegar þau koma svo í mark þá fá allir gómsæta súkkulaðisnúða namm namm.   Eldri börnin á Bóli fóru líka í fjöruferð í gær. Það var rosa gaman og ekki síst vegna þess að þau fundu krabba í fjörunni. Hann var rosa stór og flottur og tóku þau hann með  í leikskólann.  kv Bakki og Ból</description>
Myndir frá hjólaferð skólahóps
      <description>HæhæVorum að setja inn nýjar myndir frá hjólaferðinni sem skólahópurinn fór í 12 júní. Ferðin heppnaðist mjög vel og skemmtu allir sér vel kv frá Bakka</description>
Nýjar myndir í dag frá menningarferðinni hjá Bakka og útiveru á föstudaginn hjá Bóli 
      <description>HæhæVar að setja inn nýjar myndir í dag frá menningarferðinni sem börnin á Bakka fóru í í síðustu viku og útivera hjá börnunum á Bóli á föstudaginn.Setti líka inn nýjar myndir á föstudaginn 8. júní.        kv frá Bakka og Bóli</description>
Nýjar myndir frá sveitaferðinni og fleira skemmtilegt
      <description>HæhæJæja þá erum við loksins búin að setja inn myndir frá sveitaferðinni síðastliðinn föstudag. Hún tókst í alla staði vel og skemmtu allir sér vel börn sem og fullorðnir. Það er alltaf jafn gaman að sjá hvað margir foreldrar sjá sér fært að mæta með börnunum sínum í sveitaferðina á miðjum föstudegi . Elstu tveir árgangarnir á Bakka fóru í menningarferð í bæinn. Þau fóru upp í Hallgrímskirkjuturn og skoðuðu yfir Reykjavík, í Alþingisgarðinn og borðuðu þar nesti og fleira skemmtilegt.  Við setjum inn nýjar myndir frá þessum ferðum seinna í dag eða strax eftir helgi.Við minnum svo bara á að í næstu viku verður Hjóladagur hjá skólahópnum á þriðjudaginn. Látum ykkur betur vita með tíma á mánudaginn. Einnig verður sumarhátið hjá okkur á föstudaginn 15. júní. Þá mega börnin koma í furðufötum í leikskólann. Annars er bara sumarfílingur í okkur hér á Skerjó og allir dagar nýttir vel til útiveru. P.s. Það væri rosa gaman að fá að heyra meira frá ykkur hér á síðunni þ.e. að kvitta í gestabókina eða skrifa álit á bloggið  Sumarkveðjur Bakki og Ból.</description>
Nýjar myndir og fleira 
      <description>   HæhæViljum byrja að minna á sveitaferðin á föstudaginn 1. júní. Það er komið skráningarblað upp á töflu hjá Bakka og Bóli. Viljum við biðja ykkur um að skrá ykkur á listann þannig að hægt verði að panta rútu fyrir þann fjölda sem ætlar að fara  Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. Endilega kíkið á með börnunum ykkar, þau hafa mjög gaman af því að skoða myndir frá leikskólastarfinu og geta sagt ykkur frá því sem er að gerast á myndunum (allavega eldri börnin ).Það er einnig komin ný stundaskrá fyrir júnímánuð. Umferðaskólinn kom í leikskólann í síðustu viku. Þá var farið yfir umferðareglurnar með börnunum (börnum fædd 2001 og 2002). Farið var yfir almennar umferðarreglur, notkun reiðhjólahjálma, bílstóla í bílum og fleira. Í lokin fengu börnin að sjá umferðamynd með Felix Bergsyni, mjög skemmtilega. Börnin fengu svo poka með blaði í sem þau áttu að teikna umferðamynd á , límmiða með lögreglumerki og bækling sem foreldrar eiga að lesa. Það komu 3 lögreglumenn í heimsóknina og fóru tveir þeirra út í garð hjá okkur og heilsuðu upp á yngri börnin sem voru mjög spennt yfir því .Yngri börnin á Bakka og börnin á Bóli eru að læra nýja rímvísu um líkamann. Hún er svona: Rímvísa um líkamannEr þetta penni- nei þetta er enniEr þetta kaka- nei þetta er hakaEr þetta Stebbi- nei þetta er nebbiEr þetta Unnur- nei þetta er munnurEr þetta tár- nei þetta er hárEr þetta lunga- nei þetta er tungaEr þetta skinn- nei þetta er kinnEr þetta lönd- nei þetta er höndEr þetta slingur- nei þetta er fingurEr þetta hagi- nei þetta er magiEr þetta skæri- nei þetta er læriEr þetta hálfur- nei þetta er kálfurEr þetta tré- nei þetta er hnéEr þetta gil- nei þetta er ilEr þetta ká- nei þetta er táEr þetta skass- nei þetta er rass(þessi vísa er líka inn í söngtextar-þulur hér á heimasíðunni).Sumarkveðjur frá Bakka og Bóli </description>
Munið útidótadag, sveitaferð og fleiri fréttir
      <description>HæhæVið viljum byrja á að þakka ykkur fyrir komuna á opna húsið síðastliðinn laugardag. Það var rosalega gaman að sjá hvað margir komu að skoða hvað börnin hafa verið að gera í leikskólanum. Þetta var alveg yndislegur dagur, gott veður, frábærar veitingar í boði, börnin sungu svo frábærlega og allir í svo góðu skapi              Nú eru allir komnir í sumarskap (eða er það ekki þrátt fyrir smá snjókomu í enda maí), og erum við farin að skipuleggja júní mánuð. Þá ætlum við að gera margt skemmtilegt. Á Bakka ætlum við halda áfram að vinna með fjöruna eitthvað fram í júni eða á meðan áhugi barnanna er fyrir hendi. Einnig ætlum við á Bakka og Bóli að hafa pizzuveislu og ís, fara í menningarferð með tvo elstu árgangana (á bakka), hjóladagur verður fyrir skólahópinn, hið geysivinsæla snúðaskokk, nestisdagur (vonandi fáum við gott veður þannig að hægt verði að fara í skógarferð og borða nestið þar), hin árlega sumarhátið Skerjagarðs og fleira skemmtilegt. Einnig fara elstu börnin í útskriftarferð. Síðast dagur fyrir sumarfrí er svo 29. júní Á föstudaginn 25. maí fara elstu börnin (skólahópur) að sjá Sinfoníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói. Þemað þetta árið er verk úr Ávaxtakörfunni sem Þorvaldur Bjarni búinn er að færa í nýjan búning.Einnig viljum við minna á útidótadaginn sem verður næstkomandi föstudag 25. maí. Þá mega börnin koma með útdót að heiman. Eins og áður sagði höfum við ekki pláss í garðinum fyrir hjól, línuskauta eða hlaupahjól.Munið svo sveitaferðina 1 júní kl. 13.00.  Við hvetjum alla foreldra til að koma með börnunum sínum í sveitina og eiga góða stund saman. kv frá Bakka og Bóli</description>
Opið Hús Laugardaginn 19. maí.
      <description>HæhæMunið Opið hús á Skerjagarði laugardaginn 19. maí, milli klukkan 11 og 13. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og skoða hvað börnin hafa verið að gera í leikskólanum síðasta vetur. Börnin munu syngja nokkur lög, útskrift elstu barnanna, hoppukastali í garðinum og ljúffengar veitingar í boði foreldra .Við viljum líka þakka frábæra mætingu á hreinsunardaginn síðastliðinn laugardag kveðja frá okkur öllum á Skerjó</description>
Allir í sund 
      <description>HæhæÁ sunnudaginn 6 maí á milli kl. 10 og 12 ætlum viðað fjölmenna með börnunum okkar í sund í Seltjarnarneslauginni. Vonumst eftir að sjá sem flesta, því það er svo gaman fyrir börnin okkar að hittast fyrir utan leikskóla og busla saman í lauginni.Kv Foreldrafélagið</description>
Það verður ýmislegt brallað í maí
      <description>HæhæJæja þá er stundaskráin fyrir maí mánuð komin. Það verður ýmislegt skemmtilegt gert í maí. Við ætlum að halda hópastarfinu alveg út maí og tónlistin verður einnig út maí. Fimmtudaginn 10 maí verður hatta- og gleraugnadagur og mega börnin þá koma með hatta og/eða gleraugu í leikskólann. Föstudaginn 25. maí verður svo útidótadagur. Þá mega börnin koma með eitthvað skemmtilegt útidót að heiman til að leika með úti t.d. bolta, skóflu, fötu, bíla, sippuband, krítar og fleira. (Því miður þá höfum við ekki pláss í garðinum til að koma á hjóli, línuskautum eða hlaupahjóli).Fimmtudaginn 24. maí kemur lögreglan og umferðaskólinn á skerjagarð og eru það börn sem fædd eru 2001 og 2002 sem fara í hann.Laugardaginn12. maí verður hinn árlegi hreinsunardagur hér á Skerjagarði frá kl. 10-14. Þá hafa foreldrar ásamt börnum komið og tekið til hendinni á leikskólanum t.d. málað grindverkið, leiktækin, koma niður sumarblómum, reita arfa og margt fleira. Foreldrafélagið hefur svo grillað pylsur í hádeginu.  Foreldrum hefur þótt þetta skemmtileg hefð sem og börnunum, þar sem þeir hitta og kynnast öðrum foreldrum og eiga skemmtilegan dag saman. Þetta er ekki skylda en gaman væri ef sem flestir foreldrar sæju sér fært að mæta þó ekki væri nema í smá tíma. (Góð upphitum fyrir kosningar og eurovision ).Laugardaginn 19. maí verður opið hús á Skerjagarði frá kl. 11-13. Þá verður sýning á verkum og daglegu starfi barnanna frá vetrinum. Einnig verður útskrift elstu barnanna á leikskólanum. Þá hafa foreldrar komið með veitingar á sameiginlegt hlaðborð. Foreldrar á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar á Bakka hafa komið með veitingar fyrir fullorðna. Leikskólinn sér um drykkjarföng. Foreldrafélagið hefur séð um að fá hoppukastala í garðinn. Allir eru velkomnir bæði foreldrar, systkini sem og ömmur og afar og aðrir aðstandendur.  Kl. 11:45 verður samsöngur barnanna í garðinum sem og útskrift elstu barnanna.Föstudaginn 1. júní verður sveitaferð á vegum foreldrafélagsins. Farið verður á Hraðastaði                      (í mosfellsdal)  eins og undanfarin tvö ár. Lagt verður af stað með rútu eða einkabíl frá Skerjagarði um kl. 13:00. Foreldrafélagið sér um að grilla og vonandi verðum við svo heppin að fá að sjá kind bera eins og við sáum í fyrra. Áætluð heimkoma er kl. 16:30. Eins og undanfarin ár væri gott ef foreldrar kæmust með. BakkafréttirÁ Bakka erum við byrjuð að vinna með fjöruna í hópastarfi. Í fjörunni er svo margt skemmtilegt sem hægt er að skoða og finna og vinna með. Börnin týna það sem þeim finnst áhugaverðast, síðan flokkum við það og greinum. Við ætlum síðan að mála mynd af fjörunni okkar og nota efniviðinn sem börnin týndu með. Við erum einnig að læra allskyns þulur og lög. Elstu börnin eru að læra þuluna ,,Bokki sat á brunni,, og ,,Fuglinn í fjörunni,,. Yngri hóparnir tveir eru að læra ,,fingraþuluna,, (regnbogahópur) og ,,Græn eru laufin,, (Skerjagarðshópur) sem þau svo myndskreyta.  Fréttir frá Bóli. Á Bóli er verið að klára að vinna með litina og fjölskylduna. Börnin á Bóli eru einnig að læra þulur og skemmtileg lög og eru þau svo dugleg. Þau eru að læra ,,Fingraþuluna,, og ,, Stígur hún við stokkinn,,. Þau eru einnig að syngja Maístjörnuna, Kvæðið um fuglana (snert hörpu mína), Sértu glaður og fleiri skemmtileg lög. Við ætlum svo að reyna að vera rosa duglegar að setja inn þau lög (inn í söngtextar) sem við erum að syngja hverju sinni Bestu kveðjur frá Bakka og Bóli</description>
Breyting á foreldraviðtölum á Bóli , snúðaskokk og fleira
      <description>HæhæÞað er smá breyting á foreldraviðtölum á Bóli. Þau verða á miðvikudaginn 25. apríl og miðvikudaginn 2. maí. Það er komið upp blað til að skrá sig á bæði fyrir Ból og Bakka. Í dag þriðjudag var snúðaskokk. Börnin fóru út og hlupu smá hring í hverfinu og þegar þau komu í mark þá fengu allir snúð namm namm.           (ps. það eru myndir frá snúðaskokkinu í myndaalbúminu)Á fimmtudaginn 19. apríl er sumardagurinn fyrsti og er þá frí á leikskólanum. GLEÐILEGT SUMAR BakkiAnnars er það að frétta af Bakka að við höfum verið að gera saumamyndir með tveim elstu hópunum. Börnin teiknuðu fyrst einfalda mynd á blað og hjálpuðum  við þeim að gera göt eftir línunum og þau saumuðu svo í. Þau eru alveg ótrúlega dugleg að sauma og þeim fannst þetta rosa gaman. Yngri hóparnir voru að byrja vinna sandmyndir (sjálfsmynd). Annars er vor í lofti og við erum farin að vera meira úti þegar gott er veður.  Hópastarfið mun litast af því og ætlum við að fara að vinna með nánasta umhverfið okkar, þ.e. fjöruna og einnig að fylgjast vel með vinatréinu okkar sem fer að taka miklum breyitingum núna næstu vikurnar. BólÁ Bóli eru yngri hóparnir að vinna með gula litinn og verður fljótlega gult ball á Bóli. Eldri hóparnir eru enn að vinna með ,,ég sjálfur,, . Bestu kveðjur starfsfólk á Bóli og Bakka</description>
Foreldraviðtöl á Bakka og Bóli 
      <description>Hæhæ     Þá eru páskarnir afstaðnir og allt komið í fullan gang hjá okkur á Skerjagarði.       Í næstu viku og þarnæstu viku ætlum við að hafa foreldraviðtöl á Bakka.  Foreldraviðtöl fyrir foreldra barna sem fædd eru 2001 og 2002 verða mánudaginn 16. apríl og miðvikudaginn 18. apríl.   Foreldraviðtöl fyrir foreldra barna sem fædd eru 2003 og 2004 á Bakka verða þriðjudaginn 24. apríl og fimmtudaginn 26. apríl.   Það hangir uppi skráningarblað í fataklefanum þar sem þið getið skráð ykkur á þann tíma sem hentar ykkur best.  Við byrjum á að setja upp blað fyrir viðtölin sem verða 16 og 18. apríl. Skráningarblað fyrir seinni hópinn verður sett upp í næstu viku.  Foreldraviðtöl fyrir foreldra barna á Bóli verða mánudaginn 23. apríl og miðvikudaginn 25. apríl. Skráningarblað verðu hengt upp í næstu viku.kv Starfsfólk á Bakka og Bóli   </description>
Loksins loksins koma nokkrar fréttir
      <description>HæhæVið viljum byrja á að þakka ykkur fyrir frábæra mætingu í foreldrakaffið sem var haldið í mars.  Það var rosalega gaman að sjá ykkur öll og gaman hvað foreldrar frá Bóli voru dugleg að kíkja upp á Bakka og foreldrar af Bakka niður á Ból. Einnig var gaman að sjá hvað það var góð mæting á fyrirlesturinn hjá Hugo.ÞAÐ ERU KOMNAR FULLT AF NÝJUM MYNDUM Í MYNDAALBÚMIÐ   BakkafréttirNú erum við búin að ljúka við slökkviliðsþemað og var það mjög skemmtilegt. Nú fer að styttast í páskana og erum við farin að undirbúa þá með skemmtilegu páskaföndri.  Þegar við vorum með slökkviliðsþema þá æfðu börnin lag um eldinn ( sem er eitt lag í þúsaldarljóði eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson) og hreyfingar með. Það eru fleiri lög í Þúsaldarljóðinu eftir Sveinbjörn og er mikill áhugi hjá börnunum að æfa þau. Það eru lög um jörðina, loftið og vatnið. Það eru textar hér til hliðar í ,,söngtextar,,.Okkur var boðið í heimsókn á Blindravinnustofuna í gær (miðvikudag).  Börnin fengu að prófa hvernig það er að sjá ekkert og ganga um með bindrastaf. Það fannst þeim mjög ,,gaman,, að fá að prófa. Einnig fengu þau að skoða hvað verið er að vinna við á blindravinnustofunni og þau fengu sjálf að setja merkingu á uppþvottabursta og vildu sum fá að prófa að gera með með leppa fyrir augunum (´sjá hvernig er að vera blindur og vinna við þetta). Einnig fengu þau að sjá og prófa að þreifa á blindraletri. Í lokin var okkur boðið upp á snúð og safa   . Þetta var mjög skemmtileg og áhugaverð ferð og ætlum við að að vinna aðeins með hana áfram þ.e. að skoða skynfærin okkar og umhverfið. (Það eru tveir elstu hóparnir sem fara í heimsókn, helmingurinn fór í gær og seinni hópurinn fer eftir páskana).  Nokkrar fréttir af skólahópnum á BakkaElstu börnin (fædd 2001) á Bakka eru í skólahóp 4-5 sinnum í viku.  Í skólahóp er verið að vinna með stafabókina. Nú er verið að vinna með stafinn Vv.Þau hafa einnig verið að skoða og læra um ísland þ.e. helstu staðina á landinu okkar t.d. um höfuðborgina, helstu jökla og fleira. Þau skoðuðu einnig fánann okkar þ.e. hvað litirnir tákna. Einnig tóku þau skjaldarmerkið fyrir.  Nú er þau að vinna með fæðingardag sinn og ár og þá í hvaða stjörnumerki þau eru. Þetta finnst þeim mjög skemmtilegt.Einnig ætla börnin að útbúa flöskuskeyti. Þetta var hugmynd sem kom upp hjá einu barninu og eru þau mjög spennt að prófa þetta.Nú erum við að byrja að bjóða börnum sem eru fædd 2002 að koma í heimsókn í skólahópinn. Það fær hvert barn að vera í ca. viku í heimsókn og taka  þátt í því sem verið er að gera hverju sinni.Fréttir af BóliVIð á Bóli viljum byrja á að minna foreldra á að koma með ferilsmöppubækurnar (grænu bækurnar) sem fyrst því að við ætlum að fara að setja myndir og fleira inn í þær. Annars er allt gott að frétta af Bóli. Nú erum við að vinna með gula litinn. Börnin hafa verið að gera skemmtilegt páskaskraut og tengja það við gula litinn.Eldri börnin þ.e. börn sem fædd eru 2004 eru að vinna með fjölskylduna. Langar okkur að biðja ykkur um að senda okkur eða koma með myndir af nánustu fjölskyldumeðlimum þ.e. pabba og mömmu, systkinum og afa og ömmu. Kveðja frá Bakka og Bóli</description>
Foreldrakaffi fimmtudaginn 15.mars. Aðalfundur foreldrafélagsins og Hugo á mánudaginn 19. mars
      <description>HæhæFimmtudaginn 15. mars verður foreldrakaffi á Bakka og Bóli á milli kl. 14-16 (foreldrar geta mætt einhverntímann á þessu bili).  Á Bakka verður sýning á verkum barnanna frá Tröllaþemanu og Slökkviliðsþemanu. Á Bóli verður líka sýning á því sem börnin þar hafa verið að gera í þemastarfi. Við vonumst eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta og skoða hvað börnin hafa verið að gera skemmtilega hluti og fá sér kaffi í leiðinni.Mánudaginn 19.mars kl. 20:00 verður aðalfundur foreldrafélagsins. Strax á eftir eða kl.20:30  mun Hugo Þórisson vera með fyrirlestur á Skerjagarði í boði foreldrafélagsins um samskipti foreldra og barna.  Vonum að sem flestir mæti. Heitt á könnunni og eitthvað gott með  (eða er það ekki Ella ).Svo væri rosa gaman ef þið gætuð skrifað smá línu í gestabókina okkar þegar þið kíkið á okkur svo að við sjáum hverjir eru að fylgjast með okkur  ps. það eru engar nýjar myndir núna en vonandi náum við að skella inn myndum fljótlegaKveðja frá Bakka og Bóli</description>
Dagskrá mars mánaðar og fréttir frá Bakka og Bóli
      <description>HæhæVorum að setja inn stundatöflu fyrir mars mánuð. Það er ýmislegt sem við ætlum að bralla  í næsta mánuði. Það verður t.d. Blátt ball hjá börnunum á Bóli þar sem þau eru búin að vera að vinna með bláa litinn og ætlum við að enda það með bláu balli á föstudaginn (2 mars). Þá mæta allir í einhverju bláu eða með eitthvað blátt á sér. Á Bakka verður tröllagrímuball 19. mars en þá ætla krakkarnir að nota grímurnar sem þau bjuggu til í tröllaþemanu og breyta sér í tröll og dansa og skemmta sér.  Við ætlum svo að hafa spila/púsldag 8. mars en þá mega börnin koma með spil eða púsl með sér í leikskólann (við viljum bara biðja ykkur um að merkja allt vel sem komið er með í leikskólann).  Þann 15. mars verður svo foreldrakaffi á Bakka og bóli.  Á Bakka verður sýning á verkefnum sem börnin hafa verið að vinna að í þema þ.e. tröllaþema og slökkviliðsþema.  Í lok mánaðarins verður svo bangsadagur hjá Bóli og dótadagur hjá Bakka. Þá mega börnin koma með einn bangsa eða eitt dót að heiman.Þann 14. mars fer skólahópurinn í heimsókn í Melaskóla og fær að fara í leikfimi með börnunum þar. Hann Sigurvin frá kirkjunni kemur svo alltaf til okkar fyrsta fimmtudag í mánuði. Hann syngur með börnunum og segir þeim sögur ásamt ýmsum gestum sem leynast í töskunni hans t.d. Engilráð og Rebbi refur.BakkaféttirNú er slökkviliðsþemað í fullum gangi. Börnin eru búin að teikna sína fyrstu mynd af einhverju sem þau tengja við slökkviliðið. Það hefur einnig verið gaman að sjá hvernig börnin hafa tengt þemað okkar í t.d. einigakubbana.  Þar hafa börnin kubbað ýmsilegt í sem tengist þemanu okkar t.d. slökkviliðsbíla, slökkvistöð, brunahana, eld og notað kubbana sem brunaslöngu.Í gær fórum tveir elstu hóparnir í heimsókn á slökkvistöðina að skoða slökkviliðsbíl og sjúkrabíl. Þar tóku nokkrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á móti okkur og sýndu okkur það helsta sem tengist slökkviliði og sjúkraflutningum.  Börnin fengu að fara inn í slökkviliðsbílinn og líka í sjúkrabílinn og prófa þar ýmislegt sem notað er til að bjarga fólki. Þau fengu t.d. að prófa spelku á hendina, hálskraga, hjálma og fleira. Þau fengu að sjá allar brunaslöngurnar, klippur og mörg önnur tæki sem notuð eru við að slökkva eld. Áður en við fórum þá bjuggu börnin til bók sem þau tóku með til að teikna myndir úr ferðinni í. Áður en við fórum af stað þá spjölluðum við um slökkviðliðið og komu börnin með nokkrar spurningar sem þau vildu spyrja slökkviliðsmennina að og settum við þessar spurningar inn í bókina þeirra. Í lok heimsóknarinnar spurðu svo börnin slökkviliðsmennina þessara spruninga og fengu svör við þeim.  Við fengum ekki að fara frá slökkvistöðinni nema syngja nokkur lög fyrir slökkviliðsmennina og sungu börnin nokkur ,,eldlög,, fyrir þá og fengu gott klapp fyrirBólfréttirVið á Bóli erum búin að vera að vinna með bláa litinn núna í nokkrar vikur. Við ætlum að klára það núna í þessari viku og hafa Blátt ball á föstudaginn. Næsti litur sem við tökum fyrir er rauður og munum við vinna með hann í nokkrar vikur. Eldri börnin á Bóli eru enn að vinna með ,, ég sjálfur og umhverfið mitt,,. kv Bakki og Ból</description>
Öskudagur á Skerjó 
      <description>Hæhæ  Vorum að setja inn myndir frá öskudagsballinu í dag.   Börnin komu öll í búningum eða náttfötum og skemmtu sér vel. Það var skemmtilegt að sjá hvað börnin voru í mismunandi búningum þetta árið og allir ánægðir með sitt   Við vorum öll saman niðri á Bóli þar sem búið var að hengja upp poka sem í voru margir minni pokar með snakki og saltstöngum í. Börnin slóu svo í pokann eitt og eitt þar til hann rifnaði og fengu þá allir einn poka með snakki í nammi namm. Þegar búið var að borða snakkið þá var slegið upp balli og skemmtu allir sér vel. Við dönsuðum súpermandansinn, fórum í ævintýralestina um leikskólann og fleira skemmtilegt.                                                                                       Skólahópurinn fór svo í smá gönguferð út í Skerjaver og sungu og fengu epli í staðinn.             kv Ból og Bakki    </description>
Skerjófréttir
      <description>Hæhæ  Það eru komnar nýjar myndir í albúmið okkar. Þau albúm sem eru óflokkuð eru með nýjum myndum í. Stundum bætum við myndum í gömul albúm og þá fer það sjálfkrafa í óflokkað sem sýnir að það séu nýjar myndir í því. Við reynum svo að setja inn nýjar myndir vikulega (þ.e. á þriðjudögm).  Í gær var bolludagur og voru bollur í aðalhlutverki hjá okkur :-) VIð fengum fiskibollur í hádegismat og svo rjómabollur í kaffinu namm namm. Í dag sprengidag fáum við svo auðvitað saltkjöt og baunir og borðum okkur pakksödd. Á morgunn er svo öskudagur og mega börnin þá koma í furðufötum. Þá sláum við upp furðufataballi og sláum (,,köttin úr tunnunni,,) eða frekar ,,snakkið úr pokanum,, hehe.  Svo verður pylsupartý í hádeginu.   Bakkafréttir  Nú erum við komin aðeins af stað með slökkviliðsþemað. Við erum búin að fara á bókasafnið og fá bækur að láni. Við gerðum hugmyndavefinn í gær og eru krakkarnir mjög fróðleiksfús þegar kemur að þessu efni. Við fórum svo í kjölfarið í göngutúr um hverfið að leita að brunahönum. Við fundum tvo brunahana og töldu börnin hvað það væru mörg skref á milli þeirra og komust að því að þau voru 106. Við höfum svo verið að syngja nokkur lög þar sem slökkvibílar eða eldur koma við sögu og eru þessi lög hér á síðunni okkar undir söngtextar. Í þessari viku munu börnin svo teikna sína fyrstu mynd um slökkvilið og verður gaman að sjá hvað kemur frá þeim.  Í næstu viku munum við svo fara í heimsókn á Slökkvistöðina með tvo elstu árgangana og verður það örugglega mjög gaman. Svo sjáum við hvað börnin vilja vinna út frá þeirri ferð.      Kveðja Ból og Bakki      </description>
kósídagur, bolludagur, sprengidagur og öskudagur
      <description>Hæhæ  VIð viljum minna á kósídaginn sem verður á fimmtudaginn. Þá mega börnin koma  með eitthvað kósí að heiman. Það getur t.d verið bangsi, teppi, koddi, bók, rólegur geisladiskur eða hvað sem börnunum þykir kósí :-) Við ætlum að eiga rólegan og kósí dag í leikskólanum, hlusta á músík, hafa dýnur á gólfum til að liggja á, kósí birtu og bara það sem börnunum dettur í hug að gera.   Það fer óðum að styttast í bolludag, sprengidag og öskudag en þeir eru í næstu viku (19. 20 og 21. febrúar). Við erum byrjuð að æfa nokkur lög sem tengjast þessum dögum og eru textarnir hér á síðunni undir söngtextar.  Börnin eru líka byrjuð að gera bolluvendi og svo ætlum við að taka upp gamla og góða hefð og gera nokkra öskupoka með börnunum.  Á öskudaginn (miðvikudaginn 21. febrúar) verður fuðrufataball og mega börnin þá koma í furðufötum. Við viljum biðja ykkur foreldra um að takmarka aukahluti sem fylgja með búningunum því að þeir vilja týnast.  Nokkrar fréttir af Bakka.  Nú erum við að klára tröllaþemað sem við erum búin að vera að vinna með í nokkrar vikur. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og hafa börnin haft mikið gaman af. Börnin hafa gert ýmislegt í tengslum við þemað t.d. teiknað tröllamynd, gert tröll úr steinum eða öðrum efnivið, búið til eitt stórt tröllafjall saman, búið til verdargripi, tröllagrímur, farið í sögustund á bókasafnið, svo fengum við leikskólakennara til koma til okkar og segja okkur tröllasögu frá eigin brjósti, lært tröllalög, tröllaleiki og margt fleira skemmtilegt.    Næsta þema sem við ætlum að taka fyrir er ,,slökkviliðið,,. Erna leikskólakennaranemi ætlar að vinna með börnunum í þessu þema og skipuleggja það. Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og fróðlegt að fá að kynnast þessu betur. Við erum aðeins byrjuð að ræða um þetta við börnin og er mjög mikill áhugi hjá þeim og margar spurningar sem hafa vaknað sem við svo reynum að fá svör við í sameiningu.   </description>
Smá tröllafréttir ;-)
      <description>Hæhæ  Það eru komnar nýja myndir frá Bóli og Bakka í myndaalbúmið okkar.  Þá erum við búin að endurheimta hana Mombi okkar aftur í eldhúsið eftir fæðingarorlof. Það er mjög gott og gaman að fá hana aftur til okkar. Elisabeta hætti um mánaðarmótin og þökkum við henni fyrir samstarfið.   Smá fréttir af Bakka  Nú erum við á Bakka að búa til stórt tröllafjall(helli) þar sem tröllin okkar búa. Þetta er hópverkefni þar sem öll börnin fá að taka þátt, hjálpast að, komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig fjallið á að líta út og fleira.       Við fengum leikskólakennara sem heitir Berglind í heimsókn til okkar á Bakka til að segja okkur tröllasögu. Hún er sérfræðingur í að segja sögu frá eigin brjósti og var alveg frábært að hlusta á hana og fylgjast með þegar hún fór úr einu hlutverkinu í annað. Hún sagði okkur söguna um hann Tuma tröllastrák sem hún hitti þegar hún var lítil stelpa. Hún villtist upp á fjalli og þá kom Tumi og vildi hjálpa henni. Hún fór með honum í hellinn hans og hitti þar tröllamömmu og tröllapabba. Tröllamamma var að búa til tröllapönnukökur og fékk Berglind að smakka hjá henni. Svo fóru Tumi og tröllapabbi með henni aftur til byggða og þar hitti hún pabba sinn sem var að leita að henni. Þetta var mjög skemmtilegt og voru börnin mjög áhugasöm og sátu mjög stillt og prúð og hlustuðu.     kv Ból og Bakki</description>
Smá fréttir frá Bóli og Bakka
      <description>Hæhæ  Vorum að setja inn nýjar myndir í albúmið okkar. Það eru komnar nýjar myndir í ,,Daglegt starf á Bóli,, og einnig í ,,daglegt starf á Bakka jan ,, og nýtt albúm í tröllaþema hjá Bakka (Ljónahópur og Hlaupahópur 24. janúar).Við komum til með að bæta oft inn í eldri albúm þá helst þegar verið er að setja inn myndir frá daglegu starfi. En við látum vita hér á síðunni um leið og við setjum nýjar myndir inn.  Það eru komnar stundaskrár fyrir febrúar inn á heimasíðuna okkar ,Stundaskrár,, bakki/ból.  Við viljum líka minna ykkur á að kíkja á óskilafötin hjá okkur. Það fyllist mjög fljótt hjá okkur karfan og viljum við endilega reyna að koma öllu til skila. Einnig að minna foreldra á að hafa nóg af útfatnaði fyrir börnin sín (vettlinga 2 pör, húfur, ullarsokka, hlýja peysu, stígvél, kuldaskó, regnföt og útigalla) og einnig aukaföt í töskunni (buxur, peysu, sokka(buxur) og nærföt.   Fréttir frá Bóli  Við erum búin að fá 3 ný börn á deildina okkar. Þau heita Axel Orri, Erna Ingibjörg og Marinó Bjarni. Aðlögunin gekk mjög vel og eru allir glaðir og ánægðir. Við bjóðum þau velkomin til okkar.  Við vorum að byrja í þemastarfi á Bóli og eru litlu krílin okkar (fædd 2005) að vinna með litina. Við byrjum á bláum lit og vinnum með hann í hinum ýmsu myndum. Við syngjum um litina, lesum og málum og margt fleira skemmtilegt. Stóru börnin okkar (fædd 2004) eru í þema ,, ég sjálfur, fjölskyldan og umhverfið,,. Þau eru 2x í viku í þemastarfi.  Smá breyting verður með kjallarann (Gleðigarð) eftir kaffi. Börn sem eru fædd 2004 verða í kjallaranum á mán/mið/föstudögum og börn sem fædd eru 2005 verða í kjallaranum eftir kaffi á þriðju- og fimmtudögum.   Fréttir frá Bakka  Við á Bakka höfum fengið til okkar leikskólakennaranema á öðru ári sem heitir Erna. Hún ætlar að vera hjá okkur í 7 vikur og kynnast starfinu á leikskólanum okkar. Hún mun vinna nokkur verkefni með börnunum og þar á meðal í könnunaraðferðinni. Það er mjög gaman að fá nema til okkar og hlakkar okkur mikið til að vinna með henni í þessar vikur sem hún verður hjá okkur.   Við erum enn að vinna með tröllin í þemastarfi og gengur það mjög vel. Við erum búin að vera að búa til tröll úr ýmsum efnivið t.d. steinum, blómapottum, jógúrtdósum, skinni, gæru, og mörgu fleiru sem börnin hafa fundið. Eldri börnin horfðu á spólu sem heitir Íslenskar þjóðsögur og ævintýri. Þar var leikin tröllasagan um Gilitrutt og sagan af tröllkerlingunni Kolku sögð og fleiri skemmtilegar sögur.   Yngri börnin hafa verið að hlusta á tröllasögur og fengið að sjá myndirnar úr bókinni varpaðar upp á vegg með myndvarpa. Þetta gerir söguna meira spennandi og ná þau að fylgjast betur með. Þau fóru einnig í strætóferð um bæinn í leit að tröllum. Þau sáu eitt tröll sem var að fara í bílinn sinn. Það var fylgst vel með því þar til það var farið í burtu :-)  Í haust fundu tveir elstu hóparnir tré út á skógarróló sem þau skírðu ,,Vinatré,,. Við höfum farið einu sinni í mánuði og kíkt á tréið okkar og fylgst með hvernig það breytist eftir árstíma og tekið myndir af því. Við fórum fyrst í október og var þá tréið með fullt af laufi. Svo fórum við aftur í nóvember og var þá bara allt lauf horfið nema tvö lítil lauf sem héngu enn á. Fannst börnunum þetta mjög áhugavert. Svo fórum við aftur í desember og skreyttum vinatréið okkar með jólaskrauti sem börnin bjuggu til sjálf.  Í morgunn fórum við svo að kíkja á tréið okkar og var þá jólaskrautið enn á tréinu. Við tókum skrautið niður og tókum svo mynd af tréinu.  Það verður gaman að fylgjast með vinatréinu okkar núna í vor þegar laufið fer að koma á tréið og springa út.  Bestu kveðjur starfsfólk á Bóli og Bakka      </description>
Nýjar myndir í albúmið
      <description>Hæhæ   Vorum að setja inn nýjar myndir í albúmið í ,,Daglegt starf á Bóli,, og svo nýtt albúm ,,Útivera á Bóli janúar 2007,,.  Kíkið endilega á þær.  Munið svo myndatökuna á morgunn fimmtudag.  Kv frá okkur á Skerjagarði</description>
Sögustund á bókasafninu og bíó í kjallaranum
      <description>Hæhæ  Takk fyrir allar kveðjurnar. Það er mjög gaman að heyra frá ykkur og vonumst við til að þið verðið dugleg að skrifa í gestabókina og/eða á bloggið hjá okkur ef það er eitthvað sem þið viljið koma til skila eða bara að láta heyra frá ykkur.  Við viljum byrja á að minna á ljósmyndarann sem kemur á fimmtudaginn (en ekki í dag þriðjudag eins og búið var að auglýsa) til okkar. Ef einhver á eftir að borga þá þarf að gera það sem fyrst og senda kvittun til okkar skerjagardur@skerjagardur.is um það sé búið að borga eða koma með kvittunina til okkar.  Annars er búið að vera nóg að gera hjá okkur. Við á Bakka fórum t.d. í sögustund á bókasafnið. Við fórum í tveimur hópur þ.e. eldri og yngri hópar. Eldri börnin fóru á fimmtudaginn og yngri börnin í dag. Við fórum með strætó og er það alltaf jafn spennandi. Þau eldri hafa farið nokkrum sinnum á bókasafnið með strætó en þau yngri voru mörg að fara í fyrsta skiptið og var það mjög gaman. Það var bókasafnsfræðingur sem tók á móti okkur og las fyrir okkur tvær bækur. Fyrir eldri börnin var lesin saga sem heitir ,,Eigingjarni risinn,,. Börnin voru svo áhugasöm og hlustuðu svo vel að bókasafnsfræðingurinn las aðra sögu fyrir þau en það var sagan af Greppikló. Þegar hún var búin að lesa fyrir okkur kom hún með fullt af leikfangabrúðum af persónum úr ýmsum barnabókum t.d. greppikló, Línu Langsokk, Póstin Pál og fleiri skemmtilegar persónur. Fyrir yngri börnin var lesin sagan um Sel.  Þegar búið var að lesa og leika smá var farið aftur með strætó í leikskólann og fengið sér að borða namm namm. Okkur (börnum og starfsfólki) fannst mjög skemmtilegt að fá svona sögustund á bókasafninu og eigum örugglega eftir að gera þetta oftar.    Í kuldanum á föstudaginn var lítið farið út og þar sem við vorum að fá sjónvarp og video í leikskólann komum við okkur vel fyrir í Gleðigarði (kjallaranum) með teppi og huggulegheit og horfðum á Línu Langsokk. Allir höfðu gaman af.  Það getur verið mjög gott að hafa sjónvarp og video í leikskólanum okkar til að nota við ýmis tækifæri. Við höfum stundum tekið videospólu í tengslum við ýmis þema sem við höfum verið með í þemastarfi, einnig höfum við verið að lesa bækur fyrir börnin eins og t.d. um Benedikt búálf og hefur þá verið gaman að geta horft líka á myndina um hann. Svo getur líka verið mjög gott og gaman á köldum dögum eins og var á föstudaginn að hafa það kósí inni og horfa á eina mynd öll saman :-)    Kveðja frá Bakka</description>
Húrra húrra :-) Heimasíðan er komin í gagnið
      <description>Hér sitjum við sveittar við að setja inn skemmtilegar myndir frá þemastarfi frá því í morgunn og í gær. Vonandi verður gaman fyrir alla að geta fylgst betur með hvað við erum að gera í leikskólanum.   Nú erum við farin að vinna með tröllin og er mikill áhuga hjá börnunum á því. Við höfum verið að skoða bækurnar hans Brians Pilkingtons og unnið út frá þeim. Við erum búin að fara á bókasafnið og ná í nokkrar bækur um tröll. Börnin eru svo búin að teikna mynd af tröllum, gera verndargrip, syngja tröllalög,  æfa þulur og læra tröllaleik og ýmislegt fleira. Á morgunn förum við á bókasafnið í sögustund með elstu tvo árgangana, þar verður lesin fyrir okkur tröllasaga.  Kveðja Sóldís og Inga (hópstjórar Ljónahóps og Hlaupahóps)  </description>